Íslendingaþættir Tímans - 02.11.1983, Side 2
Guðmundur Árnason,
yfirlæknir, Akranesi
Þitt er meimlað afl og önd
eigirðit fram að bjóða
livassan skilning, liaga hönd,
hjartað sanna og góða.
St.G.St.
Andlát Guðmundar Arnasonar kom vinum
hans ekki á óvart; þeir höfðu lengi fylgst með
hinum ójafna lcik og orðið vitni að því. hvernig
mannlcg reisn fær haldist, þrátt fyrir þjáningar og
dauða.
Leiðir okkar Guðmundar lágu saman þegar ég
varð lyfsali á Akranesi. Vegna starfs míns hlaut
ég að hafa af honum nokkur kynni, en vera okkar
heggja í Rótarýklúbbi Akraness stuðlaði að enn
nánari kynnum, og við hjónin eignuðumst í þeim
Guðmundi og Stellu einlæga vini.
Guðmundur Árnason var ákaflega eftirminni-
legur maður í sjón og raun. Myndarlegur á velli.
lítið eitt lotinn í herðum á síðari árum, jarpur á
hár og fríður sýnum. og frá augnaráði hans stafaði
óumræðilegri hlýju.
Hann var mikils metinn af starfsbræðrum
sínum, og margir læknakandídatar og stúdentar
litu á hann sem sannan höfðingja í læknastétt.
enda hafði hann til að bera alla þá kosti sem lækni
mega prýða. Hann var framúrskarandi skýr í
ályktunum. nákvæmur og þolinmóður, og um-
hyggja hans fyrir sjúklingunum var takmarkalaus.
Enda þótt lærdómsferill Guðmundar væri langur
og glæsilegur, varð hann þó aldrei viðskila við
uppruna sinn, og heilbrigðri dómgreind sveita-
drengsins hélt hann til æviloka.
Það er sagt að vegir Guðs séu órannsakanlegir,
og víst er um það, að okkur eru hulin rökin fyrir
mannvirðingum og að eðlisfari var hann hlédrægur
og skipti sér ógjarnan af málum, sem snertu hann
ekki beint. En traust manna hafði hann og komst
ekki hjá ýmsum trúnaðarstörfum. Þannig sat hann
um tíma í Hreppsncfnd Eyrarbakkahrepps og
lengi í stjórn sjúkrasamlagsins og var jafnframt
forstöðumaður þcss. Hann var lengi í forustusveit
Bárunnar á Eyrarbakka, sem er með elstu verka-
lýðsfélögum landsins.
Ólafur var vel á sig kominn bæði andlega og
líkamlega. Hann var hár vexti, þrekvaxinn og
sterkur vel. Vandvirkur í öllum störfum og
snyrtimenni hið mesta. eins og best kom fram í
öllum skýrslum og verkum, sem hann vann sjálfur
eða hafði umsjón með. Hann hefði getað lært
hvað sem var hefðu ytri skilyrði verið fyrir hendi.
Stjórnsamur vel. hjartahlýr og umhyggjusamur.
en frekar fáskiptinn í umgengni. Undir niðri var
hann skapheitur og ör í lund, en hafði gott vald á
tilfinningum sínum.
Þótt fundum okkar Ólafs bæri ekki oft samán
síðustu áratugina, breytti það engu. Glampinn í
augum hans, hlýtt handtak og vinsamleg orð
yljuðu manni um hjartaræturnar og báru vott um
þá tryggð, sem fjarlægð í tíma og rúmi fær ekki
breytt. Ég átti góðar endurminningar um sam-
starfið við hann, sem ekki sló fölva á, þótt árin
liðu og langt væri milli endurfunda. Og aldrei
verður myndin skýrari um góða samferðamenn,
en þegar leiðir skilja að fullu. Þá er svo margs að
minnast og margt að þakka.
Ólafur var ætíð heilsuhraustur, en á miðju .ári
1982 fékk hann hjartaáfall. sem ekki reyndist unnt
að lækna. Var hann eftir það mikill sjúklingur og
dvaldi lengst af á sjúkradeild Grundar í Reykjavík
við góða umhyggju starfsmanna þar. Þrátt fyrir
veikindin var viðmótið hið sama og minnið trútt.
Hann sagði mér þar frá námsferð'sinni í Hrað-
frystihús H.B. & co á Akranesi. er hann gerðist
verkstjóri í frystihúsinu á Eyrarbakka 1944. Hann
hafði frétt að þar væri mvndarlegt og nýtískulegt
frystihús og verkstjórinn í því. Lýður Jónsson. sá
besti í landinu. Hann varðekki fyrir vonbrigðum
með námsferð þessa og kunni góð skil á mönnum
þeim. sem hann kynntist á Akranesi,
Með Ólafi E. Bjarnasyni er fallinn sterkur
stofn. Maður mikillar gerðar. manndóms og
drengskapar. Ævistarfið var langt og oft erfitt.
Baráttan hörð og miskunnarlaus á erfiðum tímum.
Sorgir lífsins sveigðu heldurekki fram hjá honum.
Hann sá á eftir konu sinni. þremur sonum og
tveimur barnabörnum. mjög fyrir aldur fram. Það
var viðkæmum manni þung raun. En lífstafl sitt
vann hann. svo ekki verður um villst. Besti
vitnisburður þar um, er hinn myndarlegi barna-
hópur frá Þorvaldseyri, sem hefur dreifst í hin
ýmsu störf í þjóðfélaginu. Börnin hans mörgu og
tengdabörnin. börn þeirra og barnabörnin. munu
lengi minnast hins umhyggjusama og góðviljaða
ættföður. Samferðamennirnir kveðja hann með
þakklæti og virðingu.
Dan. Ágústínusson.
því að annar eins kvistur og Guðmundur Árnason
skyldi vera svo fljótt af höggvinn.'meðan við hin,
sem svo miklu minna var lagt í erum eftir skilin.
Og hlutur okkar getur ekki orðið meiri en að
kveðja hann hinstu kveðju - með sárum trega.
Stefán Sigurkarlsson
Kveðja frá Rotaryklúbbi Akraness.
Guðmundur Árnason hóf Störf sín sem yfir-
læknir við sjúkrahúsið á Akranesi á árinu 1973. I
apríl 1974 gerðist hann félagi í Rotaryklúbbi
Akraness og var félagi í honum til æviloka. Hann
var forseti klúbbsins starfsárið 1981-'82 og nokkr-
um árum áður gegndi hann ritarastörfum.
Þjónustuhugsjónir Rotary féllu vel að lífs-
skoðun Guðmundar Árnasonar. Hann var frá
upphafi mjög virkur í starfi klúbbsins - traustur
og skyldurækinn félagi - þar til hann varð að
leggjast inn á sjúkrahús í mars s.l. Mér cr
Guðmundur sérstaklega minnisstæður frá árinu.
sem hann gegndi störfum forseta. Hann tók upp
ýmsar nýjungar svo félagslífið yrði fjölþættara og
skemmtilegra og lagði áherslu á að sérhver félagi
fyndi verkefni við sitt hæfi og hefði sem mesta
ánægju af veru sinni í klúbbnum. Hann átti sér
drauma um enn meiri nýjungar, hvort sem þær
komast í framkvæmd eða ekki. Guðmundur var
alltaf reiðubúinn til að takast á hendur ferðalög
með klúbbnum eða fyrir hann og vinna önnur þau
störf. sem hann taldi klúbbnum til eflingar. Það
var honum brennandi áhugamál að sem mestur
árangur næðist í félagslífinu og starfið yrði mikið
og vaxandi. Á glæsilegu heimili sínu hélt hann oft
klúbbmót. þar sem rædd voru ýms innri mál
klúbbsins og ákvarðanir undirbúnar fyrir almenna
fundi. Klúbbmót þessi voru okkur öllum. sem þau
sóttu. miklar ánægjustundir. Þar bar margt á
góma og gestrisnin var mikil og alúðleg hjá þeim
hjónum báðum.
í Rotaryklúbbnum flutti hann af og til erindi
eða las. upp valið efni. Allt var þetta sérlega vel
undirbúið og smekklega gert. Kemur mér m.a. í
hug erindi. sem hann flutti fvrir nokkrum árum á
fundi í Rotary. sem haldinn var með heimilisfólk-
inu á Dvalarheimilinu Höfða og fjallaði um
ævikvöldið og þau vandamál.sem því eru samfara.
Þar kom fram mikil þekking og næmur skilningur
á þörfum hinna eldri borgara. Allt til hins síðasta
fylgdist hann vel með störfum Rotary og ræddi við
okkur félaga sína, sem litum inn ti) hans á
sjúkrahúsið. um starfið í klúbbnum.
Rotaryklúbbur Akraness vill að leiðarlokum
. þakka Guðmundi fyrir mikil og góð störf í þágu
klúbbsins, vináttu og ágæta forustu. Við félagar
hans hörmum allir að sjá á bak þcssum hógværa
og góða félaga og mikla mannkostamanni, svo
langt um aldur fram. Við flytjum Stefaníu.
drengjunum og öðrum vandamönnum einlægar
samúðarkveðjur.
Dan. Ágústínusson.
íslendingaþaettir
2