Íslendingaþættir Tímans - 11.10.1975, Blaðsíða 1

Íslendingaþættir Tímans - 11.10.1975, Blaðsíða 1
Sigurjón Guðmimdsson f r amkv æmdast j óri Það er lögmál lífsins, að þvf lengur sem maður lifir, þeim mun fleiri vin- um og samfyigdarmönnum verður maður að sjá á bak. Nii nýlega urðum viö að horfa á eftir Sigurjóni Guðmundssyni, sem hvarf yfir móð- una miklu.við höfðum þó sannarlega vænzt þess að njóta samfylgdar hans lengur, þvi að hann var svo ungur I anda og frisklegur, þó að hann væri nýlega byrjaður að kllfa áttunda ára- tuginn. En hér gildir sem fyrr, að enginn ræður sinum næturstað. Þegar ég kveð Sigurjón Guðmunds- son, er margs að minnast frá langri samleið en þvi miður gat ég eigi verið viðstaddur, er útför hans var gerð. Ég sá hann fyrst á Akureyri veturinn 1929—’30, er ég gekk i félag ungra framsóknarmanna, sem stofnað hafði verið þá um veturinn að frumkvæði Sigurjóns, og var fyrsta ungliðafélag Framsóknarfl. Persónuleg kynni okkar Sigurjóns urðu þó þá lltil sem engin, enda hvarf hann þá um vorið til Reykjavikur og gerðist fyrsti erind- reki Framsóknarflokksins. Mér er þó minnisstæður einn fundur i félagi ungra framsóknarmanna. Þar var umræðuefnið: Hvers vegna er ég framsóknarmaður? Sigurjón var ekki frummælandi, en hann flutti ræðu á fundinum, sem vakti þá athygli mina, að ég man eftir henni enn i dag, fyrst og fremstfyrir það, hve hún var ein- læg. En niðurstaða hans var sú, að hann hefði ekki getað orðiö neitt annað en framsóknarmaður og gæti aldrei orðið annað en framsóknarmaður. Þetta reyndust orð að sönnu. Sigur- jón gat aldrei verið annað en fram- sóknarmaður, þó að hann á stundum væri gagnrýninn á stefnu, störf og menn, og léti menn óspart heyra það, og færi sinar eigin götur, ef svo bar undir. Eins og áður segir varð hann starfs- maður Framsóknarflokksins 1930 — sá fyrsti — og mun hafa gegnt þvf starfi 3 eða 4 ár. En ég held, að það megi meö sanni segja, að hann hafi alla tið siðan, eða a.m.k. fram á allra siðustu ár, verið ólaunaður starfsmaður Fram- sóknarflokksins. Hann gegndi fjöl- mörgum trúnaðarstörfum fyrir Fram- sóknarflokkinn — flestum algerlega ólaunuðum — sem hér yrði of langt mál upp að telja. Fátt eitt skal nefnt. Hann gegndi um skeið formennsku i Framsóknarfélagi Reykjavíkur, var formaður fulltrúaráðsins i Reykjavik i nokkur ár, sat i miðstjórn flokksins i áratugi, var gjaldkeri flokksins i meira en tvo áratugi, framkvæmda- stjóri Timans var hann i nokkur ár, varaþingmaður og varabæjarfulltrúi ÍSLENDINGAÞÆTTIR Laugardagur 11. okt. 1975 — 36. tbl. 8. árg. No. 227. TIMANS

x

Íslendingaþættir Tímans

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Íslendingaþættir Tímans
https://timarit.is/publication/303

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.