Lesbók Morgunblaðsins - 19.06.2004, Síða 15
LESBÓK MORGUNBLAÐSINS ˜ MENNING/LISTIR 19. JÚNÍ 2004 15
Næsta v ika menning@mbl.is
Laugardagur
Jómfrúin við Lækjargötu
kl. 16 Á Sumartónleikum leik-
ur tríó sænska trommuleik-
arans Erik Qvick. Með Erik
leika þeir Ásgeir Ásgeirsson á
gítar og sænski kontrabassa-
leikarinn Thomas Markusson.
Kaffi Rósenberg kl. 16
Upplestur skáldkvenna í bland
við tónlistarflutning í tilefni af
Kvennadeginum. Það er Mal-
bik – vinnuflokkur ljóð.is og
hljómsveitin Glymskrattarnir
sem standa fyrir uppá-
komunni.
Gallerí ash, Varmahlíð,
Skagafirði kl. 14 Sunna
Sigfríðardóttir opnar sýningu
á verkum sínum. Þau eru blý-
antsteikningar, óhlutbundin
form. Þetta er fjórða einkasýn-
ing Sunnu en hún útskrifaðist
frá myndlistaskólanum á Ak-
ureyri árið 2001.
Sunnudagur
Listasafn Íslands kl. 15
Leiðsögn í fylgd Dagnýjar
Heiðdal listfræðings um sýn-
inguna Í nærmynd/Close-up,
bandarísk samtímalist.
Mánudagur
Salurinn kl. 20 Danski
drengjakórinn er í söng-
ferðalagi um landið. Á efnis-
skrá hans eru danskir sálmar,
söngvar og þjóðlög, klassísk
verk, djass og swing. Með í för
er djasstríó, píanó, bassi og
trommur. Á tónleikunum syng-
ur einnig drengjakvartettinn
Vallargerðisbræður, en þeir
eru fyrrum kórsöngvarar í
Skólakór Kársness.
Hjallakirkja kl. 20 Sænski
kammerkórinn Cantando flytur
tónlist frá ýmsum tímabilum,
allt frá madrígölum til 20. ald-
ar verka frá Englandi, Þýska-
landi og Ítalíu og einnig nýrri
og eldri verk frá heimahög-
unum í Svíþjóð. Kórinn hefur
einnig fengið til liðs við sig tvo
hljóðfæraleikara bæði til með-
leiks og einleiks en það eru
þau Jakob Petrén, píanóleikari
og Ingibjörg Guðlaugsdóttir
básúnuleikari. Stjórnandi er
Sture Berg orgelleikari.
Þriðjudagur
Listasafn Íslands kl.
12.10–12.40 Leiðsögn í
fylgd Rakelar Pétursdóttur
safnfræðings um sýninguna
Í nærmynd/Close-up,
bandarísk samtímalist.
Listasafn Sigurjóns Ólafs-
sonar kl. 20.30 Á fyrstu
Þriðjudagstónleikum sumarsins
leika Hjörleifur Valsson fiðlu-
leikari, Tatu Kantomaa harm-
onikuleikari og Kristinn H.
Árnason gítarleikari verk eftir
tékkneska tónskáldið Vacláv
Trojan, þar á meðal svítan
Næturgali keisarans úr sam-
nefndri kvikmynd Jirí Trnka.
Kaffi Reykjavík kl. 21 Á
Skáldaspírukvöldi verður hafið
þemað að þessu sinni. Ólafur
Haukur Símonarson og Björn
Rúriksson lesa úr verkum sín-
um. Birna Þórðardóttir les úr
nýútkominni bók Benedikts S.
Lafleur, Baldur Gunnarsson og
Birna Þórðardóttir lesa úr bók-
um. Ágústína Jónsdóttir og
Tryggvi Líndal lesa ljóð. Auk
þess munu Benedikt S. Lafleur
og Björn Rúriksson kynna
stofnun Sjósundfélags Íslands.
Miðvikudagur
Háteigskirkja kl. 20.30
Kór Menntaskólans við
Hamrahlíð flytur hluta af efnis-
skrá sinni í tilefni af tónleika-
ferðalagi til Eistlands.
Fimmtudagur
Hallgrímskirkja kl. 12 Vil-
borg Helgadóttir sópran og
Kjartan Sigurjónsson orgel.
Juliet Booth og Christopher Herrick eru fyrstu gestirnir í tónleikaröðinni Sumarkvöld við orgelið.
TÓNLEIKARÖÐIN Sum-
arkvöld við orgelið í Hall-
grímskirkju er orðin fastur
liður í tónlistarlífi höfuð-
borgarinnar á þessum
skuggalausu sumardögum.
Enn á ný er það Listvina-
félag Hallgrímskirkju sem
býður uppá fjölbreytta tón-
leika í þessari tónleikaröð
fram til 15. ágúst. Fram-
kvæmdastjóri er sem fyrr
Erla Elín
Hansdóttir,
en listrænn
stjórnandi
er Hörður
Áskelsson.
Þetta er tólfta árið sem
pípur Klais-orgelsins hljóma
á þessari tónleikaröð. Eru
tónleikarnir alltaf með sama
sniði, Erla? „Nei ekki er það
nú alveg. Fyrst voru bara
orgeltónleikar á sunnudags-
kvöldum en síðan bættust
við hádegistónleikar á
fimmtudögum og laugardög-
um. Laugardagstónleikarnir
eru nokkurs konar undanfari
tónleikanna á sunnudags-
kvöldum en sami orgelleik-
arinn er á hvoru tveggja
þessum tónleikum. Stundum
leikur hann að hluta til sömu
efnisskrá, en stundum allt
annað. Við viljum gjarnan að
það séu einhver tengsl milli
þessara tónleika. Á fimmtu-
dögum eru alltaf íslenskir
orgelleikarar sem spila.
Stundum einir, stundum
með söngvara eða annan
hljóðfæraleikara með sér.“
Hvernig er staðið að val-
inu á organistunum?
„Við getum veitt okkur að
velja úr, því við fáum svo
gríðarlega margar beiðnir
um þátttöku. Við viljum
gjarnan fá einhverja organ-
ista frá Norðurlöndunum og
organista sem hafa skarað
framúr á tónleikum hjá okk-
ur. Til dæmis fáum við til
okkar í fjórða sinn hinn
heimskunna Christopher
Herrick frá Englandi. Hann
mun leika á fyrstu hádeg-
istónleikunum í dag kl. 12.
Með honum syngur breska
sópransöngkonan Juliet Bo-
oth. Christopher leikur síðan
glæsilega efnisskrá á fyrstu
kvöldtónleikum tónleikarað-
arinnar, annað kvöld kl. 20.
Við erum mjög heppin að fá
hann á ný en það liggur með-
al annars í því hversu frá-
bært orgelið er. Organistun-
um finnst mjög gott samspil
milli orgelsins og rýmisins í
kirkjunni, það finnst þeim
einnig eftirsóknarvert.“
Hvernig áheyrendur
sækja tónleikana?
„Fólk kemur á tónleika af
ýmsum ástæðum. Bæði er
um að ræða fastagesti sem
koma ár eftir ár og eins gesti
sem líta við fyrir forvitni
sakir. Mikið er um að erlend-
ir ferðamenn heyra óminn
innan úr kirkjunni og láta
freistast af góðum tónlistar-
flutningi. Þá veit ég um
nokkra ferðamenn sem stíla
sumarfríið sitt við tón-
leikana. Ég fæ t.d. tölvupóst
á hverju ári frá þýskum
manni sem vill vita hvað er í
boði og stjórnar komu sinni
eftir því.“
Hvað ber hæst í tónleika-
röðinni núna?
„Það er mjög margt. T.d
fáum við til okkar unga org-
anista sem hafa vakið mikla
athygli erlendis, m.a. Steph-
en Tharp, bandarískan virtú-
ós sem býr í Þýskalandi og
hefur vakið athygli fyrir frá-
bæra leiktækni. Hann er
þegar orðinn eftirsóttur
gestakennari. Frakkinn
Thierry Mechler heldur tón-
leika 4. júlí, frábær spuna-
meistari. Hann kemur hing-
að í annað sinn. Ég hlakka til
að heyra í honum á ný. Þá
heldur hinn ungi og efnilegi
Þjóðverji Christian Schmitt
tónleika 11. júlí. Hann kom
fram á 10 ára afmælishátíð
Klais-orgelsins í Hallgríms-
kirkju og verður gaman að
heyra hvernig eða hvort
hann hafi þróast síðan. Ís-
lensku fulltrúarnir í tón-
leikaröðinni að þessu sinni
eru Douglas A. Brotchie org-
anisti Háteigskirkju og Kári
Þormar organisti Áskirkju.“
Hafið þið einhver áhrif á
efnisval organistanna?
„Þeir koma með tillögu að
efnisskrá en oftast er þetta
samvinna. Núna t.d. báðum
við organistana líka að
skipta með sér Leipzig
sálmaforleikjunum eftir J.S.
Bach. Þeir eru 18 talsins.
Tveir þeirra eru með þremur
mismunandi útgáfum í þessu
safni. Christopher Herrick
spilar einmitt eitt þriggja út-
gáfu parið annað kvöld.
Flestir eru með tvo sálma-
forleiki og einhverjir með
einn. Auk sálmaforleikjanna
verða flutt nokkur af þekkt-
ustu orgelverkum Bachs auk
annarra kunnra verka.“
Þess má geta að á þessu
ári verður Klais-orgelið 12
ára og tími kominn á við-
haldsskoðun og hreinsun
þessa mikla hljóðfæris. Það
tekur sinn toll og þeir sem
koma á tónleikana leggja sín
lóð á vogarskálarnar.
Orgelhljómar á sumarkvöldum
STIKLA
Sumarkvöld
við orgelið
í Hallgríms-
kirkju
helgag@mbl.is
Myndlist
101 gallery, Hverfisgötu
18a: Hulda Hákon. Til 7.
júlí.
Gallerí Skuggi: Lokað
vegna sumarleyfa.
Gallerí Sævars Karls,
Bankastræti: Ari Svav-
arsson. Til 11. júní.
Gerðarsafn: Íslensk mál-
verk í einkaeign Dana. Til
20. júní.
Gerðuberg: „Allar heims-
ins konur“. Til 24. júní.
Grafíksalurinn, Hafn-
arhúsi: Ljósmyndasýningin
Íslandsljós. Ragnar Ax-
elsson, Árni Sæberg og
Guðmundur Ingólfsson. Í
Grófarhúsi eru ljósmyndir
Guðbjarts Ásgeirssonar. Til
3. júlí.
Hafnarborg: Anna Þóra
Karlsdóttir, Guðrún Gunn-
arsdóttir (TóTó). Jana Part-
anen. Marisa Navarro Ara-
son. Magnús Björnsson. Til
5. júlí.
Hallgrímskirkja: Steinunn
Þórarinsdóttir. Til 1. sept.
Hönnunarsafn Íslands,
Garðatorgi: Kristín Ísleifs-
dóttir. Til 30. júní. Hagvirkni,
húsbúnaður eftir íslenska
myndlistarmenn, 1904–
2004. Til 20. júní.
i8, Klapparstíg 33: Gabrí-
ela Friðriksdóttir. Til 26. júní.
Listasafn ASÍ: Guðrún Vera
Hjartardóttir, Helga Ósk-
arsdóttir og Ingibjörg
Magnadóttir. Til 4. júlí.
Listasafn Akureyri: Kenj-
arnar eftir Goya. Til 14. júlí.
Listasafn Árnesinga:
Kristján Guðmundsson. Til
11. júlí.
Listasafn Íslands: Í nær-
mynd Close-up, bandarísk
samtímalist. Til 27. júní.
Listasafn Ísafjarðar:
Spessi. Til 1. ágúst.
Listasafn Einars Jóns-
sonar: Opið alla daga,
nema mánudaga, kl. 14–17.
Til 15. sept.
Listasafn Reykjavíkur –
Ásmundarsafn: Maðurinn
og efnið. Yfirlitssýning. Til
2006.
Listasafn Reykjavíkur –
Hafnarhús: Þorvaldur Þor-
steinsson. Til 8. ágúst. Ný
safnsýning á verkum Errós.
Listasafn Reykjavíkur –
Kjarvalsstaðir: Francesco
Clemente. Roni Horn. Til 22.
ágúst.
Listasafn Reykjanes-
bæjar: Margrét Jónsdóttir.
Til 20. júní.
Listasafn Sigurjóns
Ólafssonar: Listaverk Sig-
urjóns í alfaraleið. Til 5. sept.
Opið alla daga, nema
mánudaga, kl. 14–17. Til 1.
okt.
Ljósmyndasafn Reykja-
víkur, Grófarhúsi: Finnsk
samtímaljósmyndun. Til 29.
ágúst.
Safnasafnið, Svalbarðs-
strönd: 11 nýjar sýningar.
Safn – Laugavegi 37: Op-
ið mið.–sun. kl. 14–18. Sum-
arsýning úr safnaeign. Mar-
grét H. Blöndal. Til 20. júní.
Leiðsögn alla laugardaga.
Safn Ásgríms Jónssonar:
Þjóðsagnamyndir Ásgríms
Jónssonar.
Skriðuklaustur: Fantasy
Island. Samsýning 8 lista-
manna. Til 25. júní.
Slunkaríki, Ísafirði:
Tryggvi Ólafsson. Til 4. júlí.
Þjóðmenningarhúsið:
Handritin. Heimastjórn
1904. Þjóðminjasafnið –
svona var það. Eddukvæði.
Til 1. sept.
Þjóðarbókhlaða: Heima-
stjórn 100 ára.
Landsbókasafn Íslands –
Háskólabókasafn: Hand-
band á Íslandi 1584–2004.
Söguleg sýning á útgáfu
Guðbrandsbiblíu 1584 til
vorra daga. Til 31.ágúst.
Leiklist
Þjóðleikhúsið: Athygl-
isverðasta leiksýning ársins.
Leikdeild Umf. Eflingar, lau.
Edith Piaf, fös.
Borgarleikhúsið: Chi-
cago, lau.
MYNDLISTARSÝNING Valgarðs Gunnarssonar verður opnuð á
menningarhátíð BSRB í Munaðarnesi kl. 14 í dag. Við opnunina
munu Álftagerðisbræður syngja og Anna Kristín Arngrímsdóttir
leikkona lesa upp. Þá mun Ögmundur Jónasson, formaður BSRB,
flytja ávarp.
Valgarður Gunnarsson fæddist í Reykjavík 1952. Hann stund-
aði nám við Myndlista- og handíðaskóla Íslands 1975–1979 og
Empire State College í New York 1979–1981. Valgarður hefur
haldið 19 einkasýningar og verið þátttakandi í fjölda samsýninga
bæði hér á landi og erlendis. Fjölmörg verka hans eru í opinberri
eigu.
Sýningin verður opin á afgreiðslutíma veitingasalarins í þjón-
ustumiðstöðinni.
Valgarður Gunnarsson listmálari á vinnustofu sinni.
Menningarhátíð BSRB