Íslendingaþættir Tímans - 19.01.1978, Side 1

Íslendingaþættir Tímans - 19.01.1978, Side 1
ISLENDINGAÞJETTIR Fimmtudagur 19. janúar 1978 2. tbl. TIMANSJ Oddný Fr. Árnadóttir Oddný Friörikka Arnadóttir, Ingi- marsstööum á Þórshöfn var fædd 16. júli 1893, hún andaöist 29. september s.l. Minningarathöfn fór fram á heim- ilihinnarlátnu 8. október jarösett var i Sauöaneskirkjugaröi. Minningarræöu flutti sonur hinnar látnu sr. Ingimar Ingimarsson (prestur i Vik i Mýrdal) þvi miöur gat ég ekki veriö viö jaröar- förina, en hugurinn var hjá henni og afa þennan dag. Ég frétti hjá vinkonu minni á Þórshöfn aö þaö hafi veriö dá- samlegt veöur á jaröarfarardaginn logn og sólskin og aö afi hafi staöiö sig meö sóma eins og hans var von og visa. Já þaö var sólskin þennan dag og þaö var alltaf sólskin i kringum ömmu,oghún haföi gottlag á aö koma öllum i gott skap. Amma og afi eignuöust 11 börn, 8 dætur fyrst siöan 3 drengi. Eru 9 þeirra á á lifi. Ég á margar góöar end- urminningar frá Þórshöfn, en þar ólst ég upp til 13 ára aldurs hjá móöur minni, Þórdisi og stjúpa Karli Hjálm- arssyni en þá fluttu þau til Hvamms- tanga. Þaö var alveg sama á hvaöa tima viö systkinin komum i heimsókn tilömmu,alltafvirtisthún hafa nægan tima til aö tala viö barnabörnin sin, enda notuöum viö okkur þaö óspart. Þaö var svo ótal margt sem amma kunni, hún var mikil hannyröakona, þaö lék allt i höndunum á henni og varö allt svo myndarlegt og fallegt. Hún saumaöi alls kyns fatnaö, prjón- aöi bæöi i höndum og á vél, heklaöi kunstbroderaöi, orkeraöi svo eitthvaö sé nefnt. Hún stjórnaöi i mörg ár barnakórnum i þorpinu og einnig kirkjukórnum. Hún kenndi nokkrum börnum á orgel þar á meöal mér. Ég áttinú ofterfittmeö skapiö i þá daga, amma gat alltaf talaö mig til meö sinni hlýju og fengiö mig til aö gleöjast á ný og þurftihún oft mikla þolinmæöi til, en hún amma mln gaf st aldrei upp, þvi aö hún vissi aö innst inni var ég viökvæm og endaöi þaö alltaf meö aö ég hljóp út frá henni meö sippubandiö mitt eöa tunnugjörö og hoppaöi og skoppaöi um allar götur og endaöi oft niöur 1 fjöru þar sem ég lét qldurnar elta mig. Amma og afi voru mjög ánægö i slnu hjónabandi, þau sátu oft ein i stofunni sinni meö kertaljósog létu vel hvort aö ööru. Ættu allir sem þau þekktu aö taka þau til fyrirmyndar, þaö hef ég reynt aö gera. Amma og afi bjuggu I einu elzta húsinu á Þórshöfn þegar ég átti þar heima, sem þau héldu vel viö á meöan þau bjuggu I þvl, en svo byggöu þau sér hús fyrir um 12 árum uppi á holtinu afar vinalegt hús. Allt var svo glerfint og hreint hjá þeim og alveg merkilegt hvaö þau gátu haft þetta alltaf fínt þó mikill gestagangur væri hjá þeim. Gamla húsiö þeirra stendur aö visu á sinum staö, en þaö er til skammar fyrir Þórshafnarbúa hvern- igbúiöeraöfara meöhúsiö. Mér fynd- ist aö hreppsbúar ættu aö sýna sóma sinn i þvi aö halda húsinu viö, þvl aö þaö var staöarprýöi á meöan þau bjuggu i þvt. Húsiö var á þremur hæö- um og kjallari, eins og svo mörg hús voru i gamla daga. Þaö var oröiö of erfitt fyrir svo fulloröin hjón aö búa i þvi, einnig var umferö þarna mikil og kusu þau þvi aö færa sig til og vera þar sem rólegra var. Afi var alltaf duglegur alveg sama hvaö hann tók sér fyrir hendur. Hann ræktaöi heljarmikiö tún út frá nýja húsinu, en amma geröi fallegan blómagarö. Ekki gleymdu þau lang- afa- og langömmubörnunum, þvi aö þauútbjuggu sérstakan blettfyrir þau spölkorn frá ibúöarhúsinu, sem var meö alls konar dóti svo sem skeljum, leggjum, bobbum, pottum og pönnum, sem litlu börnin kunnu vel aö meta. Þaö var sem sagt fyrir öllu hugsaö, enda litu þau á smáborgarana eins og fólk sem varö aö hafa nóg fyrir stafni. Þegar móöir min og stjúpi fluttu frá Þórshöfn voriö 1948 haröneitaöi ég aö flytja meö þeim og fékk ég aö vera eftir yfinsumariö hjá ömmu og afa og reyndi ég aö hjálpa þeim eftir beztu getu. Um haustiö varö ég aö fara til Hvammstanga þviaö móöir mln þurfti aö útbúa mig áöur en ég færi I Gagn- fræöaskólann á Akureyri. Aöur en ég fór baö amma afa um aö fara meö mig út f kaupfélagsbúö aö kaupa á mig hneppta peysu(þeirri peysu gleymi ég aldrei) þau voru alltaf svo gjafmild. Ég get heldur aldrei gleymt þeirri stundu er ég varö aö yf irgefa ömmu og afa. Ég átti svo bágt meö aö halda aftur af tárunum og ég fékk kökk I hálsinn. 1 minni barnshugsun þá fannst mér einhvern veginn aö ég myndi aldrei sjá ömmu og afa og Þórshöfn aftur, Þetta var I minum augum svo óramikil vegalengd enda ekki eins mikiö um blla þá og nú. Amma og afi stóöu á hlaöinu og vink- uöu mér er billinn rann i burtu, og ég gat ekki betur séö en aö þaö blikuöu tár i augum þeirra, þá varö mér allri lokiö. Innst inni varég auövitaö spennt aö sjá nýju heimkynnin mfn, og afi og amma sögöu alltaf aö ég myndi venj- ast nýja staönum fljótt. Ég varö ekki svo litið undrandi þeg-

x

Íslendingaþættir Tímans

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Íslendingaþættir Tímans
https://timarit.is/publication/303

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.