Heimilistíminn - 21.04.1977, Síða 3
Kœri Alvitur,
Mig langar til aö spyrja þig nokk-
urra spurninga, og vona að bréfið lendi
ekki i ruslakörfunni.
Hvað þýðir að dreyma um trúlof-
unarhringa?
Hvað þarf maður mikla menntun til
þess að geta veriö skrifstofudama?
Hvaða merki á bezt við meyjuna, lit-
ur og steinn.
Þakka birtinguna,
Ein stúlka.
. Dreymi þig að þú sért að trúlofast,
og þú ert það ekki fyrir, táknar það, að
þú munt bráðlega biðja einhvers, eða
þin verður beðið. Sagt er aö dreymi
stúlku slfkan draum, sé það fyrir þvl
að hún giftist þeim, sem hún elskar.
Dreymi þig hins vegar aðeins hring-
ana er það taliö tákna, að þú lendir i
ástarævintýri áður en langt um liöur,
þótt ekki þurfi það endilega að leiða til
hjónabands eöa trúlofunar.
Það fer sennilega eitthvað eftir þeim
kröfum, sem atvinnurekandinn gerir
hverju sinni. Þó held ég varla sé leng-
ur hægt að komast af með minna en
sæmilegt gagnfræðapróf, eöa állka
menntun. Vélritunarkunnátta er I
flestum tilfellum nauðsynleg, og góð
íslenzkukunnátta einnig, ef viðkom-
andi á að annast einhverjar bréfa-
skriftir. Kunnátta i erlendum tungu-
málum getur verið algjört skilyrði hjá
sumum fyrirtækjum. Verzlunardeildir
eru nú komnar við marga skóla, og
þeir, sem stundað hafa nám i þeim,
ættu að hafa betri möguleika á skrif-
stofuvinnu, en hinir, sem ekki hafa
f
gert það. Verzlunarskóla- og sam-
vinnuskólanám ætti lika aö vera gott
vegarnesti.
Steingeit og meyja passa bezt sam-
an, og einnig á nautið nokkuð vel við
hana. Litirnir eru brúnn, grár og ryö-
brúnn eða ryðrauður. Steinninn er
safír.
Alvitur
Ég skrifa til þln I algerri örvinglan.
Ég er 15 ára og er ófrisk. Ég er búin að
láia lækni staöfesta það, en vandamál-
iðer það, að ég veit ekkert hver er fað-
irinn. Það eru þrir möguleikar. Mér
hefur dottið I hug, að láta skera úr þvi
með blóörannsókn. þegar barnið er
fæit, er ekki hægt að ganga úr skugga
um faðernið með þvi?
Svo er annaö. Ég þori ekki að segja
mömmu og pabba frá þessu. Þau hafa
margvaraö mig við, og þau eru mjög
fordómafull f þessum efnum. Þau hafa
oft sagt mér, að vera ekki með strák-
um. Einnig er það þekkingarieysi
mitt' i getnaðarvörnum, sem hefur
orðið til þess að svona fór. Ég hef eng-
um sagt þetta enn. Gefðu mér ráölegg-
ingar.
örvingluð.
örvingluð min,
Ég sé ekki annað ráð, an aö þú vindir
þér strax I að tala við foreldra þina.
Þeir komast að þessu fyrr eða siðar,
hvert eð er, og það er mun betra, að þú
ræðir þetta viö þá að fyrrabragöi. Rétt
er það, að I flestum tilfellum er hægt
að skera úr um faðerni meö blóörann-
sókn. En talaðu nú við pabba og
mömmu. Ég er viss um, að þau bregö-
ast þér ekki.
Komdu sæll Alvitur.
Ég vona að þú svarir þessu bréfi. Éf
er hrifin af strák, og hef verið mel
honum þrisvar. Hann er ósköp góðui
við mig, þegar við erum tvö, en þegai
við erum til dæmis I skóianum, lætui
hann sem hann sjái mig ekki, eöa þi
að hann glápir á mig, eins og ég sé ein
hver fornaldarskepna. Hvað meinai
hann með þessu?
Hvernig fara meyjarstelpa o{
krabbastrákur saman? eða meyjar
stelpa og ljónsstrákur?
Hver er litur meyjarstelpunnar?
Hvað iestu úr skriftinni, og hvaf
heldurðu að ég sé gömul?
Ein ióvissu
Ekki veit ég hvað strákurinn mein-
ar, en ég held ég nennti ekki aö vara að
fást viö hann, ef hann vill ekkert meö
þig hafa nema þegar þið eruö tvö ein.
Hann ætti aö vilja tala viö þig þótt ein-
hverjir séu nálægir.
Aldrei skyldifólk af meyjarmerki og
krabba giftast, ef það vill njóta ham-
ingju I hjónabandi. Þaö er ekki eins al-
varlegt meö ljón og meyju, þótt ekki sé
það sérstaklega tekið til meöferöar I
Stjörnumerk jabókum.
Liturinn er brúnn, grár og ryörauður
eða ryðbrúnn.
Skriftin er nokkuö snyrtileg, og ég
gæti trúað, að þú værir 14-15 ára.
Meðal efnis í
Vandamálin taka á sig nýja mynd......bls 4
Sumargleði- Ijóðeftir Kristinn Magnús
son.................................bls. 6
Stórmerkileg vél....................bls. 7
Það er hæqt að lifa.................bls. 8
þessu blaði:
Bauka-Jón Hólabiskup............ bls. 10
Blómin okkar......................bls. 13
Hekluðslá.........................bls. 16
Ekkja de Gaulle lifir í fátækt....bls. 26
Útsaumað vesti....................bls. 36