Íslendingaþættir Tímans - 25.10.1973, Side 8
Sjötugur:
Eiríkur Sigurðsson
fyrrverandi skólastjóri
Einn af mætustu mönnum þessarar
samtiðar, Eirikur Sigurðsson fyrrv.
skólastjóri og rithöfundur á Akureyri á
sjötugsafmæli i dag. Hann er aust-
firzkrar ættar og af ágætum rótum
runninn, enda sjálfur miklum mann-
kostum búinn. Áður heilsaði ég honum
sextugum, en nú ætla nú að biðja ls-
lendingaþætti Timans fyrir þessa ör-
stuttu kveðju.
Eirikur varð samverkamaður minn
við Barnaskóla Akureyrar 1933 og til
þess er ég lét þar af störfum 1947. Og
yfirkennari varð hann hjá eftirmanni
minum, Hannesi J. Magnússyní. og
skólastjóri hins nýja skóla á Oddeyr-
inni fyrstur manna, en lét þar af störf-
um fyrir nokkrum árum.
Eiriki Sigurðssyni fórust öll skóla-
störf prýðilega úr hendi. Á ég honum
margt og mikið að þakka frá okkar
samstarfsárum, árvekni hans og
drengileg hollusta var frábær, og
starfsgleði hans, hlýtt viðmót og skiln-
ingsrikt hugarfar átti hann i rikum
mæli, svo að nemendum hans þótti
vænt um hann, eins og raunar öllum
þeim, er af honum hafa haft einhver
kynni, að ég hygg.
Eirikur Sigurösson er mikill félags-
hyggjumaður og ann öllu. sem má til
heilla horfa einstaklingi og heild. Hefir
hann unnið mikið að bindindismálum
i félögum á Akureyri, einlægur og
sannur, og verið þar hollur og hógvær
ráðgjafi og vinur. Er mér ekki sizt
minnisstætt samstarf okkar að bind-
indismálum með unglingum á sinni
tið.og hversu vaskur maður og ágætur
hann reyndist þá. Og um langa hrið
var hann i stjórn Kennarafélags Eyja-
fjarðar, hefir margt skrifað um skóla-
mál, verið meðritstjóri barnablaðsins
Vorið um áratugi og ritað þar marga
heilsusamlega hugvekju fyrir börn og
unglinga. Nú þyrfti þjóðin á þúsundum
slikra manna að halda.
Eirikur Sigurðsson hefir skrifað
margar góðar barnabækur og þýtt enn
fleiri og það hafa þau hjón, Jónina
Steinþórsdóttir, gert bæði. Og enginn
mun efast um það, að þetta sé hollt les-
efni fyrir yngstu kynslóðina. Lika hefir
Eirikur ritað bók um Góðtemplara-
regluna á Akureyri, bók um
listamanninn Rikharð Jónsson, o.fl.
Og nú þakka ég vini minum Eiriki
Sigurðssyni samstarf og samfylgd og
bið honum og heimili hans blessunar
allar stundir.
Snorri Sigfússon
15/10 '73.
Sigurborg Eyjólfsdóttir
Nýjabæ, Neskaupstað
ÞANN 25. ágúst siðast liðinn lézt i
sjúkrahúsinu iNeskaupstað Sigurborg
Eyjólfsdóttir. Hún fæddist 19.10. árið
1900 i Sandvik.dóttir hjónanna Jóhönnu
Stefánsdóttur og Eyjólfs Eyjólfssonar.
Faðir hennar dó, er hún var aðeins
fimm ára gömul. Frá Sandvik fluttist
fjölskyldan að Seli i Hellisfirði. Erfitt
hefur lifið verið fyrir ekkjuna með 8
börn á framfæri, en sterk trú og hörð
barátta fyrir lifinu hafa hér sem oftar
á þeim timum lyft þeim grettistökum,
sem vert er að minnast.
Á Seli i Hellisfirði dvaldist fjöl-
skyldan þar til Sigurborg var 19 ára,
en þá fluttist hún til Neskaupstaðar.
Tuttugu og fjögurra ára gömul fór
Sigurborg með bræðrum sinum á
vetrarvertið til Vestmannaeyja, og
þar kynntist hún eftirlifandi manni
sinum. Antoni Lundberg, er komið
hafði þangað frá Vestfjörðum. Á N’orð-
firði stofnuðu þau heimili sitt árið 1925,
og þar lifðu þau i hamingjusömu
hjónabandi i 48 ár. Þeim varð þriggja
barna auðið, sem öll eru búsett f Nes-
kaupstað. Hafa þau systkin hlotið i arf
frá foreldrum manndóm og dreng-
skap, og með fjölskyldunni rikti eining
og kærleikur. Alltaf var ánægjulegt að
koma á heimili þeirra.
Framhald á 7. siðu.
8
islendingaþættir