Lesbók Morgunblaðsins - 19.06.2004, Síða 7

Lesbók Morgunblaðsins - 19.06.2004, Síða 7
hérna voru lágkúruleg í samanburði við fjöllin í Suð- ursveit. Þau höfðu tinda sem bentu til himins. (Komp- aníið bls 127) Sumir sveitamenn kynnu að segja að Esjan sé ekki tignarlegt fjall, ekki falleg í laginu, ekki nógu kringlótt, ekki nógu há eða ekki nógu lág – Þórbergi finnst hún ruglingsleg, hún er of ruglingslega samin. Þórbergur er ekki bara að leyfa sér hér að viðra enn á ný ótrúlega hneykslanlegar skoðanir mitt í vest- urbæ Reykjavíkur heldur virðist hann raun- verulega upplifa Esjuna eins og slæmt atóm- ljóð eða móderníska skáldsögu, hann finnur ekki regluna í henni, hún er of glundroða- kennd fyrir hann, til hvers er hún svona eins og hún er? Á hverjum degi tók Þórbergur veðrið, hann mældi hvaðeina hátt og lágt – hann skipaði öllu því sem fyrir hann bar í ein- hvers konar kerfi, hvort sem það var ný þekking eða ný kynni og þegar honum tekst ekki að koma þekkingunni fyrir einhvers staðar í hugsana- eða skynjanakvíum sínum er engu líkara en að honum fallist hendur. Hann sér mann fara þrístökk og ávinna sér aðdáun og vinsældir fyrir og hann hugsar þrennt: í fyrsta lagi: af hverju er ég ekki frekar dáður fyrir Möllersæfingarnar mínar sem ég hef stundað daglega í fjörutíu og fjög- ur ár og útheimta meira þrek heldur en þetta fáránlega hopp – í öðru lagi: hvers vegna fer maðurinn ekki frekar sjöstökk? Og í þriðja lagi – og það sem mikilvægast er: í hvað notar maður þrístökk? Í heimi Þórbergs þarf allt að vera til ein- hvers. Þegar hann skrifaði Bréf til Láru var hann ekki „að tjá sig“ eða skrifa „af innri þörf“ heldur skrifaði hann sumt til þess að „skemmta Láru“, annað til þess að „breyta þjóðskipulaginu“ og loks lét hann flakka með „nokkrar skringilegar setningar“ til þess að „selja bókina“. Og þegar hann leggur út af bók Þórleifs Bjarnasonar, Hornstrendinga- bók í hinni frægu ritgerð sinni Einum kennt – öðrum bent þá gerir hann það beinlínis til þess að breyta íslenskri fagurfræði á stíl. Og þá kemur kannski ekki á óvart að gagnrýni hans í garð Þórleifs beinist umfram allt að því sem kann að bitna á nytjahlutverki text- ans. Skalli, uppskafning, lágkúra, ruglandi – þessar ávirðingar í stíl snúast þegar á öllu er á botninn hvolft allar um það sama: að texti viðkomandi verður eins og Esjan, of rugl- ingslega saminn, ekki nógu skýr og einfaldur, náttúrulegur, eðlilegur: það er ekki tilviljun að hann kennir fjöllin hér við lágkúru. Hug- takið skalli snýr að því að höfundur gangi ekki nógu langt í að upplýsa lesandann um það sem skrifað er um og bendir Þórbergur sérstaklega á til eftirbreytni í þeim efnum kafla sinn í Rauðu hættunni þar sem hann segir frá Rauða torginu og því hversu margir faðmar á lengd og breidd það sé. Öllu verri galli á einni frásögn er Uppskafningin að mati Þórbergs, sem hann kallar „hofróðulegt tildur og tilgerð, skúf og skrumskælingur, í hugsun, orðavali og samtengingu orða“ í texta sem höfundar grípi til af hégóma, í því skyni að láta dást að sér. Þórbergur talar um þingeysku uppskafninguna, sem hann skýrir að vísu ekki nánar en sé ólík þeirri uppskafn- ingu sem Þórleifur geri sig einkum sekan um og sé af útlendum toga spunnin, sambærileg við kubbahús, jassmúsík og hið þráláta stillu- bein í myndlistinni með körfu á borði og könnu á stól. Þegar nánar er að gætt er hér einkum átt við það þegar hendir höfund að setja saman tvö nafnorð í nefnifalli og eign- arfalli og tilgreinir Þórbergur fjölmörg dæmi um þetta – svo mörg raunar að lesandi fær ævilanga óbeit á eignarfalli. Lágkúran er angi af sama meiði og uppskafningin, og felst í því þegar orðum úr ólíkum og misháum stílsniðum er skeytt saman á ómeðvitaðan hátt. Ruglandi er svo síðasta hugtakið sem Þórbergur notar um gallana á skrifum Þór- leifs, en er ekki beinlínis stíllegt hugtak held- ur er manni nær að halda að hann noti hug- takið þegar honum sýnist höfundur setja mál sitt ruglingslega fram eða jafnvel þegar hann er ósammála höfundinum – Þórbergi er það til dæmis sérstakur þyrnir í augum að Þór- leifur skuli leyfa sér þá ruglandi að staðhæfa að mórar og skottur séu ekki lengur til síðan olíuljósin komu og rafmagnið … Hvað vildi Þórbergur? Hann vildi til dæm- is röð og reglu. Og þegar kemur að stíl gerir hann fyrst og fremst kröfu um ráðvendni, að maður spjátri sig ekki heldur skrifi satt. Hugtök meistarans um stílgalla snúa öll að óþarfa í rituðu máli. Hann spyr: til hvers er þetta skrifað svona en ekki hinsegin, hvaða notagildi hefur það? Stíllinn á að vera grand- var. Hagnýti og skynsemi er honum því enn leiðarljós – rökvísi er sá mælikvarði sem hann setur öllu rituðu máli, rétt eins og ann- arri mannlegri iðju, og líka fjöllum. * Þrátt fyrir alla þessa regluþrá, allan þenn- an röklosta, þessa örvæntingarfullu leit að endanlegum mælikvarða hagnýtis allra hluta þá finnur maður hvarvetna hjá Þórbergi hið víðfeðma frelsi andans sem gerir hann að meistara íslensku ritgerðarinnar. Hann hafði algjört stíleyra – eins og sagt er um tóneyra hjá sumu fólki – og gat leyft sér að skrifa stoltur nánast hvaða firrur sem var. Þetta al- gjöra stíleyra gerir hann steigurlátan og stoltan málsvara minnihlutaskoðana sem væru þær augljós sannindi. Stutt setning tekur við af langri og leiðir að annarri enn lengri og svo endar málsgreinin óvænt í beittu og snöggu spakmæli. Allt sem hann skrifar orkar á mann eins og viska. Maður sem skrifar af slíku valdi á setningargerðinni hlýtur að mati manns að hafa lagst í djúpa umhugsun „um eðli hlutanna“. Hann var frá- bitinn tildri í stíl en skrifaði sjálfur ekki eins og nokkur annar. Hann krafði íþróttir um notagildi en laðaðist að hugmyndinni um ní- stökk. Í stíl sínum fór Þórbergur sjöstökk og ní- stökk – en aldrei þrístökk, nema þá hugs- anlega á einum fæti svo það varð nýstökk. Og hann birtist alskapaður strax í Bréfi til Láru og var þá þegar svo þróaður að hann hafði á sér svip þess að vera eðlilegur, vera hinn náttúrulegi íslenski stíll. Og kannski er hann það: ég held að minnsta kosti að Þórbergi hafi auðnast að skrifa eins og hann minnti að fjöllin í Suðursveit væru. Stíll Þórbergs hafði tinda sem bentu til himins. Ég held að hann hafi haft í sér hið besta úr fortíðinni, íslenskri sveitamenningu margra alda – forvitni, trú- rækni, einlægni, sérlyndi og heiðríkan húm- or. Og mig langar að trúa því að hann hafi haft í sér hið besta úr framtíðinni og að það rætist sem hann sá fyrir sér um eindrægni þjóða sem tala saman á alþjóðlegu hjálpar- máli og lifa í sátt. En ég held hann hafi ekkert botnað í nú- tíma sínum; þeim nútíma sem stendur kannski enn, þeim nútíma sem stekkur á stöng bara í því skyni einu að reyna að kom- ast einum sentímetra hærra, en ekki til að göfga sig, nútíma hinna stundlegu nautna, nútíma hagvaxtarins, hins sífellda kláða neyslunnar, eyðslunnar, eignadýrkunarinnar – nútíma allra þessara óbærilegu eignarfalla. Hann segir við Matthías: Ég hef verið á skökkum stað í fimtíu og tvö ár, en ég fann það ekki fyrr en ég var kominn hátt á fertugsald- urinn. Þá fann ég að mér hentaði miklu betur að eiga heima í sveit en kaupstað. Kyrrðin, þögnin, og lausnin frá klukkunni eiga miklu betur við mig. Og hin hljóða músík fjallanna. Austur í Suðursveit hefði ég fundið hið eilífa og óforgengilega. Þar er lífið djúpt en í borg- unum er það grunnt, yfirborðslegt og í fjandskap við hið eilífa og óforgengilega. (Kompaníið bls 242–243) Heimildir: Í Kompaníi við allífið – Matthías Johannesen talar við Þórberg Þórðarson. Helgafell 1959 Þórbergur Þórðarson: Einum kennt – öðrum bent. Ýmislegar ritgerðir II, bls 50–84. Mál og menning 1977 Höfundur er rithöfundur. LESBÓK MORGUNBLAÐSINS ˜ MENNING/LISTIR 19. JÚNÍ 2004 7                               !    "              !  " !#   $% %   & ' ( !# )  $%%   ***+ +                                         + %+,+     + %+-).          ! "     #  $  #      % & % '  #  ()   *      #  ' $+ # &  ,$   *   -./   #     &'0 ' #  1   '   $%  2 #.'  ' 3'   4 4    .   $  ' ./    $  5  6  $   2 #.'                                                                   !    "     "     $  #    # %     # %   &   %  %          $    '  '          '        ( ' %       '            )*   ' %  $$ '    " (    +, $# +$ # +$   +,     -  $ $$ .      % $ $$         '    $$  /' *        $$           0         $$  '  '           *      "            0     +$   (          0       " * $$  +$        *    " $$    1 *  "   2  * $$ 3    0         4    *   5           !   "  #      )      667 $  )*         8  )*         /  9      4      (   &  4   ( %      %  %  ' 4        9  %      ' 0      '        (     /  4  ' 9               ##$  % &  $ '  (   (/""0 12 345" 56(57 8933 :+     '     7  8 9:       + $++     + +).    '     2  9;       + +)+     + ,-+-$.    '    #  : 8  .' %  9;       + ++     + %%+,%.            + %+,+     + %+-).

x

Lesbók Morgunblaðsins

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.