Íslendingaþættir Tímans - 10.11.1979, Blaðsíða 8

Íslendingaþættir Tímans - 10.11.1979, Blaðsíða 8
Sigurbjörg Einarsdóttir F. 14. júnl 1888 D. 8 júli 1979. „Sælir eru hógværir” „Sælir eru miskunnsamir” Þessi orö Fjallræöunnar koma mér i hug, nú þegar ég minnist nýlátinnar vel- gjöröar- og vinkonu minnar Sigurbjargar Einarsdóttur, fyrrv. kennslukonu og siöar kaupkonu. Hún fæddist aö Endageröi á Miönesi þann 14. júni 1888. Foreldrar hennar voru þau mætu hjón: Einar Jóns- son sjóm. og bóndi I Endageröi og Margrét Hannesdóttir frá Prestshúsum I Mýrdal. Sigurbjörg er aöeins tiu ára gömul, þegar faöir hennar drukknar, elst þriggja systkina. En móöir þeirra lét ekki bilbug á sér finna, heldur hélt búskap og útgerö áfram af einbeitni og dug. Fjórtan ára gömul er Sigurbjörg komin i Kvennaskólann i Reykjavik, sem þá var undir stjórn frú Þóru Melsted, og lauk hún þaöan prófi eftir tveggja vetra nám. — Kennarapróf frá Flensborgarskóla leysti hún af hendi 1908. Og 1909 sótti hún kennaranámskeiö hér, sem séra Magnús Helgason, sá kunni skólamaöur stýröi og stjórnaöi. Siöan hóf Sigurbjörg kennslu viö barnaskólana i Sandgeröis- og Hvalneshverfi á Suöurnesjum. Fórhenni kennslan svo vel úr hendi, aö orö fór af. Hún var glæsileg stúlka skarp- greind, og naut án allrar fyrirhafnar, bæöi viröingar og hlýöni hinna ungu nemenda sinna. Frá þessum ungu árum Sigurbjargar llöa áratugir, þar til leiöir okkar liggja saman. Þaö gjöröist I sambandi viö prestsþjónustu mina sem aukaprests i auöugustu hverfum Reykjavikur þá, á vegum sóknarnefndar og sóknarpresta Dómkirkjusafnaöarins. Haföi samist svo viö skólastjóra og skólanefndina þar innra, aö messurnar færu fram I skóla- stofu i upphafsálmu Laugarnesskólans sem þá stóö þar ein og tiltölulega rtý- byggö. Stefnt var aö þvi, aö þær hæfust rétt fyrir jólin 1936. Þaö tókst. Fyrsta messugjöröin fór þar fram þann 13. desember 1936. Einhver haföi skotiö þvi aö mér, aö þótt messurnar yröu auglýstar I blööum, væri ekki verra aö setja skrifaöa auglýsingu i eina búö eöa svo þarna I hverfinu. A horninu á Laugarnesvegi og Sund- laugavegi stóö þá reisulegt og traust gult steinhus, sem stendur þar enn. Og I horni kjallarahæöar var verzlun. Ég sá, aö tals- vert var gengiö þar út og inn, svo auöséö var, aö þarna komu rnargir. Þetta hús reyndist eign systkinanna velmetnu frá Endageröi á Miönesi, þeirra 8 Sigurbjargar fyrrum kennara, sem nú haföi gjörst vel metin kaupkona þarna á horninu, Hannveigar systur hennar, sem látin er fyrir all-löngu siöan og Svein- bjarnar bróöur þeirra, skipstjóra og út- geröarmanns. Sveinbjörn, sem var harö- duglegur framkvæmdamaöur, var kvænt- ur Guömundu Jónsdóttur frá Eyrar- bakka, af Bergsætt. Þau eignuöust tvo velgjöröa myndarsyni: Ingimar flug- stjóra sem kvæntur er Helgu Zoega, og Einar fiöluleikara og konsertmeistara I Malmö i Sviþjóö, sem kvæntur er Hjördisi Vilhjálmsdóttur frá Siglufiröi. Eru þau Sveinbjörn og Guömunda látin fyrir all- löngu slöan. Sigurbjörg gekk tveim frænkum slnum I móöurstaö, þeim Sigrlöi (Sirry) Siguröardóttur og Mörtu Elias- dóttur. Var hún þeim bæöi félagi og vinur, og sá leiöbeinandi er aldrei brást. Þessi verzlun Sigurbjargar, þarna á horninu, var auösjáanlega einn af miö- deplum Laugarneshverfisins á þeirri tíö, — ogkannske sá staöur þá, þar sem einna flestir hverfisbúar hittust, I sambandi viö sin daglegu innkaup. Þegar ég haföi komist aö búöarboröinu og boriö upp erindi mitt viö Sigurbjörgu — hvort ég mætti festa þar upp messutil- kynningu hvern föstudagsmorgun þá brosti hún viö mér sinu hófsama hljóöláta og hlýja brosi og kvaö mér heimilt aö festa þar upp messu-auglýsingu svo oft sem mér hentaöi. Þar meö voru vináttu- bönd okkar knýtt. Slöan kom ég þar vikulega i nær tiu ár og festi messu-auglýsingu á vegginn meö fjórum bólum sem ég haföi meöferöis. Viö töluöum hverju sinni meira eöa minna saman, eftir þvi sem á stóö. Og greind hennar og vitsmunir og yfirsýn og velvild hennar I annarra garö, varö mér þvi ljós- ari og dýrmætari sem lengra leiö. En Sigurbjörg kom enn nánar viö sögu meöan allt var enn óvlst um framvindu kirkjulega starfsins I Laugarneshverfinu. Það var stofnaöur blandaöur kór til aö syngja viö messurnar. 1 fyrstu var æft I heimilum hinna ýmsu kórfélaga en á þvi voru mikil vandræöi, húsnæöi var þá víö- ast miklu þrengra en nú er, fátækt meiri, og þvi minni möguleikar til allrr.r risnu. En enn fór þaö svo að þaö var Sigur- björg Einarsdóttir, sem bjargaði málum. Þegar liöa tók á, uröu söngæfingarnar I stofunni hennar, björtu og rúmgóöu á Kirkjubergi viö orgeliö hljómþýöa, sem hún hafði átt i svo mörg ár. — Og oft fylgdi aö auki kaffiveitingar og kökur til söng- fólks og söngstjóra, allt boriö fram af tak- markalausri gestrisni. Nokkrum árum. áöur en ég hætti prestskap fyrir aldurs sakir og Sigurbjörg þá löngu áöur hætt störfum og komin i skjól Sigrlöar Siguröardóttur, uppeldis- dóttur sinnar og Þórarins Alexandersson- ar, manns hennar og Hönnu hjúkrunar- konu dóttur þeirra, — sem var Sigur- björgu eins og ljósgeisli undir hiö siöasta, — Þegar þannig er komiö sögu, þá sendir htín mér orö aö finna sig, — Afhendir hún mér þá fagra Bibliu til aö leggja á altari Laugarneskirkju, i stað þeirrar gömlu, er bæöi var oröin lúö og nokkuö snjáö. Veit ég ekki betur, en aö hún liggi þar á altar- inu enn I þvl guöshúsi.sem hún sjálf, á sinni tiö, átti rikan þátt I aö reisa. A hinu kæra heimili Sigriðar og Þórarins átti Sigurbjörg svo ævikvöldiö viö þá umhyggju og atlæti, sem var henni skjól og styrkur, allt til hinztu stundar. „Varðveit hjarta þitt framar öllu ööru” — segir Guös Orö — ,,þvl aö þar eru upp- sprettur lifsins”, Sigurbjörg Einarsdóttir varöveitti þannig hjarta sitt, I hógværö og hljóöleika, — aö hún haföi varanleg áhrif á alla, sem umgengust hana aö ráöi. Hún andaöist þann 8. júlí sl. og var jarö- sett frá Dómkirkjunni þann 19. sama mánaöar. Blessuö sé minning hennar ástvinum hennar og samferöarfólki öllu. Garöar Svavarsson islehdinqaþættir

x

Íslendingaþættir Tímans

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Íslendingaþættir Tímans
https://timarit.is/publication/303

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.