Íslendingaþættir Tímans - 21.03.1973, Síða 1
ÍSLENDINGAÞÆTTIR
Miðvikudagur 21. marz 17. tölublaðö. árg. Nr. 102. TIMANS
Sextugur:
Daníel Ágústínusson
bæjarfulltrúi, Akranesi
18. marz fyllti sjötta tug æviáranna
Danlel Agústlnusson, bæjarfulltrúi á
Akranesi, en hingað fluttist hann 1954,
er hann gerðist hér bæjarstjóri.
Ekki er meiningin að þetta greinar-
korn verði nokkur æviminning, til þess
er maðurinn of ungur, og við vinir
hans og samherjar trúum þvi og von-
um, að enn eigi hann eftir að bæta
merkum köflum við ævisöguna, þar til
öll er.
Svo sem kunnugt er, hafa störf
Daniels aðallega verið á þrem sviðum,
þ.e. uppeldis- og kennslumála, félags-
mála, svo sem iþrótta- og ungmenna-
félaga, og loks stjórnmála, en allir
hafa þessir þættir verið meira og
minna samofnir, bornir uppi og unnir i
anda ungmennafélagshugsjóna, er á
uppvaxtarárum hans gagntók hugi svo
margra æskumanna, er siðar á lifs-
leiðinni hafa markað djúp spor i sögu
þjóðarinnar, og þá sérstaklega fyrir
atbeina þeirra stjórnmálasamtaka, er
Daniel hefur alla tið verið skeleggur
baráttumaður fyrir, en þar á ég við
Framsóknarflokkinn, sem byggður
var upp og jafnan hefur starfað á þeim
grunni, er ungmennafélögin upphaf-
lega ruddu.
Vissulega hefur það verið mikils
virði fyrir þessar félagsmálahreyfing-
ar, er ég hef hér drepið á, að eiga á að
skipa svo ósérhlifnum og kraftmiklum
forsvarsmanni og Daniel er, það
þekkjum við bezt, sem með honum
höfum starfað á þeim sviðum, allt frá
þvi að hann flutti hingað fyrir tæpum
tveim tugum ára.
1 bæjarstjóratið Daniels urðu hér á
Akranesi meiri framfarir og uppbygg-
ing en á nokkrum öðrum tima I sögu
bæjarins, og var það mikið ólán, er
honum var á svo ómaklegan hátt bægt
frá þvi starfi, þó eigi verði sú saga
rakin frekar hér.
Alla tið frá þvi Daníel flutti hingað,
hefur hann verið formaður Framsókn-
arfélagsins hér i bæ og gegnt fjölmörg-
um trúnaðarstöðum i þágu flokksins,
bæði hér innanbæjar og á landsmála-
sviðinu, þar á meðal setið nokkrum
sinnum á Alþingi sem varaþingmaður.
Hefur hann sýnt þar að eigi hefur á þvi
sviðiveriðum neinn miðlungsmann að
ræða, þannig rækir hann öll sin störf,
aö eftirtekt vekur.
A þessum afmælisdegi vil ég fyrir
hönd Framsóknarfélags Akraness
þakka samstarfið og óska afmælis-
barninu allra heilla á ókomnum árum
og að framvegis sem hingað til veröi
stefnumiðið hið sama og ungmennafé-
lögin orðuðu svo: íslandi allt.
Engum er meiri þörf en félagsmála-
foringjum og stjórnmálamönnum, að
eiga fagurt og friðsælt heimili. Þeirrar
hamingju hefur Daniel orðið aðnjót-
andi I rlkum mæli, fyrir atbeina sinnar
ágætu konu, önnu Erlendsdóttur og
barnanna tveggja, Erlends og Ingileif-
ar, sem á hefur sannazt málsháttur-
inn: Sjaldan fellur eplið langt frá eik-
inni.
beir verða þvi margir, sem i dag
minnast gestrisni og ánægjulegra
samverustunda á heimili þeirra hjóna,
og munu, svo sem ég og kona min,
færa þeim hugheilar þakkir fyrir
ógleymanleg kynni á liðnum árum,
svo og óskir um heill og hamingju á
ókomnum timum.
Guðmundur Björnsson.