Íslendingaþættir Tímans

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Saqqummersitaq pingaarneq:

Íslendingaþættir Tímans - 23.03.1983, Qupperneq 6

Íslendingaþættir Tímans - 23.03.1983, Qupperneq 6
Hersilía Sveinsdóttir frá Mælifellsá Fædd 30. nóvember 1900 Dáin 2. mars 1983 Frænka mín Hersilía Sveinsdóttir lést að heimili sínu Hjarðarhaga 32 hér í borg miðvikudaginn 2. mars s.l. Hersilía var fædd á Mælifellsá á Efribyggð í Skagafirði, dóttir þeirra hjónanna Sveins Gunn- arssonar og Margrétar Þórunnar Árnadóttur. Hún var yngst 15 systkina sem öll eru nú látin utan tvö. Á æskuheimili Hersilíu var oft margt um manninn og glatt á hjalla því Mælifellsárhjónin voru þekkt um allan Skagafjörð fyrir greiðasemi og gestrisni. Ekki skortir þar heldur náttúrufeg- urðina. í suðri rís Mælifellshnjúkur af hvers toppi sést í sjö sýslur Iandsins í góðu skyggni. í austri teygja sig til himins Blönduhlíðarfjöll og Glóða- feykir en í norðri trjónar Tindastóll og eyjarnar Drangey og Málmey blasa við. 1 vestri eru síðan Efribyggðarfjöll en Mælifellsá er einmitt við suðausturrætur þeirra. Af kambabrúnum í austur- hlíðum þeirra fjalla getur, um sólarlagsbil þegar horft er yfir Skagafjörð, að líta náttúrufegurð sem lætur fáa ósnortna og gleymist aldrei þeim er litið hefur. Þær aðstæður sem hér er lýst hafa efalaust haft djúpstæð áhrif á Hersilíu allt hennar líf og haft si'n hann lattur til þess af Ástu konu sinni (hún hefur alltaf verið kölluð Ásta í okkar fjölskyldu), sama hlýjan og vinsemdin alltaf frá henni. Það má segja að heimili þeirra hjóna hafi alltaf staðið opið um þjóðbraut þvera. Ef einhver af frændfólkinu að vestan hafði verið á ferð, og ekki haft tíma til þess að koma við á Akranesi, þá þóttu það ekki góðar fréttir á þeim bæ. Þegar ég og systir mín voru unglingar og komnar hér til Reykjavíkur, birtist Bjarni frændi rétt fyrir páskana, og sagðist vera kominn til að sækja okkur til þess að hafa okkur hjá sér í páskafríinu. Áttum við dýrðlega daga á Akranesi hjá þeim hjónum. Svona nokkuð, sem gert er fyrir unglinga, gleymist ekki. Við erum svo mörg, sem höfum margt að þakka að leiðarlok- um. Þau Bjarni og Ásta voru búin að vera t hjónabandi í rúm 48 ár. Ég held að þau hafi átt ákaflega góða ævi saman, áfallalausa að maður getur sagt, borið ást og umhyggju hvort fyrir öðru. Drengurinn þeirra hefur orðið nýtur og góður þjóðfélagsþegn, eignast góða konu og heilbrigð börn. Sjálf hafa þau verið heilsuhraust þar til Bjarni veiktist fyrir rúmum tveimur árum, og hefur átt við ákaflega erfiðan og mikinn sjúkdóm að stríða. Var hvíldin því kærkomin. Reyndi nú mikið á Ástu, og mikil og einstök hefir sú ást og umhyggja verið, sem hún hefur sýnt manni sínum 6 áhrif til að móta bjartsýnina og viljastyrkinn sem einkenndi hana. Hersilía útskrifaðist úr Kvennaskólanum á Blönduósi 1921. Að því loknu stundaði hún um skeið barnakennslu í Lýtingsstaðahreppi. Búskap stundaði hún í nokkur ár á jörðinni Ytri-Mælifells- á sem hún eignaðist um 1930. Kennslan átti vel við Hersilíu og til að nýta hæfileika sína sem best hvern einasta dag í veikindum hans. Ef það flokkast ekki undir fagurt mannlíf þá veit ég ekki hvar það er að finna. Hugsar nú frændfólk Bjarna til hennar með þakklæti og virðingu þegar hún kveður maka sinn. Bjarni tók þátt í félagslífi á Akranesi. var í Skipstjóra og stýrimannafélaginu „Hafþór" og sat í stjóm þar í 9 ár. Hann var einn af stofnendum Oddfellowstúkunnar no. 8, Egill. Voru þau hjón bæði mjög virk í Oddfellowreglunni. Eins tóku þau mjög mikinn þátt í Stangveiðifélagi Akraness. Það var í tugi ára ein mesta ánægja þeirra að vera við laxveiðar á sumrum, og voru þau samhent í því sem öðru. Mest var verið í Dölum vestur og reyndar víðar. Kunnu þau frá mörgu skemmtilegu að segja úr þeim ferðum, og tóku sjálf:. sig ekki alltaf of hátíðlega í gamanseminni. Fyrir nokkrum ámm voru þau sem oftar að fara í Dali í veiði, mig minnir vestur við Klofning. Þegar á staðinn kom var enginn þar fyrir. Þá skrifaði Bjarni þessa vísu í gestabókina: „Einn (kofa kominn er með konu, til að veiða lax Ég held eg verði að halla mér, heldur er að renna strax. “ Veri minn góði frændi af Guði geymdur um alla eilífð. Guðrún I. Jónsdóttir. fór hún í Kennaraskóla íslands og lauk þaðan burtfararprófi 1936. Að því loknu stundaði hún forfallakennslu í Reykjavík þar til hún var settur kennari í Ásahreppi í Holtum 1941. Skólastjóri varð hún ári síðar í heimasveit sinni, Lýtingsstaða- hrepp, og var þar skólastjóri allt til ársins 1965 er hún lét af störfum af heilsufarsástæðum. Á starfsferli sínum í Lýtingsstaðahreppi vann Hersilía ötullega að ýmsum félags- og menning- armálum lýtinga. Hún var m.a. í fylkingarbrjósti þeirra er börðust fyrir byggingu skólahúss í hreppnum, er Steinsstaðaskóli, fyrsti heimavistar- skólinn í héraðinu, komst undir þak 1948. Þá beitti hún sér fyrir stofnun barnastúku og stjórnaði henni á meðan hún var skólastjóri, jafnframt var hun virkur félagsmaður í kvenfélagi og ungmenna- félagi sveitarinnar. Þrátt fyrir að Hersilía fluttist til Reykjavíkur af heilsufarsástæðum 1965 leit hún alltaf á Lýtingsstaðahrepp sem heimabyggð sína, hélt tengslum við hreppinn og fylgdist með því sem þar var að gerast. Þótt Hersilía væri heilsuveil mörg ár lét hún það ekki á sig fá. Eitt af því sem hún kenndi mér var gildi jákvæðra hugsana. Hún bar góðan hug til allra manna og gat aldrei nógsamlega brýnt fyrir fólki hversu mikils virði góðar og jákvæðar hugsanir væru fyrir líkams- og sálarheill manna enda beinlínis geisluðu slíkar hugsanir frá henni. Sérstaklega lagði hún áherslu á þetta hin si'ðari ár. í samræmi við þetta hugarfar kvaddi Hersilía þennan heim að loknu miklu og löngu ævistarfi á friðsælan hátt í svefni 2. mars s.l. Ég votta ættingjum og vinum Hersilíu samúð mína og Guð blessi ykkur öll. Jóhann Pétur Sveinsson Varmalæk Þeir sem skrifa minningar- eða afmælis- greinar í íslendinga þætti, eru vinsamlegast beðnir um að skila vélrituðum handritum Islendingaþættir

x

Íslendingaþættir Tímans

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Íslendingaþættir Tímans
https://timarit.is/publication/303

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.