Íslendingaþættir Tímans - 03.11.1979, Blaðsíða 7

Íslendingaþættir Tímans - 03.11.1979, Blaðsíða 7
Þorbjörg Guðrún Kristófersdóttir Kom huggari, mig hugga þú, kqm, hönd, og bind um sárin, kom.dögg, og svala sálu nii, kom,sól, og þerra tárin kom hjartans heilsulind,kom, heilög fyrirmynd, kom ljós, og lýstu mér, kom, lff, er ævin þver, kom, eilifð, bak við árin. , V.Briem. Föstudaginn 21. sept 1979. lést 1 Landspltalanum þorbjörg Guðriln Kristófersdóttir. Fædd var hún 8. mai 1926, að Kliiku við Arnarfjörð. Foreldrar hennar voru, Kristín Jónsdóttir og Kristófer Arnason, sem þar bjuggu, og var hún yngst barna þeirra, sem voru átta talsins. Af þeim eru látin Sigrlður Maria og Pétur Astráöur, en eftir lifa Sig- riður, Jón, Ragnar, Jóna og Magnfriöur. Guðrún, eins og hún var af flestum kölluð, ólst upp með systkinahópnum að Klúku, og var ávallt eftirlæti foreldra sinna og systkina, enda yngst eins og áður var sagt. Hún mun hafa veriö I for- eldrahúsum, fram til ársins 1942-1943, er hún fhittist til Reykjavikur. Var hún fyrsthjá Sigriði systur sinni. sem var henni alla tíð skjól og skjöldur. Sýndi Sigriður henni sérstaka umönnun i' hennar miklu og löngu veikindum, en hún varð aöveralangdvölum I Reykjavlk undir læknismeðferð. Ég vil fyrir mágkonu minnar hönd, þakka þeim hjónunum báöum, Sigriöi og Ólafi þeirra frábæru umhyggju, sem hún naut alla tið hjá þeim. Guörún var að eðlisfari hug- ljúf og góö kona. Bros hennar var blitt og hlýtt, og I vinahópi var hún létt og lifsglöö, fram- koma hennar hógvær, hver sem i hlut átti. Hún bar veikindi sin með þögn og þolinmæ þar til yfir lauk. Eftir aö hún fluttist til Reykjavikur, vann hún ýmis störf. fvrst við bókband og seinna i Leðuriðjunni hjá Atla Ólafssyni. Guðrún giftist manni sinum Tómasi Tómassyni frá Helludal I Biskupstungum 28. desember 1965. Var sú athöfn i Skálholtskirkju, og var þá um leið skiröur sonur þeirra Kristó- fer Arnfjörð, sem var einá barn þeirra og sólargeisli foreldr- anna. Þau bjuggu I Helludal, og verður Guðrún lögö til hinstu hvildar I Haukadal I Biskups- tungum, laugardaginn 29. sept. Að lokum vil ég undirrituö þakka þérelsku mágkona, allar ánægjusturidir fyrr og siðar, þlna tryggö viö okkur hjónin, börnin okkar og barnabörn, hlý- ja brosið þitt, sem ölium veitti gleði sem þig þekktu. ,Ég vil ennfremur flytja þér qg Tómasi þakkir fypir litlu Sæunni Krist- Inu, sem þiö voru6 alltaf svo góð. Og að endingu vil ég, elsku mágkona, biöja Guð a5 geyma þig, og greiði hann þér veg um eilifö alla. Hafðu þökk fyrir allt og allt. Ég vil svo, Tómas minn, biöja algóðan Guð að vera meö þér og Kristófer minum Arnfjörö i ykkar sáru sorg. óllum ættingjum votta ég mlna dýpstu samúð. Sigurfljóð Jensdóttlr. Guðrún Jónína Gunnars- dóttir fyrrum ljósmóðir frá Bakkagerði Þann 2. september 1899 gerðist sá merkis- atburður í sveitum austur aö borið var I heim þennan meybarn eitt. Svo sem sið- venja, er var hún vatni ausin og gefið nafnið Guðrún Jónina. Atlatiu ár eru nú síðan liðin. Attatiu ar, sem þó eru ekki nema augnablik I eiliföinni, en áttatiu ár mikilla og stórstigra umbreytinga. Þennan dag, 2. september voru saman- komnar þrjár kynslóðir afkomenda hennar til að samgleðjast henni og votta henniástog virðingu, —viösem öll eigum henni svo margt og mikið að þakka. Margir myndu vistsegja sem svo, að nú sé upp runnið ævikvöld hennar, en mér verður það á að hugsa a ö i rauninni viröist svo sem I dag sé hún á morgni lifsins. Nú I sumar lét hún til dæmis gamlan draum sinn rætast, brá sér út fyrir pollinn og heimsótti Noregsriki; Lét hún svo um- mælt er heim kom, að væri hún ung stúlka I dag, heföi hún liklega sest þar aö. Enn kvöldið fyrir áttræöisafmælisdaginn sinn sýndi hún svo ekki var um villst hve ung og hress hún er i anda, er hún brá sér I þann syndum spillta stað, Sjálfstæöishús- ið á Akureyri, þar sem dvalist var fram eftir nóttu við glaum og gleöi. Var þar mikil stemmning rikjandi, jafnvel þótt ýmsir viðstaddir teldu sig ekki hafa þar fengið málungi matar sins svona 1 byrjun aö minnsta kosti. Ekki ætla ég aö hafa þessi orð öllu lengri. Fyrir hönd okkar allra flyt ég þér hinarinnilegustuhamingjuóskir. Megi sól kærleika þins lýsa okkur öllum enn um ókomin ár eins og hún hefur gert gegnum þitt langa og farsæla æviskeið. ReynirHeiðar. 7 Islendingaþættir

x

Íslendingaþættir Tímans

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Íslendingaþættir Tímans
https://timarit.is/publication/303

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.