NT - 25.05.1984, Síða 13
IIU'
Föstudagur 25. maí 1984 1 3
Útvarplaugardag,
kl. 15.10 ogkl.24
Lista-
popp
- vinsældalistar
austan og vestan
Atlantshafs
■ Það eru ekki margir þætt-
irnir, sem njóta þeirrar virð-
ingar í útvarpinu að vera
endurfluttir alveg reglulega.
Það eru eiginlega ekki nema
þættirnir urn íslenskt mál,
morgunleikfimin - og svo auð-
vitað Listapopp! Það þykir
ekki einungis sjálfsagt að flytja
Listapopp á Rás 1 á laugar-
ögumkl. 16.20 ogsvoafturum
miðnættið. Iteldur er þættinum
einnig útvarpað unt Rás 2 í
síðara skiptið.
Umsjónarmaður Listapopps
er Gunnar Salvarsson. Við
spurðum unt formið á þáttun-
unt.
„Þessi þáttur er í ákaflega
föstum skorðum." segir Gunn-
ar okkur. Hann segir okkur
þæ-ttina ætlaða til að kynna
vinsælustu lögin í Bandaríkj-
ununt og Bretlandi af þar til
gerðum vinsældalistum, sem
teknir eru saman í hverri viku
og byggjast á plötusölu. að
mestu leyti á sölu tveggja laga
platna. Vinsældalistarnir mið-
ast við 100 lög í báðunt þessum
löndunt, en eins og gefur auga
leið, er ekki hægt að gera þeim
fjölda skil í 50 mín. löngunt
þætti. Yfirleitt næst ekki að
spila nema u.þ.b. 7 lög af
hvorum lista í hverjunt þætti.
Við spurðum, hvort Lista-
popp væri algerlega einskorð-
að við þessa vinsældalista, og
sagði Gunnar það vera svo að
mestu. Þó kæmi það fyrir að
Itann hefði í höndunum plötur
frá öðrunt löndum, sem hann
skyti þá að í þáttunum.
„En að öllu jöfnu eru það
Bandaríkin og Bretland, sem
ég miða á, og það er auðvitað
vegna þess að sú tónlist, sem
er vinsælust hérna heima,
hefur, a.nt.k. frá því Bítlarnir
voru og hétu, komið frá þess-
urn löndum, þannig að þetta
eru um leið vinsælustu lögin
hér heinta. Ég geri mér sent
sagt far um að kynna vinsæl-
ustu lögin, „topsiders", af þess-
um listum og líka lög, sem eru
líkleg til þess að verða á
toppnum innan tíðar," segir
Gunnar.
« . ■> u .«
■ 'r:
Sjónvarp laugardag kl. 21.
Buffy Sainte-Marie
syngur og spjallar
- hún berst fyrir friði og réttindum Indíána
■ Buffy Sainte-Marie er af Cree ættbálki Indíána og meðal hennar
fólks eru það álitnir góðir eiginleikar að vera ekki leiðitamur, en
jafnframt að líta hlutina réttum augum. „Þegar fólkið mitt er
dapurt, hjálpa ég því til að verða ánægt á ný,“ segir hún. „Og þegar
fóikið mitt er ánægt, minni ég það á það, sem þarf að gera - minni
það á hina hliðina á lífinu.“
■ Buffy Sainte-Marie, þjóð-
lagasöngkonan og lagasmiður-
inn. sem kemur á skerminn á
laugardagskvöld kl. 21. fæddist
á verndarsvæði lndíána í Sask-
atchevvan í Kanada fyrir tæp-
um 40 árurn. Húii óíst upp í
Bandaríkjunum. í ríkjunum
Maine og Massachusetts. og
útskrifaðist frá háskólanum í
Massachusetts eftir nám í aust-
rænni heimspeki og kennslu-
fræðum.
Að því námi loknu. komst
hún að raun um að hún átti um
þrjár leiðir að velja í framtíð-
inni. Hún g-at fengið starf við
kennslu á Indíána-verndar-
svæði. hún gat fengið styrk til
framhaldsnáms í Austurlanda-
heimspeki í Indlandi viðskóla.
sem Mahatma Gandhi stofnaði
á sínum tíma, eða hún gat lagt
út á þá braut. sem rnest höfðaði
til hennar en var jafnframt sú
óöruggasta, hún gat tekið gít-
arinn sinn og reynt að hafa
ofan af fyrir sér með því að
leika á hann og syngja. Það
síðasta varð ofan á og síðan
hefur Buffy verið ótrauð við
að boða fólki hugsjónir sínar.
en þar ber Itæst boðun friðar
og þess að hlutur Indíána verði
réttur.
Bqöskapur Buffy hefur oft
veri umdeildur, og á tímum
Víetnamstríðsins vakti hún þá
athygli bandarísku alríkislög-
reglunnar, FBl. að hún sá
ástæðu til að fylgjast með ferð-
um Buffy og gerðunt og gerði
það ekki hljóðlegar en svo að
Buffy er handviss um að hún
missti af mörgu atvinnútilboð-
inu fyrir vikið. En svo fór þó á
endanum. að hún komst yfir
skjölin, eftir að liafa orðið að
fá .rámdýra lögfræðinga til liðs
við sig. og komst þá að raun
um, að lögrcglunni hafði ekki
tekist að grala neitt upp um
hana. sem liönd vará festandi.
En það vareinmitt í baráttunni
gegn Víetrramstríðinu, sem
hún vakti fvrst athygli sent
lagásmiður, og einkennislag
baráttunnar. Universal Soldi-
er, er einmitt eftir Buffy Sainte-
Marie.
Hún hefur geftð út 16 hljóni-
plötualbúm og eitt laga
hennar, Until It's Tinte for
You to Go. hcfur \ erið gcfið
út á 16 tungumálum. þ.á.m.
kínversku. Hún helur komið
fram víða unt veröld og aflað
svo mikils fjár að hún hefur
stofnað sjóð til að styrkja
skólagöngu Indíána í svo gott
sem öllum þeirn lærdómsgrein-
um, sem fyrirfinnast. Yfir 200
söngvarar hafa sungið lögin
hennar. Má þar nefna Barbra
Streisand. Hclen Reddy, Glen
Campbell, Sonny og Cltcr,
Bobby Darin, Roberta Flack,
Neil Diamond, Johnny Mathis
og Ray Coniff.
Útvarp sunnudag kl. 14.25:
Sagt frá Emanuel Swedenborg sænsk'
um iafnoka Leonardos da Vinci
■ Á sunnudag kl. 14.25 er á
dagskrá hljóðvarps þáttur, sem
ber nafnið Aristóteles norðurs-
ins. Þáttur urn Emanuel Swed-
enborg. Ævar R. Kvaran hefur
tekið þáttinn saman og lesari
með honum er Rúrik Haralds-
son. Við báöum Ævar að segjá
okkureinhver deili á Emanuel
Swedenhorg.
„Emanuel Swedenborg var
Svíi', sem var uppi 1688-1772.
Þessi maður var svo óvenju-
lega á undan sínum tíma á svo
mörgum sviðum, að það verð-
ur eiginlega að líkja honum
við Leonardo da Vinci. Þannig
sá hann fyrir sér bæði kafbáta
og flugvélar og ýmislegt fleira
á sínum tíma, og hann var svo
fjölhæfur, að ég held að það sé
leitun á öðru eins. í alfræði-
orðabókinni bresku var hon’úm
skammtaö jafn mikiö pláss og
sjálfum Einstein. Það sýnir
hvers konar maöur hann var."
segir Ævar.
Ævar rekur fyrir okkur
hversu fjölhæfur vísindamaður
Swedenborg var. Hann var
t.d. doktor í heimspeki, stærð-
fræðingur, eðlisfræðingur,
stjörnufræðingur, steina-
Utvarp sunnudag kl. 10.25:
Enn er dvalist í Afríku
í þættinum „Út og suður“
■ í þætti Friðriks Páls Jóns-
sonar, Út og suður, síðastlið-
inn sunnudag hóf Hermann
Þorsteinsson, framkvæmda-
stjóri, frásögn sína af ferð
sinni til Kenya, en þar hitti
liann m.a. íslenska kristni-
boða, sem þar starfa.
Ekki vannst Hermanni tími
til að Ijúka feröasögunni á
sunnudaginn var, svo að hann
heldur áfram frásögninnj á
morgun, sunnudag, kl. 10.25.
træðingur, líffærufræðingur,
líffræðingur og sérfræðingur í
málmvinnslU, auk þess sem
ltann var uppfinningamaðurog
hafði hugboð um margar nú-
tímauppgötvanir! En hann lét
ekki þar við sitja, hann sat sig
aldrci úr færi að auka við
lærdómsinn. Þannigt.d. sóttist
hann eftir aö fá húsnæöi hjá
meisturum í hinum og þessum
iðngreinum á námsárum
sínum. í London t.d. bjó hann
hjá úrsmið, trésmið og járn-
smiö og lærði hjá þeim kúnst-
irnar, enda smíðaði hann ntörg
stórkostleg tæki.
Auk allra áðurnefndra liæfi-
leika Swcdenborgs, var liann
líka ófreskur og sá í gégnum
holt og hæðir, þegar því var að
skipta. En þaö, sent breytti lífi
lians mest, að sögn Ævars, var
að hann taldi sig hafa fjórunt
sinnum ferðast inn í hinn and-
lega heim og skrifaði langar og
ítarlegar lýsingar t.d. á lífinu
cftir dauðann.
Eftir Swcdenborg liggja tug-
■ Ævar R. Kvaran
ir rita, og víða í löndum eru
félög, sem kenna sig við hann
og rcyna að fara aö kenningum
hans. Hann cndurtúlkaði
nefnilega biblíuna og gagn-
rýndi ýmsar kreddur í trúar-
brögöunum.
Sitthvað fleira kann Ævar
að segja okkur frá þessum
stórbrotna og einstæða manni,
sem uppi var fyrir um 300
árum.
Laugardagur
26. maí
7.00 Veöurfregnir. Fréttir. Bæn.
Tónleikar. Þulur velur og kynnir.
7.25 leikfimi. Tónleikar.
8.00 Fréttir. Dagskrá. 8.15 Veður-
fregnir.
Morgunorð - Jón Isleifsson talar.
8.30 Forustugr. dagb. (útdr.). Tón-
leikar.
9.00 Fréttir. Tilkynningar. Tónleikar.
9.30 Óskalög sjúklinga. Helga Þ.
Stephensen kynnir. (10.00 Fréttir.
10.10 Veðurfregnir.) Óskalög sjúk-
linga, frh.
11.20 Umferðakeppni skólabarna
Nemendur úr Hvassaleitis- og
Austurbæjarskóla keppa til úrslita
I spurningakeppni 12 ára skóla-
barna um umferðarmál. Umsjónar-
menn: Baldvin Ottósson og Páll
Garðarsson.
12.00 Dagskrá. Tónleikar. Tilkynn-
ingar.
12.20 Fréttir. 12.45 Veðurfregnir.
Tilkynningar. Tónleikar.
13.40 Iþróttaþáttur Umsjón: Ragnar
Örn Pétursson.
14.00 Listalif Umsjón: Sigmar B.
Hauksson.
15.10 Listapopp - Gunnar Salvars-
son. (Þátturinn endurtekinn kl.
24.00).
16.00 Fréttir. Dagskrá. 16.15 Veður-
fregnir.
16.20 Framhaldsleikrit: „Hinn
mannlegi þáttur" eftir Graham
Greene IV. þáttur: „Dápum við
ekki réttan mann?“ Útvarpsleik-
gerð: Bernd Lau. Þýðandi: Ingi-
björg Þ. Stephensen. Leikstjóri:
Árni Ibsen. Leikendur: Helgi Skúla-
son, Steindór Hjörleifsson, Arnar
Jónsson, Arnór Benónýsson, Þor-
steinn Gunnarsson, Viðar Eggerts-
son, Ragnheiður Steindórsdóttir,
Erlingur Gislason, Rúrik Haralds-
son og Gisli GUðmundsson. (IV.
þáttur verður endurtekinn, föstu-
daginn 1. júní n.ki. kl. 21.35).
17.00 Fréttir á ensku.
17.10 Síðdegistónleikar Fílharmón-
íuhliómsveitin í Stokkhólmi leikur
18.00 Miðaftan í garðinum með Haf-
steini Hafliðasyni.
18.15 Tónleikar. Tilkynningar.
18.45 Veðurtregnir. Dagskrá
kvöldsins.
19.00 Kvöldfréttir. Tilkynningar.
19.35 „Guðs reiði“ e. Matthias Jó-
hannessen IV. og siðasti hluti:
„Marmari og bálköstur". Stjórn-
andi: Sveinn Einarsson. Flytjendur
auk hans: Þorsteinn Gunnarsson,
Borgar Garðarsson, Pétur Einars-
son, Kristín Anna Þórarinsdóttir og
Guðmundur Magnússon, sem er
sögumaður.
20.60 Ungir pennar Stjórnandi:
Dómhildur Sigurðardóttir
(RÚVAK).
20.10 Góð barnabók Umsjónarmað-
ur: Guðbjörg Þórisdóttir.
20.40 Norrænir nútímahöfundar
10. þáttur: Inge Eriksen Hjörtur
Pálsson sér um þáttinn og ræðir
við skáldkonuna, sem les upphaf
dagbókarkafla, er einnig verður
lesinn í íslenskri þýðingu.
21.15 Á sveitalinunni Þáttur Hildu
Torfadóttur, Laugum í Reykjadal
22.00 „Sjóferð sumarið 1956“,
smásaga eftir Margréti Hjálm-
týsdóttur Þórunn Pálsdóttir les.
22.15 Veðurfregnir. Fréttir. Dagskrá .
morgundagsins Orð kvöldsins
22.35 Harmonikuþáttur Umsjón:
Högni Jónsson.
23.05 Létt sfgild tónlist.
23.50 Fréttir. Dagskrárlok.
24.00 Næturútvarp frá RÁS 2 til kl.
03.00.
Laugardagur
26. maí
24.00-00.50 Listapopp (endurtek-
inn þáttur frá Rás 1) Stjórnandi:
Gunnar Salvarsson.
00.50-03.00 Á næturvaktinni Stjórn-
andi: Kristin Björg Þorsteinsdóttir.
Rásir 1 og 2 samtengdar kl. 24.00
Laugardagur
26. maí
16.30 íþróttir Umsjónarmaður Bjarni
Felixson.
18.10 Húsið á sléttunni Lokaþáttur
- Vegir ástarinnar II. Bandarískur
framhaldsmyndaflokkur. Þýðandi
Óskar Ingimarsson.
18.55 Enska knattspyrnann Loka-
þáttur.
19.45 Fréttaágrip á táknmáli
20.00 Fréttir og veður
20.25 Auglýsingar og dagskrá
20.35 í blíðu og strfðu Annar þáttur.
Bandarískur gamanmyndaflokkur.
Þýðandi Þrándur Thoroddsen.
21.00 Kvöldstund með Buffy Sainte-
Marie Þjóðlagasöngkonan og
lagasmiðurinn Buffy Sainte-Marie,
sem er af indíánaættum, syngur
gömul og ný lög sin og spjallar við
áhorfendur. Málstaður friðar og
hlutskipti indiána eru meðal helstu
yrkisefna hennar. Þýðandi Guðni
Kolbeinsson.
21.55Þúsund trúðar (A Thousand
Clowns) Bandarísk gamanmynd
fra1 956, gerð eftir leikriti eftir Herb
Gardner. Leikstjóri Fred Coe.
Aðalhlutverk: Jason Robards, Bar-
bara Harris, Martin Balam, Barry
Gordon og Gene Saks. Sjónvarps-
þáttahöfundur hefur sagt skilið við
starf sitt og helgar sig nú einkum
uppeldi systursonar síns sem hjá
honum býr. En dag nokkurn ber
fulltrúa barnaverndarnefndar aö
garði til að kanna heimilisástæður.
Þykir honum það ekki tilhlýðilegt
að forráðamaður drengsins skuli
ganga alvinnulaus. Þýðandi Guð-
rún Jörundsdóttir.
00.00 Dagskrárlok ,