Heimilistíminn - 15.11.1979, Blaðsíða 11

Heimilistíminn - 15.11.1979, Blaðsíða 11
AUison i hópi lögreglumanna. ill dagur. Og vitimenn. 22. febríiar var til- kynnt, að fundizt heföi lik af manni I Passaic ánni. Annars vegar voru bruna- rústir verksmiðju, en hinum megin var Two Guys (tveir menn) —verzlun, með merki sem sýndi tvo menn, og svo var þarna heilmikið af hjólbörðum skammt frá. Feðgar höfðu fundið lilc mannsins, þeg- ar þeir voru að leika sér niður við ána. Lögreglan komst siðar að þeirri niður- stöðu, að DeMars hefði sofnað i lestinni á leiðinni heim til sin. Þegar s vo lestin nam staðar úti á miðri brú, stökk DeMars á fætur og hélt sig vera kominn á leiöar- enda, en þegar hann stökk út úr lestinni lenti hann i ánni og drukknaði. Þegar Lubertazzi hafði tekizt að leysa þessa gátu með aðstoð Dorothy bauðst hann til þess að verða eins konar umboðs maður hennar, og koma henni i samband við lögreglulið viðs vegar um Bandarikin, sem þurftu á aðstoð að halda, svipað og hann hafði áður þurft. Aður en hann fær Allison til þess að vinna að einhverju ákveðnu máli, kannar hann það nákvæm- lega, og útskýrir fyrir lögreglumönnun- um, á hvern hátt Allison vinnur. — Fjölmargir lögregiumenn halda, að þeir þurfi ekki annað en koma hingað, og siðan geti þeir farið og fundið hinn týnda. Þannig er það ekki. Dorothy sér i einu vetfangi nútið, fortið og framtið. Hún hef- ur ekkert timaskyn. Stundum eru lika fyr- irmæli hennar likust véfréttinni i Delphi. Einu sinni sá Allison fyrir sér oröið sól- myrkvi. Hvað skyldi gera? Atti að biöa næsta sólmyrkva eða hvað? Siðar kom I ljós, að orðið sólmyrkvi kom fyrir i nafni staðar, sem ákveðinn atburður hafði átt sér stað á, og hér um ræddi. Margt þessu likt getur gert einfalt mál flókið 1 byrjun. Allison er oft ósköp miður sin vegna þeirra verkefna, sem henni eru fengin I hendur, og ætlazt til að hún leysi. — Ég verð mjög miður min, ef um ungbörn er að ræöa, segir hún. — Einu sinni hætti ég alveg aö vinna við þetta i þrjú ár, af þvi ég þoldi það ekki lengur. Alagið varð of mik- ið. En hvenær svo sem haft er samband við mig út af barni, læt ég allt annað sitja áhakanum og reyni að gera mitt bezta. — Guð minn góöur, hugsa ég, kannski mér takist að færa eitt aftur lifandi til foreldra sinna. Allison þiggur engar greiðslur fyrir störf sin, en leggur sig hins vegar alla fram um að leysa vanda fólks. Stundum hefur húnunnið klukkustundum saman án þess að hvilast eða neyta matar. Og hvenær skyldi Allisonhafaorðið fyr- ir mestum vonbrigöum i starfi sinu? — Jú, það var varðandi Patty Hearst, segir hún. — Ég vissi ekki hver hún var, þegar fjölskylda hennar hringdi til mln, en ég flaug þegar til Kaliforniu og ferðaðist um með fulltrúum alrikislögreglunnar. Ég sagði þeim, aö hún væri I fangelsi, eöa einhvers staðar i litlum klefa, þar sem væri ekkert ljós, en ég gat ekki fundið hana. Þfb. Eftir aö Allison gat bent á, hvar Michael litla Kurcsics var aö finna, fór lögreglan að leita til hennar oftar og oftar. Vetur- nátta- Ijóð 1979 Nú er svalt um byggð og ból, byljótt fjalls við rætur, leggst að vetur, lækkar sól, lengjast dimmar nætur. Ljúfu horfin, lífs með þor, lauguð daggarúða, blómin, sem hér voru i vor, vors- i töfraskrúða. Hjörð, sem leið um loftin há i leit að mat og hlýju, hjörð, sem yfir höfin blá hingað flyst að nýju. Þó með klaka kotungsrann kreisti Norðratetur, algerlega alþítt hann okkar vorsól getur. Meðan röðull heillahlýr hauðri svifur yfir, fagna menn og fagna dýr, fagnar allt sem lifir. Um það biðji allra raust aldrei valdi tjóni: vetur-, sumar-, vor- né haust- veðráttan á Fróni. ólafur Björgvin ólafsson. n

x

Heimilistíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Heimilistíminn
https://timarit.is/publication/304

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.