Heimilistíminn - 21.04.1977, Qupperneq 7
Stórmerkileg vél,
sem finnur þá,
sem eiga í
vændum að f á slag
Hún er örugg og
notkun hennar
veldur sjúkling-
um engum sárs-
auka, segja
sérfræðingar
Stórmerkileg vél með
hátiðnibylgjum er notuð til
þess að komast að þvi, hvort
fólk eigi i vændum að fá slag.
Vél þessi gefur til kynna,
hvort æðarnar eru farnar að
kalka, og veldur rannsóknin
sjúklingnum’engum sársauka
eða óþægindum.
Vélin sendir hátiðnihljóð-
bylgjur inn i likama sjúklings-
ins. Þegar merkin koma til
baka er lesið úr þeim á sjón-
varpsskermi, og sýna þau
greinilega, hvort æðarnar eru
heilbrigðar eða ekki.
Vi6 erum mjög ánægðir með árangur-
inn af notkun þessarar vélar, sagði dr.
Titus C. Evans, Jr. á hinni frægu Mayo
Clinic i Rochester f Minnesota í Banda-
rikjunum, þar sem nýlega var fariö aö
nota þessa vél.
Tækið var fundið upp og framleitt hjá
Stanford Research Institute (SRI) i Kali-
forniu, og er þvi ætlað að koma I staö
hinnar sársaukafullu og hættulegu
aðferðar, sem notuö er til þess að rann-
saka æðaveggi sjúklinga.
Þessi sjúkdómur er aðalástæðan fyrir
þvi að fólk fær slag, en úr þvi deyja nú ár-
lega um 50 þúsund Bandarikjamenn, að
þviersegirf fréttum frá Heilbrigðismála-
ráðuneyti Bandaríkjanna.
m-----------------------►
Eins og sjá má á þessari mynd, snertir
vélin aöeins lauslega háls sjúklingsins, og
veldur honum f engu sársauka eöa óþæg-
indum.
Fram til þessa hafa læknar aðeins getað
rannsakað þennan sjúkdóm með röntgen-
myndum, og er það gert með þvf að
sprauta eins konar litarefni f bloðið. betta
er sársaukafullt, og getur haft eftirköst,
og meira að segja valdið dauða, ef kölk-
unin I æöaveggjunum losnar og stiflar æð-
arnar til heilans.
En nýja vélin, sem likist einna helzt
sjónvarpskvikmyndavél er algjörlega
hættulaus, segir Philip S. Green, einn af
starfsmönnum SRI. Vélin kemst aðeins I
snertingu við sjúklinginn f gegnum lftinn
vatnsfylltan poka, sem hvilir léttilega við
húð hans. Hljóöbylgjurnar fara siðan og
koma aftur i gegn um þennan poka.
Vélinni er beint að æðum á hálsi sjúk-
lingsins, sem flycja blóð til heilans, en þar
er oft um aö ræða, að fita setjist innan á
æðaveggina.
— Vélin er látinn endurvarpa þvi, sem
hún ,,sér” í æöunum á þessum staö, segir
Gréen.
Búizt er viö, að þessi merkilega vél
veröi komin á almennan markað eftir svo
sem eitt ár, og er áætlað aö hún muni þá
kosta um 125 þúsund dollara.