Heimilistíminn - 15.11.1979, Side 30

Heimilistíminn - 15.11.1979, Side 30
 ^UUUDUU náttúrunnar reyndar ekki fullhörðnuð i byrjun, en það er umbúnaður náttúrunnar, og gerður til þess að vernda móðurina frá þvi að verða fyrir sagarbiti. Þegar maöur kvænist helm ingar maöur rétt sinn en tvö faldar skyldurnar. | I í heitu höfunum syndir um dýr með óvenjulega mikið og hættulegt vopn — nokkurs konar risasög með skörpum tönnum. Þetta er svokölluð sagarskata. Það er kjafturinn, sem er svona langur og búinn skörpum húðtönnum. Þær geta verið þetta frá 25 i 32 pör. Kvikindi þetta getur orðið allt að sex metra langt, og af þvi eru sagðar illar sögur, og það ekki að ástæðulausu. Enda þótt ekki séu allar þessar furðusögur sannar, þá er áreiðanlegt, að með „söginni” getur dýrið sagað sundur trébát, og einnig hafa þau ráðizt gegn köfurum og skorið þá alvarlega, og sumir hafa meira að segja látizt eftir viðureign sina við þessi sjávar- dýr. Ekki eru það bara tennurnar á söginni, sem eru hættulegar, heldur getur dýrið veitt þung og mikil högg með kjaftinum. Dýrið notar sögina ekki einungis til þess að ráðast gegn óvinum sinum, heldur er hún fyrst og fremst ætluð til þess að vera verkfæri notað við veiðar. Sagarskatan rótar upp botninum með söginni, og þá koma alls konar dýr upp á yfirborðið, sem skatan getur veitt sér til matar. Munnurinn og gellurnar eru ekki á söginni, heldur á skrokk skötunnar. Fyrir kemur, að skatan syndir beint inn i fiskitorfu og lemur á bóða bóga, þá drepast eða dofna fjölmargir fiskar, og skatan getur náð þeim og étið. Sumir fiksanna falla niður á botninn, og getur skatan leitað þá uppi siðar og étið. Litlu sagarsköturnar eru búnar smásög þegar þær koma i þegar þær koma I heiminn smækkaðri mynd af sög foreldranna. Hún er

x

Heimilistíminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heimilistíminn
https://timarit.is/publication/304

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.