Íslendingaþættir Tímans - 02.11.1974, Page 1
ÍSLENDIINIGAÞATTIR
Laugardagur 2. nóvember 1974 — 34. tbl. 7. árg. Nr. 185
TIMAIVIS
Þorsteinn Sigurðsson
bóndi á
Yatnsleysu
Þorsteinn Sigurðsson, bóndi á
Vatnsleysu, varð bráðkvaddur á götu i
Reykjavik þann 11. okt sl. Hann fædd-
ist á Vatnsleysu 2. des. 1893 og átti þar
alltaf heimili.
Foreldrar hans voru Sigurður
Erlendsson bóndi þar og kona hans
Sigriður Þorsteinsdóttir. Faðir hennar
var Þorsteinn bóndi á Reykjum á
Skeiðum, Þorsteinssonar bónda i
Brúnavallakoti. Móðir Sigriðar var
Ingigerður Eiriksdóttir, bónda og
dannebrogsmanns á Reykjum, Eirlks-
sonar bónda þar, Vigfússonar. Erlend-
ur faðir Sigurðar á Vatnsleysu var Er-
lendsson bónda á Vestari-Hellum i
Flóa, Erlendssinar, Jónssonar. Móðir
Sigurðar var Arndis Sæmundsdóttir,
einnig bóndi á V-Hellum Jónssonar.
Var Þorsteinn i ættir fram Árnesingur
og merkra ætta, þótt hér verði ekki
rakið lengra.
Þorsteinn ólst upp i foreldrahúsum.
Hann var einkasonur. Vandist ungur
öllum bússtörfum, naut uppeldis trú-
aðra foreldra, þar sem kristin trú og
reglusemi var i hávegum höfð, og fylgi
þaö honum alla tið. Hann stundaði
nám við bændaskólann á Hvanneyri og
lauk þvi vorið 1915 i hópi óvenjulega
glæsilegra skólafélaga. Fór utan til
Noregs vorið 1919, og var þar á Jaðr-
inum við verklegt búnaðarnám um
sumarið, en fór i lýðháskólann á Voss
til Lars Eskeland, hins frábæra skóla-
manns, og var hann þar veturinn 1919-
1920, og kom heim að þvi námi loknu.
Þorsteinn hlaut óvenjulega góða
undirbúningsmenntun undir bónda-
starfið. Hann var námfús og hafði hug
á að læra meira, en fjárhagur leyfði
það ekki. Ennþá er þó ótalinn einn
skólinn, sem Þorsteinn gekk á og
stjórnaði sjálfur lengi, ef svo má
segja. Það er ungmennafélag Biskups-
tungna, en það var, eins og önnur ung-
mennafélög, menningarstofnun, sem
kenndi mönnum að starfa saman að
framfaramálum sveitar, lands og
þjóðar. Þorsteinn var einn af stofnend-
um þess og i áratugi i stjórn þess og
lengst af formaður. Þar komu greini-
lega i Ijós, glæsilegir forystuhæfileikar
hans.
Þorsteinn hóf búskap sem leiguliði á