Heimilistíminn - 15.11.1979, Blaðsíða 14
EPLAKAKA
FRÁ
SKÁNI
Þetta er kölluð skánsk epla-
kaka og engu öðru lik. Upp-
j skriftin minnir ef til vill dálítið
á bóndadóttur með blæju, en
þetta er eitthvað allt annað og
miklu betra.
Bezt er að nota gróft, rifið
brauð en einnig má mylja tví-
bökur og baka þær í sykrinum
á pönnunni.
4 dl af rifnu brauöi eöa tvfbökum, 1
dl sykur, 3-4 dl af litiö sykraöri epla-
stöppu, 2-3 dl þykkur rjómi, rifiö suöu-
súkkulaöi.
Blandiö rifna brauðinu og sykrinum
saman og bakiö um stund á pönnu
helzt meö svolitlu smjöri. Hræriö i
annaö slagiö svo blandan brenni ekki
viö. Látiö kólna.
Setjiö svo til skiptis i skál eöa glas:
brauöiö, eplastöppuna og þeyttan
rjómann. Efst er látinn svolltill rjómi
og rifiö súkkulaöiö yfir allt saman.
Látiö kólna vel áöur en boriö er fram
en uppskriftin á aö nægja 4-6.
KRYDDAÐIR TÓMATAR
MEÐ KJÖTI
Grænir tómatar geta verið
mjög góðir sem kryddmeti
með steik og öðru álíka. Sumir
hafa líka notað þá til þess að
sjóða niður í sykurlegi og borið
þá svo fram með rjóma eins og
um væri að ræða niðursoðna
ávexti. Slíkter mjög gott. Hér
er uppskrift að grænum tómöt-
um, sem er Ijúffeng. Þetta er
nokkuð sterkt meðlæti með
sunnudagssteikinni, en mjög
hressandi!
1 Iltri af grænum tómötum, 2 litrar
af epium, tvö pund af rúsinum, 1/2
pund af biönduöu ávaxtahýöi, 4 bollar
púðursykur, 1 tesk. sait, 1/2 tesk. neg-
ull, 1/3 tesk allra handa, 1/4 tesk. engi-
fer, 2 sitrónur, hýöi og safi, 2 appeisfn-
ur, hýöi og safi.
Saxiö saman tómata, epli og rúsín-
ur. Bætiö út I öllum öörum efnum.
Sjóöiö þetta þar til þaö er fariö aö
þykkna og hafiö hitann ekki of mikinn
á meöan. Setjiö I krúsir og lokiö vand-
lega.