Íslendingaþættir Tímans - 21.08.1976, Page 6

Íslendingaþættir Tímans - 21.08.1976, Page 6
um sérað taka en sinn bróöur a& biðja. Rökrétt og nánast óumflýjanlegt var svo þaö, að Magnús var kosinn i hreppsnefnd árið 1942, þegar straum- hvörf urðu i sveitarstjórn, beinlinis til að verða oddviti. Á hans tima varð fyrra uppbyggingarskeið Reykhóla. Hann var kvaddur i fyrstu Reykhóla- nefndina, þá sem markaði stefnuna fram á allraseinustu 4r. Vera i skatta- nefnd ogisýslunefnd kom svo rétt eins og af sjálfu sér, einnig i kaupfélags- stjórn um nokkurt skeið. Fjarri var að Magnús sæktist eftir vegtyllum. Fórnfúst starf var honum að visu að skapi, en ekki allt sem fyrir kom i starfi handhafa kerfisins, sem hendir að oddviti komist ekki hjá. Eftir 8 ára oddvitastarf varð að leggja fastað honum að hætta ekki ogeftir 12 árin vissu allir að hann var búinn að vinna Torfalögin og var hættur. Magnús tók við Saprisjóði Reyk- hólahrepps af stofnanda hans, föður sinum, i lifanda lifi og stýrði honum til dauðadags. Honum fórst þaö vel eins og annað sem hann snerti á. Hann hafði hugmynd um aö veröa kallaður fyrirvaralitiö eins og raun varð á. Fyr- ir tveimur árum vildi hann losa sig við sjóöinn en sveitungarnir gátu hvorugan hugsað sér án hins og við það sat. Magnús var fæddur inn i bændastétt, ólst upp sem bóndi, lifði sig inn i hlut- verkið og rækti það langa ævi. Þegar horft er til baka vekur það furðu og gæti blekkt ókunnuga, að hann bjó ekki sem titlaður bóndi nema stutt. Taldist vinnumaður föður sins fram undir fertugt. Svo stóö Ingibjörg kennari, systir hans, fyrir búi með honum. Hún var öryrki af völdum lungnaberkla, svo sú skipanvarð ekkilengi. Eftir það bjó hann i húsmennsku og þó i heimili með fósturbróður sinum Samúel Björnssyni og Theódóru Guðnadóttur konu hans. Þetta yfirlætisleysi haggaði engu um það, að ætið var litið til Magnúsar sem eins af fremstu mönnum sveitarinnar, enda var honum ætið tr^yst og samferða- mennirnir báru til hans þakkarhug. Magnús var sam vinnuþýður i íélagsstörfum og á heimili. Frá árinu 1934 var tvi- þri- og einhvers konar sambýli á Höllustöðum og áður var þar húsfólk og ætið góður heimilisandi þar sem Magnús kom við sögu. I opin- berum störfum ástundaði hann rétt- sýni og yfirvegun. Eignaöist ekki ó- vildarmenn en vinfengi og tiltrú allra sem fengu reynslu af störfum hans. Lengst af var hann heilsuhraustur. Þó blossuöu berklar upp i honum fyrir tæpum 20 árum, en hann vann bug á þeim. Vissulega varð hann að lUta þvi lögmáli, að ellin hallar öllum leik. En Magnús Þorgeirsson Höllustöðum, Reykhólasveit. F. 12.5. 1898 — d. 16.7. 1976 Minning frá Samúel Björnssyni og Theodóru Guönadóttur. Horfinn er burt Söknuður er að sæmdarmanni til heima æðri en geislar minninga vinsæll maður gleöi veita. af vegum jarðar, Magnúsi eigum háan aldur við margt að þakka sem hetja bar hann hans velgjörðir okkur og okkur hann var sem ástkær bróðir. aldrei gleymast. Hann barna okkar Laus við elli var besti vinur og angur jarðar og fyrirmynd göfug lifir hann nú til góöra verka. i ljóssins heimi. Vitur, jafnlyndur, Allt þeir sem deyja vinfastur, geðhreinn eftir skilja gekk hann sinn veg utan góðverk á göngu lifsins. hér gjörð á jörðu. Helga frá Dagverðará. hann bar aldurinn vel og naut þeirra hamingju að halda starlsþreki og vera i snertingu við straum timans ævina á enda. t vor sótti hann manniundi af lifandi áhuga eins og jafnan lyrr og sinnti daglegum störfum. Svo var sagt til forna, að konungur skildi deyja standandi. Magnús bóndi á llöllu- stöðuin vann við aftekningu linimlu- daginn 15. júli og afgreiddi erindf við Sparisjóð Reykhólahrepps þá um kviildið. l.aust uppur miðnatii var hann örendur. Fjöldi manns fylgdi honum spölinn til hinztu hvilu i Reykhólakirkjugarði 24. júli, margir langt að komnir. Sveitin hans á bak að sjá einum mætasta 6 íslendingaþættir

x

Íslendingaþættir Tímans

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Íslendingaþættir Tímans
https://timarit.is/publication/303

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.