Íslendingaþættir Tímans - 11.10.1975, Blaðsíða 5

Íslendingaþættir Tímans - 11.10.1975, Blaðsíða 5
Guðjón Guðmundsson frá Saurbæ f. 11. mai 1893 d. 27. júli 1975 Minir vinir fara fjöld feigðin þessa heimtar köld, ég kem eftir, kannske i kvöld, með klofinn hjálm og rofinn skjöld, brynju slitna, sundrað sverð og syndagjöld. Hjálmar Jónsson frá Bólu. Andlát aldraðs manns þarf ekki að koma á óvart. Þó er eins og maður eigi alltaf bágt með að sjá á bak góðvini, eins þótt vitanlegt sé, að hér ræður það sterka lögmál, sem ekki verður umflú- ið. Sérstaklega finnst manni sviplegt, þegar dauðann ber snögglega að, án þess auðsætt væri að hverju stefndi. Samtteléggott hlutskipti að deyja mitt i dagsins önn. Þannig bar andlát Guð- jóns frá Saurbæ að. Lega hans var ör- stutt. Hitt er annað mál, að sjúkdóms mun hann hafa kennt um alllangt bil, þótt sú væri gæfa hans, að geta sinnt nokkru starfi lengst af, til siðasta dags. Siðast hitti ég þennan gamla ná- granna minn á götu á Hvammstanga um það bil viku fyrir lát hans. Hann var að koma frá vinnu sinni, án efa þreyttur eftir langan vinnudag. Það aftraði honum þó ekki að rétta mér hjálparhönd. Bauðst hann til að halda undir pinkil með mér, sem ég var að rogast með og reyndist mér nokkuð þungur að bera. Við bárum hann svo saman þann spöl, sem um var að ræða. Þetta var hans siðasta, en ekki fyrsta, aðstoð við mig. Atvik þetta sýndist kannski smátt, fyrir mér er það þó stórt og fer mér ekki úr huga. Raunar kemur það mér til að fyrirverða mig fyrir að mælast undan að halda undir kistuna hans að aflokinni minningar- athöfn i Hvammstangakirkju, jafnt fyrir það, að þessari synjun olli bilun i fæti, svo ég vildi ekki hætta á að verr færi, hvorki min né annarra vegna. Um sautján ára skeið vorum við Guðjón i Saurbæ nánir grannar. Vorið 1919 festi hann kaup á jörðinni Saurbæ á Vatnsnesi og fluttist þangað með eig- inkonu sinni Ragnheiði Björnsdóttur.. Arið 1914 höfðu þau gengið i hjóna- islendingaþættir band, en ekki haft trausta ábúö fram til þessa. Tvö ár bjuggu þau á Syðri- Reykjum i Miðfirði, en siðan á Ytri Kárastöðum þar til þau fluttu að Saur- bæ. Bæði voru þau frá Kárastöðum á Vatnsnesi, hún frá Mið-, hann frá Ytri Kárastöðum. Bæði voru ung að árum, ötul og starfsfús, og lágu i engu á liði sinu. Ragnheiður var hin ágætasta kona, dugnaðarforkur til verka, myndar-húsfreyja, umhyggjusöm og ástrik manni sinum og börnum. Þau hjón eignuðust sjö mannvænleg dugn- aðarbörn, sem tóku sér bólfestu i Reykjavik. Þau eru: Jónas Þorbergur, kennari, Björn, verkamaður, Þorgrimur Guðmundur, húsasmiða- meistari, Hólmfriður Þóra, húsfrú, Asdis Margrét, rekur saumastofu, Gunnar, bifreiðastjóri og Ólafur, bif- vélavirki, sem lézt sl. vetur. “Var þar mikill harmur kveðinn að öllum að- standendum og vissulega þungbært aldurhnignum föður að sjá á bak dug- miklum og drengilegum syni i blóma lifsins. Ragnheiði konu sina missti Guðjón árið 1947. Bjó hann eftir það fá ár i Saurbæ, en fluttist suður á land alfar- inn árið 1953. Vann hann þar ýmis störf, mikið við byggingar á Keflavik- urflugvelli. Atti hann um tima heima i Höfnum. Norður fluttist Guðjón þó aft- ur og settist að á Hvammstanga, þar sem hann hélt heimili með Ólöfu Magnúsdóttur frá Asbjarnarstöðum, en áður höfðu þau eignazt dóttur sam- an Rósu, sem gift er og búsett á Hvammstanga. Attu þau gott og frið- sælt heimili, ánægjulegt þeim og hverjum sem þar bar að garði. Nutu þau alla tið rikulega aðstoðar dóttur sinnar og tengdasonar. Þetta er stutt og snubbótt frásögn og litið sagt um starf og æviferil bóndans frá Saurbæ, bóndans, sem um nálega fjóra áratugi rak bú sitt i afskekktri sveit við fábreytt skilyrði og skort flestra þeirra þæginda um tæknibún- að, sem siðan hefur þróast i sveitum landsins og enginn getur án verið. Á búskaparárunum i Saurbæ var raf- magni ekki til að dreifa á Vatnsnesi. Simi var fyrir stuttu kominn á nyrztu bæina þegar Guðjón lét af búskap og svo mætti lengi telja. Hjónin þar, eins og annars staðar, urðu að treysta á eigin orku og þrótt. Ásamt börnum sinum tókst þeim að bæta hag sinn með árunum og voru raunar alltaf á þvi stigi að vera bjargálna, sem kalla má. Þau skilja bæði eftir góðar minn- ingar i hugum allra vina sinna og ná- granna. Guðjón Guðmundsson fæddist á höf- uðborgarsvæðinu, sem nú er svo kall- að, þann 11. dag maimánaðar árið 1893. Raunar mun annar dagur vera skráður fæðingardagur hans i kirkju- bök viðkomandi prestakalls, en ekki eru slik mistök einsdæmi. ömmu átti hann norður á Vatnsnesi, Guðrúnu Guðmundsdóttur. Bjó hún á Ytri Kárastöðum með Þorgrimi Jónatans- syni. Til þeirra var Guðjón fluttur, tveggja ára að aldri, og hjá þeim ólst hann upp. Dvaldi hann með þeim siðan og vann þau störf sem fyrir komu, unz hann stofnaði eigið heimili. Kára- staðaheimilið var mannmargt mynd- arheimili, enda jörðin talin ein af þeim betri i Kirkjuhvammshreppi. Var þar stuðzt jöfnum höndum við landsgagn og sjávarafla. Sótti Þorgrimur sjóinn fast, var lengi formaður, m ,a. norður á Skaga, auk þess sem hann réri úr heimavör. Ekki var þó slegið slöku við landstörfin, unnið var að jarðarbótum meir en þá var titt og heyskapur stundaður af kappi, enda jafnan birgð- ir heyja á haustnóttum. Við þessi störf og öll önnur venjuleg sveitastörf, svo sem skepnuhirðingu, ólst Guðjón upp. Reyndist hann lika alla tið hinn liðtæk- asti verkamaður. Hann var ágætur

x

Íslendingaþættir Tímans

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Íslendingaþættir Tímans
https://timarit.is/publication/303

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.