Íslendingaþættir Tímans - 02.11.1974, Page 3

Íslendingaþættir Tímans - 02.11.1974, Page 3
leysu er athugaður, mun það verða fyrst fyrir flestum, sem hlotið hafa ræði á sama aldarfarinu og hann, að hugsa til þeirrar gifurlegu byltingar, sem gerst hefur á þvi skeiði. Hann og jafnaldrar hans, sem oft eru með full- um rétti nefndir aldamótakynslóðin, eru fæddir undir erlendum yfirráðum. Þeir settust að leifum verzlunaráþján- ar, þótt i orði kveðnu væri verzlunin gefin frjáls fyrir fáum áratugum, þeg- ar þeir sáu daginn fyrst. Ungmennafélögin risu á legg, með- an Þorsteinn var enn á unglingsaldri, hrifnæmur og dreyminn svo af bar. Þá þætti átti hann rika og ræktaði i fari sinu til leiðarloka. Hann gekk i hrifn- ingu hugsjónum þeirra á hönd þegar i öndverðu, og brást þeim aldrei. Lik- legt er, að islenzka æsku hafi aldrei dreymt fegurri né djarfari drauma en þá, þótt nú séu þeir vegnir og léttvægir fundnir. En þá gleymist að leggja fá- tækt þjóðarinnar á metaskálarnar. Skaphitinn og hrifnæmið setti svo sinn sérstæða menningar- og mannræktar- svip á Þorstein, hvar sem hann kom fram, að athygli vakti. Það skipaði honum ætið i fremstu röð, hvort sem um sókn eða vörn fyrir félags- og framfaramál var að ræða, eða setið var á gleðifundi. Hann var glæsimenni, fullhugi til afls og áræðis, ágætur ræðumaður, is- lenzkan hrein og myndrik, röddin hrein, þýð og björt, og þó gædd þeim þrótti, sem nægði til að fylla sali. Hann var kappgjarn, ef honum fannst vegið að hugðarmálum sinum, og gat þá sviðið undan vopnaburði hans, ef hann var i sókn eða vörn. Auðshyggja setti aldrei svip sinn á hug hans né háttu. Hún var fjarri eðli hans. Þorsteinn kvæntist 18. nóv. 1922 Agústu Jónsdóttur frá Gröf i Bitru. Þeim varð niu barna auðið, og eru átta á lifi. Það mun alþjóð ljóst, að maður, sem til svo margs er kvaddur i félags- málum samtiðar sinnar, muni ekki alltaf nærtækur, þegar heimastörf heimta. Þeim mörgu, sem komið hafa að Vatnsleysu undanfarna áratugi, mun flestum ljóst, að heimaannir hafa ekki að jafnaði staðið forsjárlausar i fjarvéru hans, jafnvel þótt langdvöl- um væri. Þeim, sem risnu þeirra nutu, var og ljóst, að hún hlóð borðin, þótt rausnin væri beggja. Hún tendraði eld- ana á arni þeirra hlýja og bjarta heim- ilis. Það voru þeirra sameiginlegu eld- ar gleði og vinhlýju, sem fögnuðu gest- unum svo innilega. En þegar litið er yfir svo langan veg við þessi leiðaskil, má það ekki gleymast, að hún bar niu börn undir brjósti, nærði þau ósjálf- bjarga og klæddi, vakti við vógguna, leiddi þau fyrstu skrefin, að þvi þó íslendingaþættir ógleymdu, sem æska og óstýrilæti heimtuðu i sinn hlut af móðurást og móðurönnun,, þegar aldur og þroski gelgjuskeiðsins hösluðu sér völlinn. En æskan og ærslin urðu lika stundum að höfuðstyrk heimilisins, undir stjórn hennar. Það má heldur ekki gleymast, að Þorsteinn var flestum mönnum fágaðri i háttum og ytri gerð. Sú fágun var að drjúgum hluta flutt að heiman og ræktuð þar, enda vist, að hún átti sameiginlegar rætur I sálum beggja. Þegar ég virði þessi mál fyrir mér, þótt úr nokkurri fjarlægð sé, hygg ég að það sé fyrst og fremst hjónabandið, sem gerði Þorstein á Vatnsleysu að þvi hamingjubarni, sem hann mun hafa verið sina löngu og annríku ævi. Þorsteinn verður mörgum minnis- stæður sem hrókur alls fagnaðar, þeg- ar til sliks var efnt. Hann var söngvinn svo af bar og átti ungur yfir að ráða björtum tenór. Hann var svo sjálfkjör- inn forsöngvari i fagnaðarhófi, að hann átti visan þjóðkór, ef hann veif- aði tónsprota, enda þurfti þess ei ætið við. Þá valt það ekki á neinu, þótt hann stæði með „tvær hendur tómar”. Hann stjórnaði Karlakór Biskupstungna um alllangt skeið. Heimili kórsins varð á Vatnsleysu. Þangað var komið til söngnáms og æfinga. Þarf ekki djúpt að grafa, svo ljóst verði, að ekki hefur önn húsfreyjunnar létzt á höndum við þær heimsóknir. En þær fluttu gleði I bæinn og samhug um sveitina. Söngur inn var Þorsteini lifsnautn — svölun. Hann kvaðst taka af heilum hug undir með Björnstjerne Björnson: Söngurinn göfgar, hann lyftir i ljóma lýðanna striðandi þraut. Söngurinn vermir og vorhug og blóma vekur á köldustu braut. Sönguiinn yngir, við ódáins hljóma aldir hann bindur og stund, hisminu breytir i heilaga dóma hrjóstrinu i skfnandi lund. 1 haust voru 54 ár liðin siðan við Þorsteinn hittumst fyrst. Ég dróst þá þegar að þessu óvenju drengilega og glaða glæsimenni og fannst þá, að ég mundi frekar kjósa fylgd hans en flestra annarra. Nú virðist mér að ævireynslan hafi sannað, að hrifningin var ekki aðeins tengd þvi augnabliki. Hún hefur sannað, að samferðamenn- irnir hafa kosið — ekki aðeins fylgd hans, heldur og lika forystu hans á mörgum og löngum samferðalögum. Við sáumst siðast við kaffiborð starfs- félaganna við Búnaðarfélag íslands, örskammri stund áður en saga hans var öll. Við hentum enn á milli okkar gamanyrðum, eins og norður á öræf- um fyrir meira en hálfri öld. Við kvöddumst þar við borðið trúlega báð- ir grunlausir um, að sú kveðjan yrði hin siðasta. Nú endurtek ég mina i hljóðri og hlýrri þökk. Guðm. Jósafatsson — frá Brandsstöðum f Það verða ekki talin ný sannindi, þótt ég segi, að heimilið sé grððurreit- ur einstaklingsins og hornsteinninn i þjóðfélagsbyggingunni. Það er einnig minnsta, en áreiðanlega mikilvægasta samfélagið, sem lifað er I. Þó getur þetta samfélag orðið stærra, traustara og betra, ef tvö heimili verða eins og eitt. Þannig hefur það verið á Vatns- leysu i meira en 50 ár. Hinn óumflýjanlegi förunautur lifs- ins hefur með stuttu millibili vitjað heimilanna á Vatnsleysu og kallað burt systkinin Kristinu.sem lézt hinn 30. júni s.l., og Þorstein, er andaðist hinn 11. otkóber. Þar standa nú tvö auð rúm. A hugann leitar tregablandinn söknuður. En lifsins mikla sigurverk segir okkur, að maður komi i manns staö og af rótinni vaxi sprotinn. Þeim, sem eftir lifa, er ætlað að hefja merki hins fallna og bera það fram á við. Það verður þó ekki vanda- laust að þera merki hins mikilhæfa foringja og baráttuglaða félags- hyggjumarths, Þorsteins á Vatsnleysu. Þorsteinn fæddist að Vatnsleysu 2. desember 1893, einkasonur og elztur fjögurra barna Sigriðar Þorsteinsdótt- ur og Sigurðar Erlendssonar, bónda á Vatnsleysu. Að allra dómi voru þessi heiðurshjón traust, æðrulaus og um- fram allt trú i lifsstarfi sinu. Mér er sagt að þau hafi lagt mikla áherzlu á það að ala börn sin upp I guðstrú og góðum siðum. Þau munu hafa vænt sér mikils af syninum, og fengu bæði að lifa það að sjá upphafið að starfsferli hans. Þorsteinn var sem drengur einráð- inn i að yrkja þann reit, sem feðurnir skópu honum, og fórna siðan þeirri stétt, sem hann, og reyndar islenzka þjóðfélagið voru sporttin úr, bænda- stéttinni, öllum kröftum sinum. Hann vissi I upphafi, að viðskiptin við jörð- ina eru hægfara, en örugg, sé að þeim unnið af trúmennsku. Starf bóndans var ekki, og er ekki enn, vænlegt til að safna veraldarauði, enda var auðsöfn- un aldrei á stefnuskrá Þorsteins á Vatnsleysu, heldur miklu fremur hitt, 3

x

Íslendingaþættir Tímans

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Íslendingaþættir Tímans
https://timarit.is/publication/303

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.