Lesbók Morgunblaðsins - 17.01.2004, Side 15
LISTASAFN KÓPAVOGS
gerðarsafn, hamraborg 4
12. desember - 22. febrúar
opnunartímar:
alla daga nema mánudaga
kl. 11 - 17
leiðsögn:
miðvikud. og fimmtud. kl. 12
laugard. og sunnud. kl. 15
www.carnegieartaward.com
Nina Roos, Untitled from Habbit Suddenly Broken
c a r n e g i e
a r t
awa r d
2 0 0 4
LESBÓK MORGUNBLAÐSINS ˜ MENNING/LISTIR 17. JANÚAR 2004 15
Næsta v ika menning@mbl.is
Laugardagur
Salurinn kl. 16 Vín-
artónleikar. Hanna Dóra
Sturludóttir og salonhljómsveit
skipuð Sigrúnu Eðvaldsdóttur
konsertmeistara, Önnu Guð-
nýju Guðmundsdóttur, píanó,
Sigurði Ingva Snorrasyni, klar-
inett, o.fl.
Gerðuberg kl. 17 Austrian
Double Reed-kvartett er skip-
aður hljóðfæraleikurum sem
flestir tengjast Íslandi og
Austurríki sterkum böndum.
Óbóleikararnir Adolf Traar og
Gregor Nabl starfa við Fíl-
harmóníusveitina í Graz, en
Katalin Kiss starfar við kennslu
og flutning kammertónlistar.
Fagottleikarinn, tónskáldið og
Íslandsvinurinn Werner
Schulze er prófessor við Uni-
versität für Musik und dar-
stellende Kunst í Vínarborg.
Langholtskirkja kl. 17 Fær-
eyski drengjakórinn Undir
Brúnni. Stjórnendur eru Eli
Smith og Brita á Váli Smith.
Gestur kórsins er Gradualekór
Langholtskirkju undir stjórn
Jóns Stefánssonar.
Listasafn
Reykjavíkur,
Hafnarhús
kl. 16 Safnið
hefur sýningar-
árið með sýn-
ingu á nýjum
og eldri verk-
um eftir Ólaf
Elíasson. Sýn-
ingin verður í fjórum af sex söl-
um safnsins og nefnist Frost
Activity.
Listasafn Akureyrar kl. 15
Opus og Arcus. Bjarni Sigur-
björnsson og Svava Björns-
dóttir. Bjarni málar á plexígler,
notar margar ólíkar tegundir li-
tefna og snýr röngunni á mál-
verkinu út. Sýning Svövu í
vestursal safnsins saman-
stendur af þremur pappírs-
örkum á vegg. Opið kl. 12–17
alla daga nema mánudaga.
Gerðuberg kl. 14 Safnarar
sýna brot úr söfnum sínum og
nefnist sýningin Stefnumót við
safnara. Sýnendur eru flestir
smágripasafnarar sem hafa
sjaldan sýnt safngripi sína. Þeir
skiptast hins vegar í ólíkar fylk-
ingar þegar kemur að mark-
miðum og leiðum í söfnuninni
enda safna þeir á ólíkum for-
sendum.
Sunnudagur
Hafnarborg kl. 15 Ólafur
Elíasson setur upp Minningar-
sýningu á myndverkum föður
síns, Elíasar Hjörleifssonar.
Teits gallerí, Engihjalla 8
kl. 14 Jóhannes Dagsson opn-
ar sýningu sína Mold, himinn,
gras. Á sýningunni eru málverk
og verk unnin með blandaðri
tækni á pappír.
Mánudagur
Listaháskóli Íslands, Laug-
arnesi kl. 12.30 Hanna
Guðlaug Guðmundsdóttir list-
fræðingur fjallar um ljós-
myndun sem „nýjan“ miðil í
myndlist síðustu tvo áratugi í
verkum listamanna á borð við
Richard Prince, Cindy Sherm-
an, Nan Goldin, Jeff Wall o.fl.
Hanna Guðlaug er í doktors-
námi í Parísarháskóla í list-
fræði, en hefur lagt sérstaka
áherslu á ljósmyndasögu.
Þriðjudagur
Íslenska óperan kl. 12.15
Bla bla bla er yfirskrift há-
degistónleikanna. Hulda Björk
Garðarsdóttir, Ólafur Kjartan
Sigurðarson og Kurt Kopecky
flytja brot af því besta úr smiðju
Gershwins.
Salurinn kl. 20 Rúnar Ósk-
arsson, klarínetta, Þórunn Ósk
Marinósdóttir, víóla, og Árni
Heimir Ingólfsson, píanó, flytja
Tríó í Es-dúr KV 498 eftir Moz-
art, 4 verk op. 83 eftir Bruch,
Märchenerzälhlungen op. 132
eftir Schumann, Fantasia Breve
eftir Olav Berg, The North
Shore eftir Gavin Bryars og
Kleines Konzert eftir Alfred Uhl.
Fimmtudagur
Háskólabíó
kl. 19.30 Sin-
fóníuhljómsveit
Íslands. Hljóm-
sveitarstjóri:
Guðmundur
Óli Gunnars-
son. Einleikari:
Sigurgeir Agn-
arsson sellóleikari. Flutt verður
verk eftir Johannes Brahms: Til-
brigði um stef eftir Josef Haydn.
Sellókonsert í C-dúr eftir Josef
Haydn, Nótt á Nornagnípu eft-
ir Modest Mússorgskíj. Vocalise
eftir Sergej Rakhmanínov og
1812-forleikur eftir Pjotr Tsjaj-
kovskíj.
Sigurgeir
Agnarsson
Ólafur
Elíasson
Morgunblaðið/Jim Smart
Tinna Þorsteinsdóttir við flygil Salarins.
Tinna Þorsteinsdóttirheldur fyrstu ein-leikstónleika sína áÍslandi í Salnum kl.
20 annað kvöld. Á efnis-
skránni eru verk eftir Maur-
ice Ravel, Olivier Messiaen,
Morton Feldman og Jo-
hannes Brahms. Tinna nam
píanóleik við Tónlistarskól-
ann í Reykjavík hjá Guðríði
St. Sigurðardóttur og hélt
síðan til
Þýskalands
og lauk
prófi frá
Tónlistar-
háskól-
anum í Detmold-Münster ár-
ið 2000. Þaðan lá leiðin í
New England Conservatory
of Music í Boston og lauk
Tinna þaðan Graduate Dipl-
oma í október sl. Tinna hef-
ur leikið á fjölda tónleika
hér á landi og í Þýskalandi
og Boston, bæði einleik og
kammertónlist.
Þú ferð ekki alveg hefð-
bundna leið að debút-
tónleikum þínum Tinna, er
það?
„Nei, líklega ekki. Hluti
námsins í Boston var að
halda tvenna tónleika og ég
sá fyrir mér að ég myndi
ekki halda einleiks-
tónleikana á Íslandi fyrr en
ég væri búin með þessi próf.
Ég hélt einnig tónleika í
Münster og hef því haldið
þrenna einleikstónleika með
mismunandi efnisskrám í
námi mínu. Ég hlakka til að
kynna fyrir áheyrendum
það sem ég hef fram að
færa.“
Þú ert píanóleikari með
Salonhljómsveitinni L’am-
our fou sem leikur skemmti-
tónlist. Hvernig samrýmast
þessar tvær tónlistarteg-
undir?
„Mér finnst þær styðja
hvor aðra og það víkkar
sjóndeilarhringinn hjá mér
að leika margar tegundir af
tónlist. Ég hef ekki áhuga á
því að leika einhverja eina
stíltegund og fyrir mig er
það áskorun að vera sem
fjölhæfust. L’amour fou flyt-
ur tangóa, dægurlög og
kvikmynda- og kaffihúsa-
tónlist. Það má segja að
þetta sé nokkurs konar
popptónlist fyrir okkur
klassísku hljóðfæraleik-
arana. Ég hef nefnilega
gaman af áskorunum og nýt
þess að takast á við eitthvað
nýtt. Eftir að ég lauk hefð-
bundnu námi í Þýskalandi
og fór til Bandaríkjanna
lagði ég sérstaka áherslu á
nútímatónlist, ásamt sígildri
efnisskrá, sem opnaði mér
nýjan heim sem mér finnst
ofsalega gaman að takast á
við. Þessi óhefðbundni hugs-
unarháttur og abstrakt
hljóðheimur heillar mig,
sérstaklega píanóhljóðin og
sú undraveröld sem það
hljóðfæri hefur upp á að
bjóða. Ég vil stuðla að sköp-
un nútímatónlistar og hef
pantað verk frá íslenskum
tónskáldum sem ég mun
frumflytja á næstunni, en
það er ennþá leyndarmál.“
Verða tónleikarnir á
morgun þá ekki hefð-
bundnir?
„Nei, mig langaði ekki til
að halda hefðbundna loka-
tónleika og efnisskráin sam-
einar það sem ég hef áhuga
á. Á fyrri hluta tónleikanna
verða verk eftir frönsku
tónskáldin Maurice Ravel,
Jeux d’eau, og Olivier Messi-
aen, Catalogue d’Oiseaux,
Fuglabók V. Franskar nátt-
úrumyndir, fuglar og vatn
verða í aðalhlutverki. Ravel
hef ég ekki flutt áður á tón-
leikum, en hann hefur verið
kenndur við impressjónisma
í tónlist. Verkið sem ég flyt
eftir hann er um leik vatns-
ins. Mér fannst það passa
mjög vel við Fuglabækur
Messiaens, sem eru ekki oft
fluttar. Svo leik ég verk eft-
ir Morton Feldman (Piano
Piece to Philip Guston).
Feldman er eitt af frægustu
20. aldar tónskáldum
Bandaríkjanna.
Hann hafnaði þekktum
tónlistarformum og þykir
hafa skapað einstakan ab-
strakt hljóðheim. Hann átti
marga málara fyrir vini og
varð tónlist hans fyrir áhrif-
um af málaralistinni. Þar
voru Mark Rothko, Jackson
Pollock og ekki síst Philip
Guston áhrifavaldar. Verkin
hans eru sparneytin á tóna
og mjög lágstemmd en mig
hefur alltaf langað til að
geta tileinkað mér að leika
ofurveikt á píanó. Þessum
verkum sting ég inn á milli
sem andstæðum við hin
verkin.
Eftir hlé leik ég annað
verk eftir Feldman, Inter-
mission 5, og að lokum skelli
ég mér í dramatík Brahms,
Sónötu op. 2. nr. 2 í fís-moll.
Það sem heillar mig við són-
ötu hans er hversu óvenju-
leg hún er í forminu, eða
það að hann útvíkkar og
teygir það svolítið. Hún
minnir mig stundum á im-
pressjónisma, sem er nátt-
úrlega stórfurðulegt fyrir
þennan tíma, 1852, en það
er nú bara mín upplifun.“
Þú segist vera fyrir
áskoranir, speglar efnis-
skráin það?
„Já hún gerir það og má
segja að ég fari útá ystu nöf
með því að blanda saman
þessum stíltegundum. Fyrir
því hafði ég áhuga.“
Út á ystu nöf við píanóið
STIKLA
Píanó-
tónleikar í
Salnum
helgag@mbl.is
Myndlist
Borgarskjalasafn,
Grófarhúsi: Ólíkt – en líkt. Til
2. febr.
Gallerí Fold, Rauðarárstíg:
Sigríður Guðný Sverrisdóttir.
Harald (Harry) Bilson. Til 1. febr.
Gallerí Hlemmur: Rósa Sigrún
Jónsdóttir. Til 31. jan.
Gallerí Kling og Bang: Ingo
Fröhlich. Til 8. febr.
Gallerí Skuggi: Sólveig Birna
Stefánsdóttir og Hulda Vilhjálms-
dóttir. Til 1. febr.
Gallerí Veggur, Síðumúla 22:
Kjartan Guðjónsson. Til 20.
mars.
Gerðuberg: Stefnumót við safn-
ara. Til il 11. jan.
Hafnarborg: Minningarsýning
um Elías Hjörleifsson. Til
14.mars.
Hallgrímskirkja: Bragi Ás-
geirsson. Til 25. febr.
i8, Klapparstíg 33: Victor
Boullet. Til 28. febr.
Listasafn Akureyrar: Bjarni
Sigurbjörnsson. Svava Björns-
dóttir. Til 7. mars.
Listasafn ASÍ, Freyjugötu:
Rósa Gísladóttir. Gryfja: Margrét
Norðdahl. Til 1. febr.
Listasafn Einars Jónssonar:
Opið fyrir hópa eftir sam-
komulagi í janúar.
Listasafn Reykjavíkur – Ás-
mundarsafn: Nútímamaðurinn.
Til 20. maí.
Listasafn Reykjavíkur –
Hafnarhús: Ólafur Elíasson. Til
14. mars.
Listasafn Reykjavíkur – Kjar-
valsstaðir: Ferðafuða. Mynd-
listarhúsið á Miklatúni. Til 25.
jan.
Safn – Laugavegi 37: Opið
mið.–sun. kl. 14–18. Breski lista-
maðurinn Adam Barker-Mill.
Lawrence Weiner: Fimm nýjar
teiknimyndir. Til 1. mars. Hreinn
Friðfinnsson. Til 15. febr. Jón
Sæmundur Auðarson og Særún
Stefánsdóttir. Til 1. mars. Leið-
sögn alla laugardaga kl. 14.
Skálholtsskóli: Stað-
arlistamenn – Jóhanna Þórðar-
dóttir. Jón Reykdal. Til 1. febrúar.
Teits gallerí, Engihjalla 8: Jó-
hannes Dagsson. Til 12. febr.
Þjóðmenningarhúsið: Hand-
ritin. Skáld mánaðarins – Jó-
hannes úr Kötlum. Samsýning
Freyju Bergsveinsdóttur og Guð-
rúnar Indriðadóttur.
Leiklist
Þjóðleikhúsið: Ríkarður III,
lau., fös. Dýrin í Hálsaskógi, sun.
Græna landið, sun. Vegurinn
brennur, lau.
Borgarleikhúsið: Chicago,
frums. sun. fim. Lína langsokkur,
sun. Öfugu megin uppí, fös.
Sporvagninn Girnd, lau. Rauðu
skórnir, frums. lau. sun.
Loftkastalinn: Eldað með Elvis,
fim. Sveinsstykki, sun. Bless fress,
lau.
Iðnó: Sellófon, fim. Edda Björg-
vins, fös. Tenórinn, lau. fös.
Hafnarfjarðarleikhúsið:
Meistarinn og Margaríta, lau.
Norræna húsið: Flíkur til friðar.
Textílverk Jana Vyborna. Til 29.
febr.
Nýlistasafnið: Gauthier Hubert
og Guðný Rósa Ingimarsdóttir. Til
8. febr.
ReykjavíkurAkademían: Örn
Karlsson – yfirlitssýning. Til 1.
febr.
Morgunblaðið/Ásdís
Dýrin í Hálsaskógi eru á fjölum Þjóðleikhússins.