NT - 28.05.1984, Blaðsíða 1

NT - 28.05.1984, Blaðsíða 1
Kjarasamningar setja málin í hnút: Verða Blöndu- framkvæmdir boðnar út á nýjan leik? ■ Svo getur farið að engar framkvæmdir verði við Blönduvirkjun í sumar. Astæðan er sú að kjarasamning vantar og Landsvirkjun getur ekki skrifað undir samning við verktaka fyrr en sá samningur er í höfn. Vinnuveitendasambandið virðist vera sá aðili sem samningsgerðin strandar á. Viðræðum um samninginn var frestað hjá sáttasemjara á fimmtudaginn að ósk VSI og hefur nýr fundur ekki verið boðaður. Aætlað var að hefja framkvæmdir nú um mánaðamótin, þannig að hver dagur sem líður án þess að samningar náist mun hafa í för með sér seinkun framkvæmda. Tilboð þau sem Landsvirkj- un hefur fengið í fyrstu verk- þættina gilda ekki nema' út júnímánuð og gæti því svo farið ef samningar takast ekki í júní að bjóða yrði þessa verkþætti út aftur og væri þá trúlega útilokað að fram- kvæmdir hæfust í sumar. Ætlunin mun vera sú að gerður verði heildársamningur sem gildi um virkjunarfram- kvæmdir fyrir allt landið. Nú hefur Verkalýðsfélagið Rang- æingur sem átti fulltrúa í samn- inganefndinni, ákveðið að láta hann hætta störfum þar. Að sögn Sigurðar Óskarssonar, varaformanns félagsins, hefur afstaða VSÍ til samningsgerð- arinnar lýst sér í „fyrir- vörum, drætti, umboðsleysi og öllum þeim kvillum sem venju- lega hrjá menn sem ekki ætla sér að semja." Guðmundur J. Guðmunds- son, formaður Verkamanna- sambandsins tók undir orð Sigurðar í samtali við NT í gær og bætti því við að hann sæi ekki betur en VSÍ ætlað sér að fresta framkvæmdum við Blönduvirkjun eitt ár í viðbót. Þórarinn Þórarinsson hjá VSÍ kvað vonir standa til að samningsgerðinni gæti lokið um miðjan júní, viðræðurnar yrðu væntanlega teknar upp aftur um miðja vikuna. Hann sagði að fyrri samningar um framkvæmdir á hálendinu hefðu þótt býsna dýrir. í því sambandi nefndi hann sérstak- lega ferðakostnað og taldi frá- leitt að flytja menn „viku- eða hálfsmánaðarlega hringinn í kringum landið. Sjá NT-viðtal við Ásgeir á baksíðu og íþróttir Asgeir meistari og Knattspyrnumaður V-Þýskalands 1984 ■ Ásgeir Sigurvinsson varð á laugardaginn v-þýskur meist- ari í knattspyrnu og var um leið valinn Knattspyrnumaður ársins af leikmönnum Bundeslígunnar. Hér sjást Ásgeir og Karlheinz Förster fyrirliði Stuttgart, með skjöldinn er fylgir meistaratigninni. Hverju hefði kosningalagabreytingin breytt í síðustu Alþingiskosningum? ■ Óli Þórðar, Davíð Aðal- Björn Dagbjarts, Krístjana kosningalagabreytingin sem anna töluvert öðruvísi en sókn sem tapar og hinir sem steinsson, Karl Steinar, Milla, Guömundur H., Geir, samþykkt var á síðasta þingi raun varð á og víst gefur þessi græða. Guðmundur Bjarna og Kol- Jóhann Einvarðs, Magnús hefði komið til framkvæmda samanburður okkur mynd af brún í Bj væru öll úti í Magnússon og Ámi Gunn- aðeinsfyrr. Þáværilikaskipt- því sem koma skal. í heildina hlc 19 I kuldanum en Kjartan Ólafs, arsson sætu í þinginu. Allt ef ingin milli stjórnmálaflokk- séð virðist það vera Fram- — PI5» »» _| Með raf- magns- reikning- inní Hæsta- rétt H 1700 króna raf- magnsreikningur í Hæstarétt. Próf- essor Gísli Jónsson vill áfrýja til Hæstaréttar úr- skurði fógetaréttar Hafnarfjarðar. Sjá blaðsíðu4 í morgun: Verkfall hjá löm- uðum og fötluðum ■ I morgun hófst verkfall sjúkraþjálfara hjá Styrktar- félagi lamaðra og fatlaðra á Háaleitisbraut, cn þangað koma um 100 manns í endur- hæfingu á degi hvcrjum. Verkfallið stendur frarn á miðvikudag, en nýtt verkfall hefur vcrið boðað 4. júní hafi samningar ckki tekist. Eftir að slitnaði upp úr viðræöum á sáttafundi á laugardag horf- ir heldur þunglega í málinu. Það scm mcnn töldu þá hafa áunnist var á ný komið í byrjunarstööu, samkvæmt heimildum NT. Ekki mun vcra fullur einhugur meðal sjúkraþjálfara og aö minnsta kosti einn þeirra mætti til vinnu í morgun þrátt fyrir boðað verkfall. Sigurður Magnússon framkvæmda- stjóri scgir verkfallið ekki hafa áhrif á fjárhagsstöðu stöðvarinnar, aðeins bitna á sjúklingum. Sjúkraþjálfarinn sem mætti til vinnu er belgísk- ur. Hann kvaðst styðja verk- fallið en drósiðferðileganrétt til verkfalls, i þessu tilfelli í efa. Annars var rólegt um að litast á endurhæfingarstöð- inni í morgun; flestir þeirra sem vanir eru að koma til endurhæfingar vissu um verk- fallið og spöruðu sér sporin. Þó var einhverjum snúið við sem ætluöu að nota sundlaug- ina. — Loðdýrarækt aðeins skrýtla í munni stjórn- málamanna Sjá bls. 2

x

NT

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: NT
https://timarit.is/publication/305

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.