Íslendingaþættir Tímans - 04.10.1980, Síða 3
Bræðraminning
1 lslendingaþáttum 20. sept. s.l. birtust
minningargreinar um bræðurna þrjá,
sem hér er getiö. Af vángá birtist
mynd af bræörunum ekki meö greinun-
um. Þvi er bætt úr nú ásamt endur-
birtingu nokkurra greinanna og beöist
velvirðingar.
Vilhjálmur Asmundsson, vélstjóri.
Fæddur 20. mai 1926, dáinn 4. janúar 1960.
Friörik Heiöar Asmundsson, skipstjóri.
Fæddur 20. mars 1930, dáinn 28. nóvember
1979.
Kristinn Ferdinant Asmundsson, vél-
stjóri. Fæddur 8. júni 1928, dáinn 22. mai
1980.
Deyr fé,
deyja frændr
deyr sjálfr et sama.
En oröstirr
deyr aldrigi
hveims sér góöan getr.
(tlrHávamálum)
1 dag 7. júli 1980, kveöjum viö frænda
minn, Kristin Ásmundsson, hinstu
kveöju — annan bróöurinn á nokkrum
mánuöum og hinn þriöja i rööinni á tveim
tugum ára. Ég get ekki látiö vera aö
minnast þeirra allra á þessum degi — þvi
svo samtengdir eru þeir i minum huga frá
bernsku, þessir glæsilegu frændur minir,
sem ég gat ekki annað en litiö upp til, þvi
þeir báru höfuö og heröar yfir flesta.
Hver er tilgangurinn meö lifi okkar,
spyrjum viö, þegar okkur berast þau
sorglegu tiöindi, aö nákominn ættingi,
fullur af starfsorku, sé burtu kallaður svo
sviplega eins og þessir kæru frændur
minir voru. Min fyrstu viöbrögö voru,
þetta getur ekki veriö satt, og satt best aö
segja fannst mér mælirinn fullur aö
kvöldi 23. mai 1980, þegar mér bárust þau
válegu tiðindi aö Kristins væri saknað Uti i
Helsinki i Finnlandi. Já, enginn veit hver
næstur er, sist heföi ég trúaö þvi, þegar
Kristinn kvaddi mig tæpum 2 vikum áöur
svo hlýlega, aö þaö væriisiöasta sinn sem
ög sæi hann lifs.
Foreldrar þeirra bræöra voru Steinunn
Þorsteinsdóttir og Asmundur Jóhanns-
son, bóndi á Kverná i Grundarfiröi, sem
bæöi eru látin.
Vilhjálmur, fæddur 20. mai 1926, fórst
með allri áhöfn á Mb. Rafnkeli 4. janúar
!960. Hann var kvæntur Gróu Axeisdóttur
frá Sandgeröi og áttu þau 3 börn, Sigriöi,
Asmund og Axel, sem var 6 mánaöa þegar
faðir hans dó. Gróa átti eina dóttur áöur,
Þorbjörgu, sem hann gekk i föðurstað.
Kristinn Ferdinant, fæddur 8. júni 1928,
drukknaöi i Helsinki i Finnlandi 22. mai
1980. Hann var kvæntur Helgu Kristjáns-
'slendingaþættir
dóttur frá Reykjavik og áttu þau 2 dætur,
Steinunni og Olgu.
Friörik Heiöar, fæddur 20. mars 1930,
drukknaði I Hull i Englandi 28. nóvember
1979, var jarösettur 22. febrúar 1980 i
Reykjavik. Hans kona var Þorgerður
Gunnarsdóttir frá Reykjavik og áttu þau 3
börn, Þorstein, Ingibjörgu og Friörik Þór
og eina fósturdóttur, Hrefnu, sem ólst upp
hjá þeim frá 6 ára aldri.
Alls voru systkinin frá Kverná niu og af
þeim stóra hópi voru þessir yngstir. Tveir
bræöur, Kristfinnur og Búi, dóu ungir. A
lifi eru tveir bræöur, Þorsteinn og Jóhann,
búsettir á Kverná og tvær systur, Asta og
Hallfriöur, i Reykjavik.
Allir voru þessir bræöur vélstjórar, en
Friörik var skipstjóralæröur aö auki.
Þessir frændur minir áttu þaö sameigin-
legt aö hafa gott hjartalag, góöir viö alla
sem voru minni máttar.
Skarö er fyrir skildi á heimilum þeirra.
Þeir áttu allir falieg heimili, sem bera
vitni umhyggju þeirra fyrir velferð sinna
nánustu.
Ég sendi eiginkonum, börnum, barna-
börnum og systkinum hinna látnu minar
innilegustu samúðarkveðjur á þessum
sorgarstundum.
Megi minir kæru frændur hvila I friði.
Blessuö sé minning þeirra.
Frænka.
+
Mér er þungt i hjarta, er ég skrifa þessi
kveöjuorð til mágs mins, Kristins As-
mundssonar, er veröur til moldar borinn
á morgun, mánudag.
Þaö eru aöeins rúmir fjórir mánuöir
siðan við kvöddum eiginmann minn, er
var bróöir hans, en hann fórst einnig af
slysförum. Þá var Daddi, eins og viö fjöl-
skyldan kölluöum hann, mér sem stóri
bróöir, sem studdi mig og styrkti, eins og
reyndar öll íjölskyldan.
Þaö var stór barnahópurinn sem hjónin
aö Kverná, þau Steinunn Þorsteinsdóttir
og Asmundur Jóhannsson, áttu og ólu
upp.
Nú kveðja systkinin sinn 5. bróður, en
eftir lifa tvær systur og tveir bræöur. öll
þessi systkin eru og hafa veriö meö af-
brigðum duglegt fólk og var Daddi þekkt-
ur fyrir sinn dugnaö. Betri starfskraft en
hann, held ég aö enginn vinnuveitandi
hafi getaö fengiö.
Helga min, ég og börn min vottum þér
og dætrum þinum innilega samúö og biöj-
um Guö aö styrkja ykkur og okkur öll I
okkar sorg.
Viö Helga min eigum góöar minningar
um þá bræöur. Betri og hugsunarsamari
heimilisfeöur held ég aö sé ekki hægt aö
fá.
Aö lokum kveö ég Dadda minn, meö
þökk fyrir allt sem hann hefur veriö mér
og börnum minum, ekki hvaö sist sl.
vetur, er ég var niöurbrotin manneskja,
þá var Daddi mér ómetanleg stoö.
Geröa mágkona.
Sjórinn hefur veriö okkur gjöfull og
margur hugdjarfur drengur lagt þvi leiö
sina á hann, I þeirri von aö hljóta góöa
lifsafkomu fyrir sig og sina og ekki siöur i
þeim tilgangi aö veröa islensku þjóöfélagi.
nýtur þegn. Þvi afkoma okkar sem þjóöar
hefur byggst á þeim mikla afla sem dug-
andi sjómannastétt hefur fært aö landi.
Ægir konungur er frekur til skattsins óg
krefst gjalda fyrir þab sem dregiö er úr
djúpi sjávar, og oft hafa veriö höggvin
ógnvekjandi skörö I raöir þeirra hraustu
sona Islands sem hafa gert hafiö aö
starfsvettvangi.
Slik uröu örlög þeirra bræöra sem hér
er minnst. Þeir Kvernárbræöur, sem svo
voru nefndir i daglegu tali, voru á margan
3