Íslendingaþættir Tímans - 10.11.1979, Blaðsíða 2

Íslendingaþættir Tímans - 10.11.1979, Blaðsíða 2
Þorsteins. Hann átti sjálfur margar rit- gerðir iþessuriti. Kennslubók i esperanto eftir hann kom út 1909 (endurprentuð 1927), og enn fremur bókin Esperantólyk- ill áriö 1933. Meðritstjóri var hann aö Timariti lögfræðinga og hagfræðinga, er kom útá árunum 1922-24. Ástæða er til að nefna, að Hagstofan stóð ásamt öðrum hagstofum á Norðurlöndum að útgáfu ritsins „Sweden, Norway Denmark and Iceland in the World War” (New Haven 1930), og birtist þar ritgerð Þorsteins: „Iceland and the War”. Fyllri greinar- geröum Island í fyrra heimsstriðinu birt- ist i bók Þorsteins „Island under og eftir Verdenskrigen”, er kom út i Kaupmanna- höfn 1928. Eftir aö hann hætti á Hagstof- unni, tók hann að sér að vinna sérstök út- gáfustörf fyrir hana. Arið 1960, er hann var áttræður komútbókhans „íslensk mannanöfn. Nafngjafir 3ja áratuga 1921-50”, gagnmerkt og viðamikið rit. Þegar hann var 86 ára lét hann frá sér fara ritverkiö „Eitt tungumál fyrir allan heiminn”, sem hann þýddi og birtist I Lesbók Morgunblaðsins i framhalds- greinaformi veturinn 1966-67. Það hefur einnig verið sérprentað. Um Hkt leyti lauk hann viö tvö ættfræöirit, sem voru gefin út fjölrituð, annað þeirra mikið að vöxtum. Auk þeirra rita, er nú hafa verið talin, liggur eftir Þorstein fjöldi ritgerða og greina um hin margvislegustu efni. 011 ritverk Þorsteins bera merki mikill- ar vandvirkni, hlutlægni i meðferð efnis og alhliöa þekkingar á viðfangsefnum. Ritstm hans var meitlaður, skýr og lát- laus. Oft furðaöi ég mig á þvl, hve létt Þorsteinn átti meö aö koma hugsunum sinum i ritað mál. Hann samdi flókinn og vandasaman texta án þess að gera upp- kast og án þess að þörf væri á leiðrétting- um eftir á. Þetta geta ekki aðrir en allra færustu menn i framsetningu, og þeim fer stööugt fækkandi. — Hæggeröir menn eru oft seinvirkir, en Þorsteinn, sem aldrei virtist flýta sér, var einn hraðvirkasti maður, sem ég hef kynnst. Þaö var unun aö sjá hann vinna — hvernig fullskrifuð blöö með stflhreinni rithönd hans hrönn- uöustupp, að þvf er virtist áreynslulaust. Þegar höfð eru I huga öll opinber störf Þorsteins og umfangsmikil ritstörf hans, er það með ólíkindum, að tími ogstarfs- orka skyldi verða afgangs til aö sinna öðr- um hugðarefnum, en svo var þó i rfkum mæli. Hann var áhugasamur og virkur þátttakandi I margvislegri menningar- starfsemi fyrr og siöar. Bera þessi störf hans vott um óvenju vitt áhugasvið, víö- sýni og framfaravilja. Hér má t.d. nefna störf hans til framdráttar alþjóðamálinu esperanto. Hann var einn fyrsti esperantistinn hér á landi. A setningar- fundi alþjóöamóts esperantista, er haldið var í Reykjavik sumarið 1977, mætti hann sem gestur. Hann var mjög áhugasamur félagi f Vísindafélagi Islendinga alla tíð frá stofnun og i stjórn þess i mörg ár. Um 40áraskeið varhann I stjórn Sögufélags- ins. 25 ár I fulltnlaráöi Bókmenntafélags- 2 ins (hann var félagi þess i 77 ár), og I stjórn margra annarra félaga, þar á með- al Félags hagfræðinga, sem hann stofnaði og var fyrsti formaður fyrir. Samhliða embættisstörfum með öllu, sem þeim fylgdu, og fjölþættum áhuga- störfum, var Þorsteinn kennari i I hag- fræði viö Verslunarskólann á árunum 1916-29. Litið lát var á athafnasemi Þorsteins eftir að hann fór á eftirlaun i ársbyrjun 1951. Fyrstu árin eftir að hann hætti á Hagstofunni tók hann að sér að annast sérstök störf fyrir hana, og hann hélt áfram að gegna nokkrum trúnaðarstörf- um. Um áttrætt losaöi hann sig við þessi verkefni, ekki af þvi að hann þyrfti eða vildihlifa sér, heldur vegna þess aö hann haföi önnur meiri áhugamál. Þar var m.a. um að ræða ýmis ritstörf. En þá er ótalið það, sem Þorsteinn varði miklu af tima slnum til eftir að hann varð sjötug- ur: aö aðstoða gamla skólabræður, sem áttu um sárt að binda vegna elli og sjúk- leika. Gekk Þorsteinn að þessu verkefni með sömu atorku og ósérhlifni og ein- kenndi öll hans störf. Daglega kom hann til þeirra, spjallaði við þá, las fyrir þá úr blöðum eða bókum, og tók með sér I gönguferðir þá, sem höfðu heilsu til þess. Þessi umhyggja Þorsteins fyrir gömlum, bágstöddum félögum bar góövild hans og fórnarlund fagurt vitni. Það var fjarri Þorsteini að sækjast eftir vegtyllum og virðingarmerkjum, en hon- um þótti mjög vænt um það, þegar laga- oghagfræðideild Háskólans gerði hann að heiðursdoktor á 35 ára afmæli Háskólans 1946,fyrir merkilegtbrautryðjandastarf á ' sviði vi'sindalegrar skýrslugerðar um islenskan þjóðarbúskap. Þegar Þorsteinn varö sjötugur árið 1950, gáfu nokkrir hag- fræðingar ogsamstarfsmenn Þorsteins út afmælisrithonum til heiðurs. I þvi voru 15 ritgeröir jafnmargra höfunda. Heiðursfé- lagi var Þorsteinn i Félagi hagfræðinga, Vísindafélaginu, Bókmenntafélaginu og Sambandi isl. esperantista. Þegar Halldór Júliusson fyrrv. sýslu- maður dó i mars 98 1/2 árs gamall, varð Þorsteinn elstur stúdent á Islandi. Hann mætti við skólauppsögn vorið 1977, er hann var 75 ára stúdent. Eftir fráfall Þorsteins færist elsti stúdentsaldur niður s* um 8 ár: Þeir bræður Helgi Skúlason augnlæknir á Akureyri, nú I Reykjavik, og Skúli Skúlason fyrrverandi ritstjóri, sem búsettur er i Noregi, eru nú með hæstan stúdentsaldur. Þeir uröu stúdentar áriö 1910. Ef tilvillhefur mjög reglubundið liferni átt þátt I þvi, að Þorsteinn náði svona há- um aldri. Hann var og mjög hófsamur um mat og drykk, tóbak notaði hann aldrei, ogáfengibragöaðihannekki, nema þegar honum var fært glas i samkvæmum. Sjálfum sér likur tók hann við þvi og dreypti á til málamynda, frekar en að valda umstangi meðþvf að biðja um ann- að. Þorsteinn naut mjög góðrar heilsu á mestum hluta æviskeiös sins. Um fertugs- aldur fékk hann þó hættulegan sjúkdóm, sem leiddi til þess, aö nýra var tekiö úr honum. Þetta var árið 1920 og aögeröina framkvæmdi einn þekktasti skurölæknir Dana þá, prófessor Rovsing. Næstu ára- tugi var heilsa Þorsteins góð, en á árinu 1955 hætti nýra hans að starfa, og var hann þá talinn af. En það fór af stað aftur, og enn kenndi hann sér ekki meins i 16 ár, uns hann voriö 1971 fékk heilablæöingu og gamlir, inngrónir berklar tóku sig upp. Hann komst fljótt yfir þaö siðara, en hann misstimál ogminni. Hann fékk málið aft- ur eftir nokkra mánuði, en minnið var tapað. Siðustu ár hans voru þvi dapurleg, þó ekki svo, að hann virtist ekki hafa ánægju af að handleika bækur sinar. Létt- ur var hann i spori til þess siðasta og hann fór út að ganga svo að segja daglega, þar til i nóvember 1978. Þorsteinn hélt svo að segja óskertum andlegum og likamlegum kröftum fram yfir nirætt, og það sem meira var — hann var ungur í anda og fylgdist af áhuga með þvi, sem gerðist, bæði hér heima og úti I hinum stóra heimi. Þorsteinn Þorsteins- son var einstækt dæmi um niræðan mann sem ekki hafði einangrast frá umhverfi sinu og samtiö. Konu sina, Guörúnu dóttur Geirs T. Zoega rektors, missti Þorsteinn árið 1955. Hún var merkiskona enda af góðu bergi brotin og alin upp á einu mesta menn- ingarheimili i Reykjavik á sinni tið. Auk þess að stjórna mannmörgu heimili, tók hún þátt I félagsmálum, starfaði m.a. mikiö I kvenfélaginu „Hringnum”, og var ein af þeim konum, sem ötulast unnu að þvi að koma á fót fuilkominni barna- spitaladeild innanLandspitalans. Börn þeirra Guörúnar og Þorsteins eru þessi: Geir verkfræöingur, f. 5/7 1916, kvæntur Inge Jensdóttur f. Laursen. Hannes aðalféhirðir Landsbankans, f. 7/12 1918, kvæntur önnu Hjartardóttur. Þorsteinn viðskiptafræðingur, f. 31/3 1920, kvæntur Helgu Hansdóttur. Narfi rafmagnstæknifræðingur, f. 23/5 1922, kvæntur Gyðu Guðjónsdóttur. Bryndis, f. 26/9 1923, gift Helga H. Arnasyni verkfræðingi. Barnabörn þeirra Guðrúnar og Þorsteins eru 13, og barnabarnabörnin 6. Þorsteinn bjó I húsi sinu, nr. 57 viö Laufásveg, alla tfö eftir að hann byggði þaðárið 1926. Eftir að Guðrún Geirsdóttir féll frá bjó Þorsteinn um árabil meö Þorsteini syni sinum og konu hans, Helgu Hansdóttur. Siðustu árin naut hann um- önnunar sonardóttur sinnar, Guörúnar Hannesdóttur, og manns hennar, Vilhjálms Kjartanssonar verkfræðings. Hjá báöum átti Þorsteinn hið besta athvarf. Ég komst I samband við Þorstein þegar I byrjun starfsferils mins, er ég geröist aðstoðarmaður nýstofnaðrar gjaldeyris- kaupanefndar I janúar 1941. Hann var leiðandi maður i' þeirri nefnd og samdi meðal annars fundargerðir með ákvörð- islendingaþættir

x

Íslendingaþættir Tímans

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Íslendingaþættir Tímans
https://timarit.is/publication/303

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.