NT - 25.05.1984, Page 5

NT - 25.05.1984, Page 5
'N Föstudagur 25. maí 1984 5 Skreiðartrönur geta verið snyrtilegar og jafnvel prýði í íslenskri náttúru en því miður ganga ekki ■ „Skreiðin selst ekki og þá má einu gilda hvað um hana verður“. En hvað um umhverfið! Veist þú allir sem þessa grein stunda eins vel frá og sá sem hér á í hlut. lesandi góður að þetta er inni í höfuðborgarsvæðinu. Auður hafsins liggur undir skemmdum - og umgengnin til háborinnar skammar ■ Því miður voru engin tök á að senda lesendum NT lyktina heim, en svo sannarlega þá var hún óviðjafnanleg. Útyfir tekur þegar rignt hefur í óþverrann. ■ Skyldi hafa fengist afurðalán fyrir þessa fiska. Víða á svæðinu var nýhrunin skreið sem enn var hægt að bjarga frá eyðileggingu. En verður það gert? ■ Er þetta auður hafsins? Er það fyrir þetta sem borguð eru afurðalán? Hver var að tala um hreint iand, fagurt land? Já er nema von að sé spurt, þegar í Ijós kemur að skreiðarverkendur ganga ekki aðeins illa um þá vöru sem þeim er trúað fyrir heldur gefa landinu andstyggilegan blæ. Ekki alls fyrir löngu fréttist af hópi útlendinga við eina af þessum „perlum" íslensks atvinnulífs með ljósmynda- vélarnar á lofti. Þarna hafa trönur hrunið niður og í stað þess að reisa þær upp var hengt á rárnar þar sem þær lágu örfáar spannir frá yfirborði jarðar. Annars staðar lá margra ára skreið sem einhverra hluta vegna hafði aldrei farið á markað í hrúgum bæði morknuð og möðkuð. Á einum stað mátti merkja að fisksali eða einhver í líkum bísness var viðriðinn staðinn. Beingarðar af ýsum sem höfðu verið flakaðar voru þarna í dáleglegum haug, eins og sérstök veisla fyrir maðk og önnur skyld fyrirbæri lífríkisins. En ekki eru allir eins, á einum stað rakst Ijósmyndari NT á skreiðartrönur sem voru sannarlega til fyrirmyndar. Rétt við hliðina voru sumar þær myndir sem bera skreiðarverkendum hvað verst vitni teknar. Þessi uppá- koma rifjar upp að nýlega voru samþykkt lög frá Alþingi sem opna möguleikann á því að svifta fiskverkendum vinnsluleyfum. Vonandi getur þessi umfjöllun NTýtt eftir einhverju í þá veru, þó ekki væri tii annars en að koma í veg fyrir umgengni af þessu tagi. BUCHTAL Gólf — Vecjcjflísar Vestur-þýsk gæðavara úti sem inni á viðráðanlecju verði. Komið og skoðið eitt mesta úrval landsins af flísum í sýningarsal okkar. Sjón er sögu ríkari BUCHTAL FEGURÐ — GÆÐI—ENDING BYGGIWGAVÖRURl HRINGBRAUT 120 Simar Timburdeild 28 604 ^ Byggingavorur 28 600 Malningarvorur og verklæri 28-605 I Gollteppadeild 28 603 Flisar og hreinlætistæki 28 430 I Þu færð allt í einn kaupsamning ■ Fagur var fiskur í sjó

x

NT

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: NT
https://timarit.is/publication/305

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.