Íslendingaþættir Tímans - 08.05.1976, Blaðsíða 2

Íslendingaþættir Tímans - 08.05.1976, Blaðsíða 2
fyrir heilræðum þinum og vináttu. Þú varsteinnaf dýrmætustu homsteinúm bernsku minnar. FrU Dagbjörtu og börnum séra Kristins Stefánssonar votta ég dýpstu samúð. Birgir Þorgilsson. f 9. marz var borinn til moldar frá Dómkirkjunni i Reykjavik einn þeirra manna, sem markaö hafa djúp spor og heillavænleg i þróunarsögu islenzkra félagsmála á þessari öld. Það er séra Kristinn Stefánsson fyrrum áfengis- varn aráðun au tur. Kristinn Stefánsson var fæddur 22. nóvember 1900 á Brúnastööum I Fljót- um og var þvi á 76. aldursári er hann lézt2. marz sl. Foreldrar hans, Stefán Pétursson og Guðrún Hafliöadóttir, voru bæði ættuð úr Fljótum. Haföi sá ætthringur um langan aldur tekiö drjúgan þátt i harðri lifsbaráttu fólks- ins þar i sveit. Stefán faðir Kristins var sjómaöur og settust þau hjón að á Akureyri, en Kristinn ólst upp i Fljót- um. Hann lauk gagnfræöaprófi á Akureyri 1921 og stúdentsprófi i Reykjavik 1924 með 1. einkunn og guð- fræðiprófi frá Háskóla Islands 1928, einnig meö 1. einkunn. Veturinn 1929— 30 var hann við framhaldsnám I félagssiðfræöi við háskólann i Mar- burg I Þýzkalandi. Það var rikt i fari þeirra félaga Kristins I guðfræðideild að þeir vildu leggja fram liö sitt til þess aö gera is- lenzkt mannfélag betra. Hafa margir þeirra látið mikið að sér kveða á vett- vangi félagsmála og menningarmála, Kristinn ekki slöur en aðrir. Þeirgáfu i fjögur ár út rit um trúmál og skyld efni (1927—30). Það hét Straumar, djarf- mannlegt rit i frjálslynda steöiu og vakti mikla eftirtekt. Kristinn var meöal útgefendanna og skrifaöi í ritiö, enda snemma prýöilega ritfær. Hann var einnig meöritstjóri Stúdentablaös- ins áriö 1927. Ekki sneri Kristinn sér aö prests- störfum aö sinni. Hann var einn vetur að loknu guöfræðiprófi stundakennari við skóla i Reykjavik, og veturinn 1930— 31 var hann kennari við héraðs- skólann á Laugarvatni. Haustiö 1931 gerðist hann skólastjóri við hinn ný- reista héraösskóla Borgfiröinga i Reykholti og gegndi þvi starfi til 1939. Það féll þvi I hans hlut aö móta skólann á nýjum stað. Hann reyndist farsæll skólastjóri og naut trausts nemenda og starfsbræöra, var for- maður i Félagi héraös- og alþýðu- 1 skdlakennara 1935—39. A þessum ár- um skrifaði hann um skólamál I tima- ritið Viðar, og súmarið 1933 kynnti hann sér unglingakennslu á Norður- löndum, sótti meöal annars kennara- námskeið i Askov. 1. júli 1940 geröist Kristinn starfs- maður i Dóms- og kirkjumálaráöu- neytinu og vann þar 118 ár, slðustu ár- in sem fulltrúi. Þótti hann ágætur starfsmaöur, athugull og vandvirkur og tillögugóður. Arið 1958 var hann skipaður áfengisvarnaráðunautur rikisins og gegndi því starfi til 1971 er hann lét af þvl vegna aldurs, en sæti hafði hann átt I áfengisvarnaráði frá stofnun þess 1954. Óhætt er að fullyrða að Kristinn vann bindindismálum þjóðarinnar mikiö gagn i þessu starfi og raunar meira en margan ókunnug- an mundi gruna. Hann var aldrei neinn hávaðamaður og' gerði aldrei neitt til þess að láta bera á sj álfum sér, en hann var heill og vakandi I starfi sinu, gat verið nokkuö ýtinn þótt litið bæri á, og naut þess álits hjá öllum er þekktu til hans og starfa hans, að fullt mark var tekiö á orðum hans og tillög- um. Hitt er svo annaö mál, að margt var I áfengismálum þjóöarinnar, bæöi um framkvæmd laga og fleira, á ann- an veg en hann hefði kosið. Kristinn Stefánsson gekk I góö- templarastúkuna Minervu á skólaár- um sinum. Þar var hann jafnan siöan góður liösmaður. En störf hans á þessu sviöi náöu langt út fyrir einstaka stúku. Hann var æösti maður Regl- unnar á íslandi, stórtemplar i ellefu ár, 1941—1952, en átti eftir þaö sæti áfram í framkvæmdanefnd Stórstúk- unnar óslitið til dauöadags, eða sam- talsnæstum þvi I hálfan fjórða áratug. Umboðsmaður hátempiars var hann 1956—58. Er ekki ofmælt að hann væri einhver traustasti og áhrifamesti maður Reglunnar og bindindisstarfa hennar á siðari tlmum. Mikils góðs nutu samstarfsmenn hans af hæfi- leikum hans og þekkingu á sögu Regl- unnar og hugmyndafræöi hennar og á ástandi áfengismála á Islandi og viöar um heim, en þessu fylgdi einstök hógværðf framkomu samfara óbilandi trú á málstaö bindindismanna og mikilvægi bindindisstarfsemi fyrir einstaklinga og þjóðina i heild. Skrifaöi hann talsvert umþessi efni i blaðið Einingu. Munu orð hans og um- mæli þar lengi halda fullu gildi. Þaö er til marks um áhuga Kristins og samvizkusemi að hann lét sig varla nokkurn tlma vanta á fundi I fram- kvæmdanefndinni ef heilsan leyföi, en á þvi var misbrestur hin slöustu ár. En áhuginn dofnaði ekki þótt hann lægi rúmfastur heima hjá sér eða i sjúkra- húsi. Kristinn tók ialsverðan þátt I sam- eiginlegum bindindissamtökum Norðurlandaþjóðanna og var oft full- trúi Islendinga á þingum erlendis. Atti hann að fagna góöu áliti og miklu trausti forustumanna i bindindismál- um I Noregi, Sviþjóð, Finnlandi og Danmörku og raunar víðar, — og gegnir það reyndar engri furðu eins og framkoma hans og störf voru. Oft fól rlkisstjórnin Kristni störf I nefndum til athugunar og tiilagna I áfengismálum, þótt hér verði ekki talið. En það er vist aö þar átti bindindissemi og barátta gegn áfengisböli jafnan drjúgan liösmann sem Kristinn var. Arið 1946 réöst Kristinn Stefánsson prestur til frfkirkjusafnaðarins I Hafnarfirði og var vigður 22. aprll það ár. Hann gegndi þar prestsstörfum I tuttugu ár. Þóttist söfnuöurinn hepp- inn þegar hann fékk hann til starfa, en miklu meiri fannst honum þó heppni sin þegar hann fór að kynnast séra Kristni sem manni og presti. Hann var einstakt prúömenni i framkomu, hlé- drægur nokkuö en þó léttur I máli, gæddur hógværri gamasemi, hlýr I viðmóti við hvern sem var og einkar samúöarfullur sóknarbörnum sinum, ef harmar sóttu aö. Hann var ágætur ræðumaöur bæði aö efni og formi og flutningurinn þægilegur á að hlýöa, orðfæri vandaö og orð valin af ná- kvæmni og smekkvisi, enda var séra Kristinn góður kunnáttumaður og sér- staklega mikill smekkmaöur á Is- lenzkt mál. Ekki sizt voru likræður séra Kristins vandaðar og vel gerðar, sumar raunar snilldarverk. Kom þar fram alúö sú og samvizkusemi sem hann lagði i öll störf en það er auöskiliö hverjum manni, að þótt fríkirkju- söfnuöurinn væri ekki fjölmennur var þó þjónusta við hann ekki litill ábætir ofan á fuil embættisstorf. En aldrei heyröist þess getið að séra Kristinn vanrækti nokkur störf, sem honum hafði verið trúað fyrir. — Það er auð- vitað að ræðumennska séra Kristins naut sln einnig á mannamótum utan kirkju. Þess má geta aö á prestskaparárum sinum sótti séra Kristinn alþjóöa- kirkjuþing I Hannover (1952). Hann ritaði þá og fyrr greinar um trúmál I Prestafélagsrit, Kirkjurit og Einingu. Margur skyldi ætla að nú hefði veriö talið upp nægilegt af störfum handa einum manni að vinna, jafnvel þótt langt tæki fram meðalmanni, ekki sizt þegar maðurinn var kunnur að sér- stakri vandvirkni og samvizkusemi við öll sin störf. En séra Kristinn kom vlöar við en nefnt hefur verið. Hann var formaöur i útgáfunefnd aö Héraðasögu Borgarfjaröar, sem út isléndingaþættir

x

Íslendingaþættir Tímans

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Íslendingaþættir Tímans
https://timarit.is/publication/303

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.