Íslendingaþættir Tímans - 29.12.1982, Side 16
Runólfur Jónsson
bóndi, frá Litla-Sandfelli Skriðudal
Vinur minn og gamall sveitungi Runólfur
Jónsson varð áttræður 4. nóvember síðastliðinn.
Af því tilefni langar mig að senda honum nokkrar
línur þó seint sé.
Runólfur er fæddur í Stóra-Sandfelli í Skriðdal
4/11 1902. Sonur merkishjónanna Kristbjargar
Kristjánsdóttur og Jóns Runólfssonar, bæði frá
Grófgerði á Völlum. Þau Jón og Kristbjörg flytja
að Litla-Sandfelli árið 1904 og búa þar til 1925,
en það sumar lést Jón. Banamein hans var
lungnabólga. Jón var lengi í hreppsnefnd Skrið-
dalshrepps og oddviti hennar. Hann var listaskrif-
ari. Þau Jón og Kristbjörg áttu þrjú börn: Björgu
Ijósmóður og húsfreyju á Neskaupstað, Runólf,
sem þessar línur eru helgaðar, og Gróu húsfreyju
í Geitdal.
Runólfur ólst upp í Litla-Sandfelli hjá foreldr-
um sínum og systrum. Hann var eini drengurinn
og vafalaust vandist fyrst og fremst útiverkum.
Skólaganga hans var ekki önnur en barnafræðsla
fyrir fermingu. En hann var eðlisgreindur,
stálminnugur og listaskrifari, og hafa börn hans
eftir því sem ég best veit erft frá honum
rithöndina.
Runólfur byrjaði búskap í Litla-Sandfelli 1926
með sinni ungu konu Vilborgu Jónsdóttur frá Vaði
í Skriðdal, mestu myndar og ágætis konu, sem
búið hefur manni sínum og börnum farsælt og gott
heimili. Það var erfitt að hefja búskap á þeim
árum með iítil efni og verðlag á afurðum fallandi.
En þau voru samhent og búið stækkaði. í þá daga
var eingöngu sauðfja'rbúskapur, og varðaði miklu
að fá sem mestan arð eftir hverja á. Runólfur var
góður fjármaður og fjárglöggur og hafði góðan
arð af sínu fé. Það er gott sauðland í Litla-Sand-
felli.
Mér eru í fersku mynni reiðhestarnir þínir
Runólfur. Það var gaman að horfa á þá bruna á
töltinu og knapinn hress og glaður.
í Litla-Sandfelli var lítið tún og litlar og
reytingssamar engjar. Varð Runólfur því að fá
engjar að láni á öðrum bæjum. Þessi engjahey-
skapur var bæði erfiður og tafsamur. Runólfur
hóf því að stækka túnið, fyrst með hestaverkfær-
um og síðar með vélknúnum, og fór svo að hann
tók allan sinn heyskap af ræktuðu landi. Þá er
næst að geta bygginganna í búskapartíð Runólfs
og Vilborgar í Litla-Sandfelli.
Þá er fyrst að nefna stórt og vandað íbúðarhús,
þá stór heyhlaða og votheysgryfjur úr steinsteypu
og gripahús steinsteypt eða úr blönduðu efni. Þá
má fyllilega taka undir það sem stendur í Sveitir
og jarðir í Múlaþingi:, að í búskapartíð Runólfs
og Vilborgar: bættu þau jörðina svo mikið, að
segja má að þau gerðu kot að stórbýli með ræktun
og byggingum.
Runólfur var félagslyndur og gegndi margvís-
legum störfum fyrir sína sveit. A unga aldri
starfaði hann mikið í ungmennafélagi Skriðdæla.
Hann var lengi í skattanefnd og gjaldkeri
sjúkrasamlags. Mörgum fleiri störfum gegndi
hann þó þau verði ekki talin upp hér.
Þau Runólfur og Vilborg eignuðust níu börn.
Þrjú dóu ung, en þau sem upp komust eru:
Kristbjörg húsfreyja Akureyri, Björgvin bóndi
Dvergasteini Eyjafirði, Ingibjörg húsfr. Lauga-
landi Eyjafirði, Sigurður smiður Akureyri, Arný
á Akureyri og Kjartan bóndi á Þorvaldsstöðunt1
Skriðdal. Öll eru systkinin mesta manndómsfól >
vel gefin, góðir þjóðfélagsþegnar og eiga marga
afkomendur.
Árið 1958 hætta þau Runólfur og Vilborg
búskap í Litla-Sandfelli og flytja til Akureyrar
Voru þá börn þeirra sum flutt norður á unda
þeim. Runólfur vann í mörg ár hjá verksmiðjunn'
Gefjun , og sfðan vann hann við blaðið Dag •
ár, hætt þar 1978.
Heimili þeirra í Langholti 17 er vistlegt og
þægilegt. Þar ríkir sama gestrisni og glaðværð eins
og í Litla-Sandfelli. Þangað er gott að koma, þa
get ég borið um. Ég heimsótti þau á síðastliðnunt
vetri, voru þau bæði hress og glöð þrátt fyrir haan
aldur. Það jók ekki Iítið á gleði þeirra að Runólfnr
sem var að verða blindur, hafði stuttu áður veri
skorinn upp af Ragnari Sigurðssyni augnl*km>
með þeim frábæra árangri að hann getur nú les*
gleraugnalaust.
Ég hef þessar línur ekki lengri. Við hjónin
óskum þér til hamingju með áttræðisafmælið.
að þið megið búa glöð og hress enn um sinn
Langholti 17, í skjóli barna, fjölskyldna þeirra og
annarra vina.
Stefán Bjarnason
Flög°
Sjötugur
Bjarni
Guðbj ör nsson
bankastjóri og fyr
Bjarni Guðbjörnsson, bankastjóri Útvegsbank-
ans í Reykjavík og fyrrverandi alþingismaður
Vestfjarðakjördæmis, átti sjötugsafmæli 29. nóv-
ember s.l. Hann er fæddur í Reykjavík. Foreldrar
hans voru hjónin Guðbjörn Guðbrandsson bók-
bindari þar og Jensína Jensdóttir frá Hóli f
Hvammssveit. Bjarni lauk gagnfræðaprófi frá
Menntaskólanum í Reykjavík 1930 og kennara-
prófi frá Kennaraskóla íslands 1941. Hann hóf
störf við Útvegsbankann í Réykjavík 1941 og
hefur starfað við þá stofnun síðan. Um tíma var
hann við nám og störf við Privatbanken í
Kaupmannahöfn og Skandinaviskabanken í
Stokkhólmi. Hann var útibússtjóri við Útvegs-
bankann á ísafirði á árpnum 1950-1973. Útibús-
stjóri við útibú ÚtVegsbankans í Kópavogi var
hann frá 1973-1975, en það ár frá 1. maí var hann
ráðinn bankastjóri við Útvegsbankann í Reykja-
vík, aðalbankann, og því starfi hefur hann gegnt
síðan. Bjarni hefur átt sæti í stjóm Fiskveiðasjóðs
Íslands, í stjórn Iðnþróunarsjóðs og í stjórn
þingmannasamtaka Atlantshafsbandalagsins.
Framhald af bls. 15
íslendingaþ®^'