Heimilistíminn - 21.04.1977, Page 12
son sýslumaöur sennilega aldrei fullkom-
lega losnað viö galdraryktið. En meira
bar til tiðinda um mál hans, og uröu þau
af likri rót, þó með ólikindum væru, og
sannarlega af tlðar- og menntunarástandi
17. aldar, og var þvi skilgetið afkvæmi
hennar I einu og öllu.
4
Torfi Hákonarson hét maður og var hann
náfrændi Jóns sýslumanns Vigfússonar.
Hann fór ungur til Hollands með duggur-
um, og læröi þar sjómennsku og kaupskap
I anda aldarinnar. Hann stundaöi kaup-
skap til Islands og gerði félegsskap við
hollenzka duggara og fóru þeir meö góð-
um árangri til kaupferöa norður til Is-
lands, þrátt fyrir rikjandi einokun I land-
inu.
Sumariö 1671 kom Torfi Hákonarson á
hollenzkri duggu á Krossvik á Akranesi,
og fór þegar I land og á fund frænda sins,
sýslumannsins á Leirá. Var honum þar
vel fagnað og naut frændsemi og vináttu.
Ekki er þess getið, hve lengi Torfi dvald-
ist á heimili sýslumanns. En hitt er vlst,
að Jón sýslumaður sneri til fylgdar við
Torfa og fór með honum um borð I hol-
lenzka skipið á Krossvik við Skipaskaga.
Heimildir geta þess ekki, hvað þeim
frændum fór á milli á skipsfjöl á Kross-
vlk, nema það sem fram kemur bráðlega
og varð til ærinna tiöinda. Liðu svo fram
stundir enn um hrið.
Morgun nokkurn skömmu siðar reri
Torfi ásamt félögum sinum báti I land á
Krossvik og hafði meðferðis sex tóbaks-
rullur, eins og pakkað tóbak var þá nefnt,
og mun hver rulla hafa vegið nær hálfri
vætt eða vel það. Var þvi hér um talsvert
magn að ræða af tóbaki. Fluttu þeir Torfi
og félagar hans tóbakið i land til manna
þar á Skaganum, er vanir voru að varð-
veita varning sýslumannsins á Leirá.
Hugðu þeir, að sýslumaður ætti tóbakið,
og tóku þvi á móti þvi til varðveizlu.
Skagamenn voru vel vitandi þess, að ekki
var leyfilegt að höndla meö tóbak né ann-
að við erlenda menn, vegna einokunar-
innar. Skömmu siðar komu menn frá
sýslumanni og sóttu tóbakið og fóru meö
það á braut heim að Leirá.
Meðan þessu fór fram i landi, biðu þeir
Torfi Hákonarson og félagar hans eftir
bvr á Krossvik. En byrinn varð þeim sið-
íwvinir
Mig langar til að eignast islenzkan fri-
merkjasafnara að pennavini.
Sam Baum
20, Tel — Hay str.
Ramat — Gan
israel
12
búnari en aðrir gestir. Sendimenn um-
boðsmannsins á Bessastöðum á Alftanesi
reru að skipinu og tóku Torfa höndum og
fóru með hann til Bessastaða.
Þetta var skömmu fyrir alþing um
sumarið og bar vel i veiði aö færa Torfa
Hákonarson þangað til dóms og laga. Bar
hann þar vitni i málinu gegn frænda sin-
um, Jóni sýslumanni á Leirá. Lýsti Torfi
þvi opinberlega yfir i lögréttu, i áheyrn
þingheims, að Jón sýslumaður hefði keypt
af sér tóbakið og heitið ákveðnu verði fyr-
ir það, en ekki staðgreitt það. Torfa var
sleppt án sektar og dóms. En Jón sýslu-
maður sættist á aö flytja tóbakið til
Bessastaða, og voru þetta farsælleg
málalok fyrir hann eftir þvi sem virtist.
En máliö var ekki búið meö þessu, þótt
undarlegt sé.
A alþingi árið eftir lenti þeim saman i
orðasennu, Jóni sýslumanni Vigfússyni á
Leirá, og Jóhanni Petursen Klein fógeta á
Bessastöðum, þeim hinum sama, er svo
mildilega tók á broti sýslumanns sumarið
áöur á alþingi. Varð Jón sýslumaður mjög
þungyrtur I garö fógetans, og kom þar
greinilega fram hiö mikla skap hans og
stórbokkaháttur. Hann hefur talið sig
máttugri og meiri en hann var að völdum
og tign. Honum hefur sárnað, hvernig fó-
geti brá fæti fyrir hann sumarið áður meö
töku frænda hans, Torfa Hákonarsonar, á
Korssvik.
Afleiðing deilunnar varð sú, að fógetinn
fyrirskipaöi, aö mál Jóns sýslumanns yrði
tekið upp að nýju frá sumrinu áður um
launverzlunina á Krossvik, og yrði það
rannsakað frá grunni og visað til dóms i
héraði. Var máliö siðan tekiö fyrir og
rannsakað strax um sumarið og virðist
það hafa gengið hratt fyrir sig.
Jón sýslumaður gekk nú gegn fram-
burði Torfa Hákonarsonar frænda sins, og
héltþvifram.aðhannhefðistrax um borð
1 skipinu, merkt tóbaksrúllurnar marki
konungs eins og heiðarlegum konungs-
embættismanni bar aö gera. Sagði hann,
aö hann hefði gert þetta með krit og skiliö
rúllurnar eftir merktar I skipinu.
En við rannsókn, kváðust viðtökumenn
tóbaksins I landi ekki hafa séð slik merki
á tóbakinu, og engin merki verið á um-
búöum rúllanna, önnur en þau, er venju-
lega væru á sliku frá Hollandi. Féll þvi
þessi framburður sýslumanns sem dauð-
ur bókstafur.
Við viljum skrifast á við stráka og
steipur á aldrinum 12-14 ára.
Hafdis E. Bogadóttir
Laufási
Djúpavogi
S-Múl.
Gréta Jónsdóttir
Strandhöfn
Djúpa vogi
S-Múi.
Jón sýslumaður varð algjörlega undir i
þessu máli og tapaði þvi gersamlega.
Hann var dæmdur frá embætti i Þverár-
þingi 3. ágúst 1672. Var siðan báðum
sýslunum ráðstafað og varö Jón yngri
Vigfússon embættislaus. En hann átti
næsta leik gegn danska valdinu á Bessa-
stöðum, og hann var tilbúinn að skáka
umboðsvaldinu i öflugu hróksvaldi ættar
sinnar og málfylgju. Hann gerði það lfka
með vel yfirveguðum ráðum og verður
nánar sagt frá þvl.
Framhald i næsta blaði
HVAÐ VEIZTU
1. Hver er þetta?
2. Hvenær voru fyrstu vetrar-
ólympíuleikarnir?
3. Hvaða fugl hefur oröið eins
konar vizkutákn?
4. Hvað hét faðir Saiómons kon-
ungs?
5. Hvað köllum við I dagiegu tali
þurrkaðar vinþrúgur?
6. I haða landi var uxinn Apis
heilagt dýr?
7. Hvaða jökull er stærstur á
meginlandi Evrópu?
8. íhvaða landinota menn mynt,
sem nefnist zloty?
9. Hvað heitir stærsta eyjan I
Balear-eyjaklasanum?
10. Hvað heitir ekkjan I Kátu
ekkjunni?
Lausnin er á
bls. 39.