Íslendingaþættir Tímans - 03.11.1979, Síða 5

Íslendingaþættir Tímans - 03.11.1979, Síða 5
Stóöst þú á veröi meö stilltu geöi og gjöröum þlnum æ góðvild réöi. ÞU harmaðir sárt þá hjörtum blæddi. Mundin þin hlýja margt sáriö græddi. Sjónum þú beindir til sólaráttar og hönd þig leiddi ins hæsta máttar. Siglt er nú fleyi til sólarlanda og vaka og starf i vorsins anda þér verður falin og veginn hillir i morgunbirtu, sem merkiö gyllir. Jórunn ólafsdóttir frá Sörlastöðum Finnbogi S. Jónasson Ég þakka alla ástúð mér til handa, afi minn góöi, þér ég gleymi eigi. Virst mér viö hlið I striöi lifs að standa, styrk mig, uns finnumst við á efsta degi. Ég veit til Guðs þótt sál þin horfiö hafi, hugur þinn vakir með mér úti og inni. Hvil þú i friöi, elskulegi afi, umvafinn þökk frá sonardóttur þinni. Jón Guðni Pálsson frá Garði F. 28. sept. 1907 —D. 4. mai 1979. Kveðja Nú hefur kveðju i hinsta sinn þvi heimana tjaldið skilur, og vorblómin prýða veginn þinn og vefst um þig ljós og ylur. Og minning vakir i huga heiö um hógværð og prúða gleði. Af grandvarleik þina gekkstu leið og geröunum drenglund réði. Þú unnir fegurð I sögu og söng og sýndir með ljóöastöíum, aö bogi og strengur þér báru föng, sem birtust í dýrum gjöfum. Hve söngstu þig oft i sátt viö lif, þá sjúkur og þreyttur varstu. Og trúin þér veitti hjálp og hlif — um hana æ vitni barstu. Af sólskini fögru var sál þin nærö frá sumri i dalnum heima. Og þér er nú kveöja þaöan færð, og þökkina hugir geyma. Þitt fley hefur borist um bláan sæ að björtu og viðu landi. Þar sumar brosir með sól og blæ — það sumar er ævarandi. Jórunn ólafsdóttir frá Sörlastöðum. Peir sem skrifa minningar- eða afmælisgreinar í íslendingaþætti, eru eindregið hvattir til þess að skila vélrituðum handritum, ef mögulegt er islendingaþættir 5

x

Íslendingaþættir Tímans

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Íslendingaþættir Tímans
https://timarit.is/publication/303

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.