Íslendingaþættir Tímans - 11.10.1975, Blaðsíða 8

Íslendingaþættir Tímans - 11.10.1975, Blaðsíða 8
Helga H allgr í ms dó ttir Unaósi, Hjaltastaðaþinghá Helga lézt að heimili dóttur sinnar, Ólafar, og manns hennar Alfreðs Aðal- bjarnarsonar, að Unaósi 4. sept s.l. Ég hef þekkt Helgu siðan sonur mirin, Bragi, kom fyrst til Unaóss til sumardvalar fyrir 16 árum, þá lltill drengur. Helga var fædd að Birnufelli i Norður-Múlasýslu 7. nóv. 1888. Föður sinn missti hún ársgömul, en ólst upp með móður sinni til 10 ára aldurs. Föðuramma Helgu sækir hana þá, vegna veikinda móður hennar og fer með hana til Seyðisfjarðar en þar var staddur Björn Jónsson prentsmiðju- stjóri frá Akureyri, en hann var giftur Helgu dóttur Margrétar, sem var föðursystir Helgu. Björn og kona hans höfðu boðið Helgu til sin i fóstur. A miðri Fjarðarheiði segir amma Helgu henni þau sorgartiðindi, að móðir hennar sé dáin. Oft minntist Helga þess hvað sporin voru þung, sem eftir voru ferðarinnar. Helga undi hag sinum vel á Akureyri hjá Birni og konu hans, en þau áttu einn son litlu yngri en Helga var, sá héti Helgi. Helga naut skólagöngu á Akureyri, bæði i barna- og kvennaskóla. Helga var vel greind og hafði frábært minni. Oft sagði hún mér frá þessum*árum áhyggjuleysis og gleði á Akureyri. Helga hafði næmt eyra fyrir tónlist, en þá var mikið sönglíf fyrir norðan. Ekki veit ég hvort hún tók virkan þátt i sönglifinu, en oft sagði hún: „söngurinn göfgar, hann lyftir i ljóma”. Arið 1907 deyr fóstra hennar, en miklir kærleikar voru með þeim og kallaði Helga hana „systur” (föður- systir), þá flyzt Björn til Eskifjarðar með börnin, en þar eru þau aðeins eitt og hálft ár. Siðan er 'aftur farið til Akureyrar. Eftir þetta er Helga á ýmsum góðum heimilum norðanlands, m.a. Einarsstöðum i Reykjadal, Ósi i Hörgadal. Hjá hjónunum Kristinu og Kristni Briem kaupmanni á Sauðár- króki er Helga I nær 5 ár. Þaðan fer hún til Blönduóss i hússtjórnardeild Kvennaskólans þar. Haustið 1917 kemur Helga aftur til æskustöðvanna að Birnufelli. Siðan er hún á ýmsum stöðum i Fellum, kaupakona á sumr- um en við barnakennslu á vetrum. ' Vorið 1924 flyzt hún siðan til unnusta sins og siðar eiginmanns, Sölva Jóns- sonar að Meðalnesi I Fellum. Þar bjuggu þau þar til Sölvi lézt 15. febr. 1945. Sölvi var gáfaður og góður maöur og fór vel á með þeim hjónum, hann dó langt um aldur fram og var Helgu harmdauði, svo og börnum þeirra, en fósturson hafði Sölvi tekið áður en hann gifti sig og bjó Helga með honum að Meðalnesi nokkur ár eftir fráfall Sölva, en þá fluttist hún að Unaósi til Ólafar einkadóttur sinnar og manns hennar, þar var hún þar til yfir lauk. Þetta er i stórum dráttum lifshlaup Helgu Hallgrimsdóttur, en margt væri hægt að skrifa um hana, þvi ævin var löng og eins og að framan er sagt, tölu- vert viðburðarik fyrir litlu stúlkuna, sem missir foreldra sina svo snemma á ævinni, en er svo lánssöm að eiga góða að, þannig að hún fær að alast upp i umhverfi, sem greind hennar var samboðin. Helga var sjúklingur mörg siöustu árin, en lét aldrei bilbug á sér finna og gekk til starfa sinna daglega fram að þvi síðasta. Oft dáðist ég að þvi og undraði mig á hvað kjarkurinn var mikill hjá þessari fullorðnu, bækluðu konu. Mörg störfin vann hún hjá dóttur sinni, eins og fullfrisk væri, en enginn vissi betur en þau hjón hvað oft hún var sárlasin við störf sin, en ekki gafst hún upp fyrir „elli kerlingu” fyrr en i fuíla hnefana. Þær mæðgur, ólöf og Helga voru afar samrýmdar og veit ég að söknuður er mikill á heimilinu. Arin voru að visu orðin mörg hjá Helgu og hvildin vafalaust kærkomin, tómleik- inn er þrátt fyrir það mikill og enginn getur komið i stað elskulegrar móður. Ég vil svo þakka Helgu allt, sem hún hefur verið okkur Braga öll árin, og sendi frænku' minni Ólöfu og manni hennar Alfreð minar dýpstu samúðar- kveðjur. Guöbjörg Þórhallsdóttir, Keflavfk. 8 íslendingaþættir

x

Íslendingaþættir Tímans

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Íslendingaþættir Tímans
https://timarit.is/publication/303

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.