Íslendingaþættir Tímans - 23.11.1974, Blaðsíða 8

Íslendingaþættir Tímans - 23.11.1974, Blaðsíða 8
Tveir verkstjórar sextugir Jón Jónsson og Guðmundur Maríasson Jón Jónsson verkstjóri á afgreiðslu Eimskipafélags tslands og Skipaút- gerðar rikisins á Akureyri fæddist á Akureyri 15. ágúst 1914 og Guðmundur Mariasson verkstjóri á afgreiðslum sömu skipafélaga á Isafirði fæddist að Kolsá i Grunnavikurhreppi 4. septem- ber sama ár. Þessir sómamenn hafa þvi nýverið fyllt sex tugi ára á lifskeiði sinu. Báðir eiga þessir menn það sameig- inlegt að vera mjög hlédrægir menn, en hjálpfúsir og liprir þegar sliks ger- ist þröf. Við, sem um lengri eða skemmri tima höfum starfað á kaup- skipum getum allir borið þar að. Báöir þessir heiðursmenn völdu að hafa kyrrð um þessi merku timamót ævi sinnar. En hjá þvi verður naumast komizt að nú eftir á sé þessa getið litil- lega. Vil ég fyrir allra farmanna hönd, sem leið hafa átt til áðurgreindra hafna færa þessum mönnum báðum beztu heilla- og hamingjuóskir, með þakklæti fyrir samstarf og aðstoð á Jón Jónsson. liðnum árum, og alveg sérstaklega ber að þakka kunningsskap og vináttu sem myndazt hefur og aldrei rofnar, já aldrei rofnar fyrst og fremst vegna drengskapar þeirra. Ég veit að bæði afmælisbörnin æskja ekki mikils máls eða langdregins vegna þessara timamóta, en eins og áöur er getið er óhjákvæmilegt annað en að minnast þeirra nokkuð hér. Skal ég leitast við að vera stuttorður. Jón Jónsson verkstjóri á Akureyri er sonur hjónanna Guðnýjar Jóhanns- dóttur og Jóns Sigurðssonar skipa- smiðs á Akureyri. Þegar ég var barn að aldri man ég að mikill kunnings- skapur var á milli foreldra minna og foreldra hans, enda vorum við nábúar. Um skeið var Jón settur til fósturs að Syðra-Koti i Möðruvallasókn, en um fermingu er hann alkominn til Akureyrar. A árinu 1932 hefst hans raunverulega ævistarf, þvi þá fer hann að vinna hjá hinum mikla sómamanni Jakobi Karlssyni, sem rak skipa- afgreiðslu fyrir Oliuverslun íslands og fleira. Afgreiðsla Rikisskip og Eim- skip á Akureyri ber enn þann dag i dag nafn þessa mikla atorkumanns, en er nú i formi hlutafélags. Jakob Karlsson lézt árið 1957. Jón Jónsson hefur frá árinu 1932 starfað við skipaafgreiðslu þessa fyrirtækis, og man ég það og hef fengið staðfest siðar, að Jakobi Karlssyni féll strax vel við Jón i starfi hjá sér, enda er maðurinn bráð heiðarlegur, dugleg- ur og réttsýnn. Eftir 15 ára starf verður Jón verkstjóri við skipa- afgreiðsluna og hefur verið það siðan, og I verkstjórastarfinu hefur Jón ekki brugðizt fyrra trausti húsbænda sinna. Kvæntur er Jón Brynhildi Jónsdótt- ur frá Tungu i Skagafirði. Guömundur Mariasson er sonur hjónanna Mariasar Jakobssonar sjó- manns og Guðrúnar Jónsdóttur frá Snæfjallaströnd. Guðmundur ólst upp að Gullhúsá við Snæfjallaströnd (þar sem Lási kokkur fæddist) en fluttist til Isafjarðar árið 1950 og stundaði ýmis- konar vinnu þar bæði til sjós og lands uns hann varð verkstjóri við afgreiðslu Eimskips á Isafirði, en á Isafirði er ekki sami aðili með afgreiðslu þessara Guðmundur Maríasson. tveggja skipafélaga, en Guðmundur hefur til þessa dags gegnt báðum þess- um störfum. Kvæntur er Guðmundur Unni Kristjánsdóttur frá Helgafellssveit i Breiöafirði. Við Guðmundurkynntumst ekki fyrr en hann byrjar störf við afgreiðslu Rikisskips árið 1958, og þvi get ég ekki þrætt feril hans af eigin kunnugleika aftur fyrir þann tima eins og með Jón, en heiðarleiki, dugnaður og réttsýni Guðmundar er sú sama og Jóns. Eins og fram kemur i upphafi ér þaö gegn vilja afmælisbarnanna að rita um þá langt mál, eða þræða lifsferil þeirra lið fyrir lið gegnum sex áratugi, og þvi hef ég haldið mér við þaö sem við á farskipum þekkjum og vitum, en þó i stuttu máli. Ég veit að ég tala fyrir hönd allra farmanna þeg- ar ég þakka alit á liðnum árum og óska þeim og f jölskyldum þeirra allra heilla og blessunar um öll Ikomin æviár. Kveðjuorð min verða hin sigildu lokaorð: Lifiö heilir sem lengst heiðursmenn. Böðvar Steinþórsson. islendingaþættir 8

x

Íslendingaþættir Tímans

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Íslendingaþættir Tímans
https://timarit.is/publication/303

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.