Íslendingaþættir Tímans - 07.02.1973, Side 1
ISLENDINGAÞÆTHR
Miðvikudagur 7. febr. 6. tölublað 6. árg. Nr. 91 TIMANS
Ragnar Ásgeirsson
garðyrkjuráðunautur
Það mun hafa verið nálægt þvi, er
fyrsta áratug þessarar aldar var að
ljúka, eða i byrjun hins annars, er
Búnaðarfélag Islands kom á fót þeirri
fræðslustarfsemi meðal bænda, er
bændanámskeið nefndust. Þetta var
merkisatriði i starfsemi félagsins og
var mjög vel tekið af bændum og öðru
sveitafólki. Þá voru fáir, sem numið
höfðu búvisindi i erlendum háskólum.
En þeir fáu, sem fóru á þessa braut,
voru hvort tveggja i senn góðum gáf-
um gæddir og miklir áhugamenn um
landbúnaðarmál. Þeir skipuðu þvi sæti
sin með sóma og áorkuðu miklu i
búnaðarframförum. En þá voru þrir
búnaðarskólar á landi voru og vel sótt-
ir þrátt fyrir það að búfræðingsnafnið
var af mörgum fyrirlitið drjúgan spöl
fram á þessa öld. Um marga undan-
farna áratugi hafa þeir aðeins verið
tveir. t fullan aldarfjórðung er buið að
tala um að koma þeim þriöja á fót. Sú
framkvæmd situr enn viö orðin tóm.
Bændanámskeiðin stóðu fulla viku
og voru mjög fjölsetin. Búvisinda-
mennirnir, þótt fáir væru, stóðu sig vel
og töluðu ekki fyrir daufum eyrum.
Stúdentafélag Reykjavikur lagði nám-
skeiðum gott lið sendi menn til fyrir-
lestra á hvert námskeið, vitanlega
ekki búfróðan mann, en bændum hefur
löngum þótt forvitnilegt að skyggnast
um viðar en á búskaparsviðinu.
Stundum kom verkfræðimenntaður
maður. Það var eins og ljós i hinu
verklega þekkingarleysi. Allan lið-
langan daginn voru fyrirlestrar fluttir
og umræðufundir á kvöldin. Þá drógu
menn ekki af sér.
Þetta voru mestu vakningasam-
komur, ekki eingöngu búfræðilega séð,
heldur lika á ýmsum öðrum sviðum,
meðal annars i þjóðmálum. Er sá at-
burður merkilegastur, er gerðist á
bændanámskeiði, serri haldið var i
Þjórsártúni þegar stofnaö var til
Samtaka óháðra bænda. Þar
hafði Gestur á Hæli forystuna. Sam-
tökin báru fram lista við landskjörs-
kosningar sumarið eftir og komu
manni að, sem steig árið eftir upp i
ráðherrastól. Það var norðlenzkur
bóndi, sem þarna var á ferð, Sigurður
á Yztafelli. Agúst i Birtingaholti var i
öðru sæti á listanum og komst seinna á
þing. Ég get þess arna til að bregða
upp ofurlitlu dæmi, sem sýnir, hve
merkar samkomur bændanámskeiðin
voru. Og ég segi meira. Þarna var fræ-
inu sáð i fyrsta sinn, sem upp af spratt
hinn mikli pólitiski . meiður,
Framsóknarflokkurinn.
Siðasta bændanámskeiðið af þessari
gerð var haldið i Tryggvaskála i nóv.
1921. Það stóð i viku og var að sumu
leyti nokkuð sögulegt. Sú saga verður
ekki sögð hér. Námskeiðiö var fjöl-
mennt og vel lærðir og vaskir menn,
sem höfðu leiðsögu i búnaðarfræðum.
Mesta eftirtekt vöktu tveir ungir
menn, sem báöir komu til Búnaðar-
félags Islands árið áður, 1920, sem
ráðunautur þess. Þeir höfðu báðir sótt
búfræðimenntun sina til Danmerkur,
annar almenn búvisindi, Eyfirðingur-
inn Valtýr Stefánsson, skólameistara
á Akureyri, hinn stundaði garðyrkju-
nám, Ragnar Ásgeirsson, fæddur
Mýramaður, en Reykvikingur að upp-
eldi að nokkru leyti. Þessir ungu menn
höfðu frá mörgu að segja, bæði fræði-
lega og af öðrum toga spunnið. Man ég
það, að Ragnar sagði okkur eitt kvöld-
ið brúðkaupsferðasögu sina suður um
Evrópu, alla leið til Rómaborgar.
Honum tókst vel að hverfa með okkur
um óravegu aldanna til þess tima,
þegar Rómaveldi var öll veröldin og
Rómaborg höfuðborgin. En hann gekk
lika með okkur um stræti Rómar og
listasöfn eins og þá var umhorfs þar,
er hann var þar á ferð. Þessir tveir
ungu menn, Ragna og Valtýr, komu
jafnsnemma til Búnaðarfélagsins. En
mjög skipti sköpum um starf þeirra
þar, þvi að 1923 ræðst Valtýr til
Morgunblaðsins og gerist aðalritstjóri
þess, og þaðan vék hann ekki fyrr en
vanheilsa skákaði honum frá störfum
fyrir aldur fram. En Ragnar fór
hvergi og stóð ekki upp frá starfi sinu
hjá Búnaðarfélaginu fyrr en eftir 51 ár
og hefur enginn ráðunautur félagsins,
átt svo langan starfsaldur að baki sér
sem hann.
Ragnar Ásgeirsson var fæddur 6.
nóv. 1895 að Kóranesi á Mýrum. For-
eldrar hans voru hjónin Ásgeir
Eyþórsson, kaupmaður þar og i
Straumfirði, siöar bókhaldari i
Reykjavik og kona hans, Björg
Matthiasdóttír frá Holti i Reykjavik.
Fimm ára gamall fluttist hann meö
foreldrum sinum til Reykjavikur og
ólst þar upp og þó ekki samfellt, þvi