Íslendingaþættir Tímans - 29.12.1982, Síða 15

Íslendingaþættir Tímans - 29.12.1982, Síða 15
Sjötug Ida Ingólfsdóttir I dag er sjötugsafmæli Idu Ingó'fsdóttur, Idu í Steinahlíð eins og hún er oft nefnd af þeim sem Þekkja hana. Foreldrar Idu voru hjónin Hlín Jónsdóttir og Ingólfur Jónsson. Hann var frá Jarlsstöðum í Bárðardal, en Hlín var alin upp hjá frændfólki á Sandhaugum í Bárðardal. Jarlsstaða- bræður voru annálaðir hestamenn, og báru svo ntikinn heimsmannsbrag, að miklu var líkara að be>r hefðu ferðast víða og samið sig að háttum ntlendra þjóða, heldur en verið bændur á íslandi. ^jarni Pfamhald af bls. 16 Fullyrða má að það hafi verið mikið happ fyrir •safjarðarkaupstað og atvinnureksturinn þar og 'dðar á Vestfiörðum þegar Bjarni og fjölskylda nans flutti til Isafjarðar. Á ísafjarðarárum Bjarna atti ser stað mikil uppbygging aðalatvinnuveganna, utgerðar og fiskvinnslu. Hann hafði mikinn áhuga ®g næman skilning fyrir þörfum þess rekstrar. ytnn hann hafa gert það sem unnt var til að greiða ‘yrif þeirri starfsemi. t bæjarstjórn ísafjarðarkaupstaðar var Bjarni kjörinn 1955 á vegum Framsóknarflokksins. Átti hann frá því sæti í bæjarstjórninni til 1970. Hann ''ar varaforseti bæjarstjórnar 1958-1962 og forseti 762-1965 Bjarni lagði mikla alúð og vinnu í næjarmálastörf sín. Hann var jafnan tillögugóður °g fundvís á úrræði um framkvæmd þeirra tjtjarniálefna sem á dagskrá voru hverju sinni. t*ann beitti sér fyrir ýmsum mikilsverðum málum °g má þar t.d. nefna stofnun Byggingarlánasjóðs safjarðarkaupstaðar, sem létt hefur mikið undir fneð byggingu íbúðarhúsnæðis í bænum. Varaþingmaður í Vestfjarðakjördæmi fyrir famsóknarflokkinn var Bjarni kosinn 1959-1967 °g t’ingmaður frá 1967-1974. Hann hefur átt sæti 1 anðstjórn Framsóknarflokksins. Sem þingmaður §erði hann sér far um að kynnast sem allra best 'num ýmsu málefnum kjördæmisins og beitti sér ® Alþingj fyrir margháttuðum framfaramálum er Jördæmið vörðuðu. Bjarni var norskur vararæðismaður á ísafirði ‘fá 1952-1973. Á þessum tímamótum er ástæða til að þakka .. tarna fyrir störf hans á ísafirði, svo og störf hans a Alþingi sem þingmanns Vestfjarðakjördæmis. nnu margir Vestfirðingar geta tekið undir þær Pakkir. j ^'ginkona Bjarna er Gunnþórunn Björnsdóttir, 7rrv. alþingismanns og kaupfélagsstjóra, og konu ans Rannveigar Gunnarsdóttur. Gunnþórunn er gfeind kona og mikilhæf húsmóðir, svo sem ejmili þeirra hjónanna ber vott um. Fg undirritaður þakka Bjarna fyrir góð kynni °g langt og gott samstarf. Við Oktavía óskum P.eim Bjarna og Gunnþórunni allra heilla í tilefni -Wugsafmælis hans. . Jón Á. Jóhannsson. ‘slendingaþættir Hlín var afkomandi Sturlu á Rauðá, eins og mikill fjöldi fólks í Pingeyjarsýslu og víða um land. Á því ættartré erum við Ida blöð á sama kvisti, og langar mig að senda frænku minni afmæliskveðju í Timanum í dag. {vöggugjöf hlaut Ida margt það, sem vel hentar í þessu veraldarvolki. Hún er hreinlynd, og enginn þarf að vera í vafa um skoðanir hennar á mönnum og málefnum. Frjó í hugsun, glaðleg í viðmóti og jafnan æðrulaus. Hún er engin kröfugerðarmanneskja, en hefur gott lag á að bjargast við það sem fyrir hendi er, og framúrskar- andi dugleg. Ida er örlát og hjálpsöm, eins og margir geta borið vitni um - góð og falleg kona, sem ævinlega er jafngott að hitta. Ida stundaði nám í fósturskóla í Noregi, og úr þeirri för kom hún vel undir það búin að stunda það starf, sem hún hafði menntað sig til. í nær 40 ár hefur hún verið í föstu starfi hjá Reykjavíkur- borg, lengst af forstöðukona dagheimilisins í Steinhlíð. Þar má segja að hún hafi unnið sitt ævistarf. Þar var heimili hennar, og öll börn, sem þar dvöldu, voru börnin hennar. „Þessi elskulegu börn“, segir Ida með rödduðu þeirrisem ersvo mjúkt og fallegi. í Steinahlíð var reynt að uppfylla allar þarfir barnanna, bæði líkamlegar og andleg- ar. Ida hafði held ég alltaf nóga húshjálp, eins og sagt var áður fyrr, og lærðar fóstrur þegar hægt var að fá þær, en sjálf vakti hún yfir öllu eins og besta móðir. Börnin fundu hjá henni öryggi og vernd, sem sum þeirra skorti máski heima fyrir, og svo getur nú alltaf einhver vandi verið á ferðum. Þegar Steinahlíðarbörnin voru kvefuð var oft sótt fast að vera sem næst Idu, láta hana sinna sér, taka sig upp, og þó ekki væri nema ná í svuntuna hennar til að þurrka sér um augu og nef, þá var það skárra en ekkert. Það er eitthvað sérstakt við Idu sem gerir börnum svo létt að hænast að henni. Hún finnur auðveldlega réttu leiðina í samskiptum sínum við þau, og gerir fyrir þau það sem þeim kemur best í bráð og lengd. í Steinahlíð var alltaf allt í röð og reglu, og framúrskarandi hreinlæti. Heimili Idu var á efstu hæðinni undir súð, og brattur stigi upp. Margir gengu þann stiga, bæði stórir og smáir. Vinahópur Idu er stór, og oft var fjölmennt í litlu íbúðinni. Þó var aldrei þröngt. Þar voru margar góðar veislur haldnar, því að Ida er mjög rausnarleg og allt svo gott sem hún ber á borð sitt. Fróðlegar og skemmtilegar umræður fylgdu með og margar góðar sögur voru sagðar. Nú býður Ida ekki oftar í sunnudagsmat í Steinahlíð. En þó að hún sé ekki lengur fósturmóðir margra barna þar, þá mun hana hvorki skorta áhugamál né verkefni. Það em margir sem þarfnast hjálpar í veikindum eða öðrum erfiðleikum, og einhvers staðar kemur Ida þar við sögu á sinn hógværa hátt. Hún heldur áfram að fara í Keflavíkurgöngu - bara að hún gæti nú komið hernum burt - heimsækja vini sína og bjóða þeim heim. Hella nokkrum daggardrop- um í glas sér og öðrum til hressingar og upplyftingar. Ida mín. Ég vona að þú eigir eftir að fara margar ferðir um landið og njóta unaðssemda þess. Ganga út á svalir í fögru veðri og sjá dásamlegt útsýnið frá níundu hæð í Austurbrún. Og þar óska ég og vona að þú staldrir við sem lengst áður en hærra er haldið. Innilegar afmælisóskir frá okkur Jóhanni. Helga Kristjánsdóttir Þeir sem að skrifa minningar- eða afmælis- greinar 1 íslendinga þætti, eru vinsamlegast beðnir um að skila vélrituðum handritum 15

x

Íslendingaþættir Tímans

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Íslendingaþættir Tímans
https://timarit.is/publication/303

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.