Íslendingaþættir Tímans - 08.05.1976, Qupperneq 13
Signý Þorkelsdóttir
r
Herjólfsstöðum 1 Alftaveri
Hædd 2. nóvember 1893
dáin 29. marz 1976
Aðfaranótt mánudagsins 29. marz
andaðist i sjúkrahúsinu á Selfossi Sig-
ný borkelsdóttir, fyrrum húsfrú á
Herjólfsstöðum i Alftaveri. Signý var
fædd á Snæbýli i Skaftártungu 2.
nóvember 1893, dóttir hjónanna Sig-
nýjar Bárðardóttur frá Ljótarstöðum i
Skaftártungu og Þorkels Arnasonar
frú Snæbýli. Foreldrar Signýjar voru
Guðrún Steinsdóttir frá Borgarfelli og
Búrður Bárðarson frá Hemru. Þorkell
var sonur Sigriðar Þorkelsdóttur frá
Skaftárdal á Siðu og Arna Sigurðsson-
ar frá Hvammi. Sigrfður var þriðji
fnaður frá séra Jóni Steingrimssyni
eldklerki. Þau hjón eignuðust fjögur
börn, sem voru i þessari röð: Steinunni
Sigriði, giftist Guðjóni Jónssyni, flutt-
uft til Reykjavikur og bjuggu þar.
Signýju, sem hér er getið. Sigrúnu er
8'ftist Jóni Jónssyni klæðskera og bjó i
ffeykjavik, nú ekkja á Hrafnistu.
^ngstur af þeim systkinum er Arin-
ejörn húsasmiðameistari og arkitekt,
naóti Þorsteini bróður sinum. Hann
yar mikill skepnuvinur, ágætur fjár-
maður og einnig nærgætinn við hesta
sina, enda góður tamningamaður og
prýðilega reiðhesta þæga og
trausta, en fyrir þá var mikil þörf á
þessum slóðum.
Það var jafnan ,,kátt i koti”, þar
sem Ingimar kom, glaðværð hans og
orðheppni kom öllum i gott skap.
Hann var hinn mesti greiða-maður,
°g áttu þvi margir honum gott að
gjalda. Einkum stendur mitt heimili i
jnikilli þakkarskuld sökum ómetan-
iegrar hjálpar hans, þegar veikindi
bar að höndum, og að ógleymdri að-
stoð hans við búpeninginn vor og
haust, hestajárningar og fleiri aðkall-
andi bústörf.
Að leiðarlokum viljum við hjónin
þakka Ingimar frábært nágrenni og
sanna vinattu, og við vottum systk-
'num hans innilega samúð. Þau hafa
öll misst traustan vin og góðan bróður.
Sólveig A Stefánsdóttir.
hann fluttist ungur með móður sinni til
Reykjavikur, giftist þar mikilhæfri á-
gætiskonu Agústu dóttur Agústs
Jósefssonar heilbrigðisfulltrúa, er nú
ekkjumaður hjá dóttur sinni i Reykja-
vik. Þau hjón eru mörgum Skaftfell-
ingum að góðu kunn fyrir sérstaka
gestrisni og greiðamennsku.
Með foreldrum sinum fluttist Signý
á fyrsta ári að Búlandsseli i sömu
sveit, þar sem þau bjuggu til ársins
1904, er þau fluttust að Skálmarbæjar-
hrauni i Alftaveri. Föður sinn missti
hún árið 1913. Ári siðar hætti móðir
hennar búskap. Fer Signý þá að
Herjólfsstöðum i sömu sveit og giftist
eftirlifandi manni sinum Hannesi
Hjartarsyni, sem þá bjó þar með móð-
ur sinni, mætum manni. Með honum
eignaðist hún tvö börn: Elinborgu
Sigurrós, sem er gift Bárði Sigurðs-
syni frá Hvammi i Skaftártungu, og
Hjört Sigurð, giftan Vigdisi Magnús-
dóttur frá Steinum undir Eyjafjöllum.
Allan sinn búskap bjuggu þau á
Herjólfsstöðum, þar til sonur þeirra
Hjörtur og kona hans tóku við jörð og
búi þar. Hjá þeim hafa þau dvalið að
mestu siðan, nema hvað Signý dvaldi
oft hjá dóttur sinni á meðan hún bjó i
Hvammi. Signý var barngóð kona og
þau hjón bæði, var þvi eftirsótt að
koma börnum til sumardvalar til
þeirra hjóna. Ég veit að það eru marg-
ir sem eiga góðar minningar um veru
sina þar.
Æviferill Signýjar var líkur og
flestra sveitakvenna, hún gerði ekki
viðreist um ævina, hennar hugarheim-
ur var bundinn við hennar heimili. 011
hennar hugsun og störf beindust að þvi
að halda heimili sinu i góðu lagi.
Hannes maður hennar gegndi ýmsum
störfum fyrir sveit sina, bæði póstaf-
greiðslu og fleiri störfum. Var þvi
gestakoma mikil hjá þeim. öllum var
þar vel tekið með bros á vör og veittur
góður beini. Siðari ár hennar var hún
heilsutæp, var þvi oft búin að liða mik-
ið. Siðastliðið vor var hún flutt i
sjúkrahúsið á Selfossi, og þar dvaldi
hún þar til yfir lauk.
Þegar ég lit yfir æviferil frænku
minnar tel ég hún hafi verið gæfukona.
Hún eignaðist góðan og mikilhæfan
mann, með honum átti hún tvö mynd-
arleg börn, sem báðum hefur gengið
vel á lifsleiðinni og borið ætt sinni og
foreldrum gott vitni um manndóm og
uppeldi.
Hún var jarðsett frá Þykkvabæjar-
klausturkirkju.
Kæra frænka, nú hefur þú lokið jarð-
vist þinni og hafið för til fegri staða.
Ég bið guð að leiða þig og styrkja á
þeirri ferð.
Ég sendi eftirlifandi manni hennar
og fjölskyldu hans innilegar samúðar-
kveðjur.
Vigfús Gestsson
íslendingaþættir
13