Íslendingaþættir Tímans - 03.11.1979, Blaðsíða 5

Íslendingaþættir Tímans - 03.11.1979, Blaðsíða 5
Stóðst þú á verði með stilltu geði og gjöröum þinum æ góövild réði. >U harmaöir sárt þá hjörtum blæddi. Mundin þin hlýja margt sárið græddi. Sjónum þU beindir til sölaráttar og hönd þig leiddi ins hæsta máttar. Siglt er nii fleyi til sólarlanda og vaka og starf i vorsins anda þér verður falin og veginn hillir i morgunbirtu, sem merkiö gyllir. Jón Guðni Pálsson f rá Garði F. 28. sept. 1907— D.4.mar 1979. Kveðja Jórunn ólafsdóttir frá Sörlastöðum Finnbogi S. Jónasson Ég þakka alla ástúð mér til handa, afi minn góði, þér ég gleymi eigi. Virst mér við hlið i striði Hfs að standa, styrk mig, uns finnumst við á efsta degi. Ég veit til Guðs þótt sál þin horfiö hafi, hugur þinn vakir með mér úti og inni. Hvíl þU i friði, elskulegi afi, umvafinn þökk frá sonardóttur þinni. Í.S.J. NU hefur kveðju í hinsta sinn þvi heimana tjaldið skilur, og vorblómin prýða veginn þinn og vefst um þig Ijós og ylur. Og minning vakir i huga heið um hógværð og prúða gleði. Af grandvarleik þina gekkstu leið og gerðunum drenglund réði. ÞU unnir fegurð i sögu og söng og sýndir með ljóðastöfum, að bogi og strengur þér báru föng, sem birtust i' dýrum gjöfum. Hve söngstu þig oft f sátt við lif, þá sjúkur og þreyttur varstu. Og trUin þér veitti hjálp og hlíf — um hana æ vitni barstu. Af sólskini fögru var sál þin nærð frá sumri i dalnum heima. Og þér er nú kveðja þaðan færð, og þökkina hugir geyma. Þitt fley hefur borist um bláan sæ að björtu og viöu landi. Þar sumar brosir með sól og blæ — það sumar er ævarandi. Jórunn Ólafsdóttir frá Sörlastöðum. Islendingaþættir Þeir sem skrifa minningar- eða afmælisgreinar i íslendingaþætti, eru eindregið hvattir til þess að skila vélrituðum handritum, ef mögulegt er

x

Íslendingaþættir Tímans

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Íslendingaþættir Tímans
https://timarit.is/publication/303

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.