Íslendingaþættir Tímans - 08.05.1976, Page 6

Íslendingaþættir Tímans - 08.05.1976, Page 6
 B E NG JÓN JÓNSSON F agurhóísmýri Þegar bóndans þrek er bilaó, þá er gott aö hafa skilað bættu landi i barns sins hendur| betra er það en auður fjár. G.B. J ! Voriö 1868 fluttust búferlum jfrá Hólmi i Landbroti aö Svinafelli i öræf- um hjónin Jón Jónsson og Guðlaug Jónsdóttir. Þegar þau höfðu búið níu ár i Svinafelli, andaðist Guðlaug. Fimm árum siðar gekk Jón að eiga Þuriði Jónsdóttur frá Hofi. Eftir tiu ára sambúð þeirra lézt Jón. Sex börn þeirra voru þá i bernsku, hið elzta niu ára og hið yngsta tæplega ársgamalt. Þuriður hélt þó áfram búskap. Var sonur Jóns af fyrra hjónabandi fyrir- vinna heimilisins um skeið, en synir Þuriðar voru snemma þrekmiklir og ötulir og tóku -þegar i æsku að annast bústörfin'með móður sinni. Jón á Fagurhólsmýri var sonur Jóns og Þuriðar i Svi'nafelli. Hann fæddist 12. febrúar 1886 og andaðist 4. marz 1976, niræður að aldri. Jón ólst upp á Svinafellij en fluttist þaðan 24ára gamall og var starfsmað- ur i Vestur-Skaftafellssýslu um átta ára skeið. Var þá heimili hans á bæj- unum Rauðabergi, Mörk og Þykkva- bæ, þar af fjögur ár i Þykkvabæ. Hann var þar vinnumaður hjá hinum merka bónda og mikla athafnamanni Helga Þórárinssyni. Þaðsamstarf varð báð- um hagkvæmt. Vistin i Þykkvgbæ varð Jdni að ýmsu leyti lærdómsrfk og sjálfur var hanh atorkumaður við störf svo að af bar. Vorið 1918 fluttist Jon aftur i öræfin, þá að Hnappavöllum til bróður sins, sem tveimur árum áður hafði gerzt bóndi þar. Jón átti heimilf á Hnappa- völlum um tveggja ára skeiö. Hinn þjóðkunni maður Gisli Þor- varðarson i Papey hóf búskap á fööur- leifð sinni Fagurhólsmýri (Neðri bæ). Um siðustu aldamót fluttist Gisli austur i Papey, en leigði jörö slna á Fagurhólsmýri til ábúöar. Arið 1920urðu þáttaskil I jstarfi Jþns. Hann kvæntist þá um haustið Guðúýju Aradóttur á Fagurhólsmýri. Foreldr- ar hennar voru hjónin Ari Hálfdanar- 6 son og Guðrún Sigurðardóttir. A sama ári seldi Gisli i Papey jörð sina Fagur- hólsmýri II. Jón og Guðný keyptu helming þeirra fasteigna, sem Gisli seldi, og hófu búskap á jörðinni. Eftir það var ævistarf þessara hjóna tengt Fagurhólsmýri, meðan þau höfðu starfsþrek, og þar naut Jón friðsældar aldurhniginn hjá syni og tengdadóttur, en varð þó siðasta æviárið að dvelja i sjúkrahúsi eða eilliheimili. Fáein ár hefur Guðný verið i Reykjavik. Jóni og Guðnýju varð átta barna auðið. Yngsti sonur þeirra fórst i um- ferðarslysi i Reykjavik 1954, þá tvitug- ur að aldri. Einn sonur þeirra býr á Fagurhólsmýri, en hin systkinin, — fjórar dætur og tveir synir, — eru bú- sett i Reykjavik. Margs þarf búið við, ogaðstaða var að ýmsu leyti örðug, er Jón og Guðný hófu búskap. Þau urðu þá þegar að kaupa jörðina, tæki til verklegra framkvæmda voru ófullkomin, við- skiptakjör voru þjóðinni óhagstæð um þetta leyti og lánastofnanir vegna landbúnaðar voru þá ekki til i landinu. Búskaparskilyrði á Fagurhólsmýri voru þá þannig, að ræktað land var lit- ið, engjar grasgefnar en votlendar og heyöflun þvi afar erfið, beitiland tak- markað og alls ekki hægt að treysta á vetrarbeit sauðfjár. Hjón, er höfðu þannig aðstöðu til bú- skapar og voru með mörg börn á framfæri, urðu að hlita þvi lögmáli, að i erfiði dagsins skal gæfan sótt. Jón vann með mikilli atorku og þreki til að sjá farborða stórri fjölskyldu og efla heimilið. Hann kostaði kapps um að afla mikilla heyja, svo að fóöurbirgðir reyndust ætið nógar. Hann sléttaði túnþýfi og hóf nýrækt þannig að beita hestum fyrir jarðyrkjuverkfæri, áður endráttarvélar komu til sögu, og hann endurbætti húsakost á jörðinni eftir þvi sem aðstaða var til og efni leyfðu. Þegar börnin þroskuðust og voru enn i föðurgarði, þá voru framkvæmdir á jörðinni stórauknar. A fimmta áratug þessarar aldar var reist þar stein- steypt, vel vandað ibúðarhús, skömmu siðai) byggð ný útihús og tún stækkað að þvi marki, að hin siðari ár hefur allur heyfengur af jörðinni verið af ræktuðu landi. Framfarir af þessu tagi blasa jafnan viðaugum manns, sem að garði ber. Hitt er ekki jafn augljóst, hvernig heimilið er að innri gerð. En Jón naut mikillar gæfu sem fjölskyldumaður. Guðný kona hans mótaði heimilislifið miklu meira en ókunnugir vissu eða eftir yrði tekið við fýrstu kynni. Hún leysti af hendi húsfreyjustörfin með ástriki og fullkominni reglusemi. Hún lagði ávallt gott til mála og glæddi meö góðvild og skarpri greind þjóðlega mennt. Þjóðlifið varð æ fjölþættara og starfsgreinar eru margar. Starfsemi einstaklinga má þó i stórum dráttum skipta I tvo flokka. Annars vegar eru störf, sem unnin eru til að afla verð- mæta, hins vegar störf, sem eru i þvi fólgin að ráðstafa verðmætum, sem aflað hefur verið, og er þá stundum kappkostað að bera stóran hlut frá borði. Starf bónda er i þvi fólgið að afla verðmæta úr skauti náttúrunnar og hlúa að gróanda lifi. Hann gengur til viðskipta við móður jörð, gerir sé alls ekki vonir um að alheimta dagiaun að kvöldum, en veit, að moldin á skap- andi gróðrarmátt, vill bæta landið, sem hann hefur til umráða, og með starfsgleði efla þannig bú sitt og sveit- arfélag. I þessari stétt og stöðu stóð Jón styrkum fótum. Að loknu farsælu ævistarfi á Fagurhólsmýri hafði hann ekki með höndum gnægð lausafjár. En aldurhniginn gathann með hugró horft yfir farinn veg og glaðzt af þvi, sem meira er vert: að hafa með ævistarf- inu skilað bættu landi I barns sins hendur og á langri ævi ávallt verið traustur liðsmaður i sveit sinni. Sveitungar Jóns á Fagurhólsmýri hafa þegar kvatt hann hinztu kveðju. Henni fylgir alúðarþökk fyrir allt og allt og hugheil samúð með vanda- mönnum hans. P.Þ. T islendingaþættir

x

Íslendingaþættir Tímans

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Íslendingaþættir Tímans
https://timarit.is/publication/303

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.