NT


NT - 28.05.1984, Síða 4

NT - 28.05.1984, Síða 4
i!W Ársþing Slysavarnafélagsins: „Afturför í öryggis- þjónustu sjómanna“ - segir f orseti Slysavarnaf élagsins ■ „Stöðugleika skipa er mjög áfátt hjá mörgum ísienskum fiskiskipum og mörg slys að undanförnu má rekja til þess,“ sagði Haraldur Henrýsson, for- seti Slysavarnafélagsins í sam- tali við NT er hann var inntur eftir niðurstöðum ársþings Slysavarnafélagsins sem haldið var i Vestmannaeyjum um helg- ina. Haraldur sagði jafnframt að gera þyrfti ýtarlega úttekt á íslenska skipaflotanum, einkum með minni og eldri skip í huga. Pá gat Haraldur þess að minnkandi öryggisþjónusta og öryggisgæsla landhelgisgæsl- unnar væri mörgum áhyggju- efni. „Landhelgisgæslan mun búa yfir minni tækjakosti nú en áður, og óvissa er um þyrlu- rekstur", sagði Haraldur. „Við teljum að í rauninni hafi orðið afturför í sambandi við öryggis- þjónustu við íslenska sjómenn hvað þetta snertir." Á ársþingi Slysavarnafélags- ins voru ýmsir málaflokkar á dagskrá en að sögn Haraldar Henrýssonar voru öryggismál sjómanna veigamesta viðfangs- efni ráðstefnunnar. í ályktun sem samþykkt var á þinginu var áhersla lögð á menntunarmál sjómanna og varað við öllum tilhneigingum til að draga úr menntunarkröfum. Haraldur kvað þetta mikilvægt mál, eink- um með tilliti til þess að slysa- tíðni á sjó mun vera sú mesta sem þekkist í íslensku atvinnu- lífi. Þá var vakin athygli á þjálfun sjómanria í meðferð björgunar og öryggistækja og að brýnt sé orðið að bæta og skapa aðstöðu fyrir slíka fræðslu. í því skyni hyggjast Slysavarnafélagið og sjómanna- samtökin setja á fót þjálfunar- miðstöð fyrir sjómenn. Mánudagur 28. maí 1984 4 ■ Prófessor Gísli Jónsson hef- ur sótt um áfrýjunarleyfi til að áfrýja til Hæstaréttar máli milli hans og Rafveitu Hafnarfjarð- ar. Nýlega féll í Fógetarétti í Hafnarfírði úrskurður í máli þessu, Rafveitunni í hag. Vill Gísli ekki una úrskurðinum og sótti því um leyfið. Sérstakt leyfi þarf til áfrýjun- ar þar sem upphæð sú er málið fjallar um er of lítil til að Hæstiréttur geti tekið málið fyrir. Upphæðin er 1700 kr. en það er mismunur á gjaldskrá Raf- veitunnar og verði því sem Gísli vill borga fyrir rafmagnsnotkun hitablásara í lofthitunarkerfi í húsi sínu. ■ Gísli Jónsson, prófessor. „Hér er um það að ræða hvort einokunarfyrirtæki, eins og Rafvcitan, geta breytt gjaldskrám sínum að vild.“ Þessi mynd er tekin á ráðstefnu um rafmagnsbíla nú um helgina. NTmynd ÁmiSæberg breyttist þann 29. janúar 1982 þannig að tekið var fram hvaða tæki teldust húshitunartæki og voru hitablásarar undanskildir. Að sögn Jónasar Guðlaugs- sonar, rafveitustjóra, var þessi breyting gerð til að taka af öll tvfmæli um eftir hvaða reglum skyldi farið við gjaldtöku og að stuðst hefði verið við hefð- bundna venju í því sambandi. í samtali við NT benti Jónas á að í skýrslu, gerðri af Gísla í kringum 1970, kæmi fram að u.þ.b. tveir þriðju af húsaraf- magni nýttust til húshitunar. Annars vildi Jónas ekki tjá sig um málið. Gísli sagði að hér á landi væru hundruð húshitunarkerfa Gísli Jónsson prófessor: Með rafmagnsreikn- inginn í Hæstarétt Ráðuneytið hefur sent um- sókn Gísla til umsagnar Rafveit- unnar sem taka mun málið fyrir á stjórnarfundi í dag. Þaðan fer síðan málið aftur í dómsmála- ráðuneytið sem senda mun það til Hæstaréttar til umsagnar áður en endanleg ákvörðun er tekin. Gísli segir að hér sé um „prinsippmáU að ræða og spurningin sé hvort einokunar- fyrirtæki eins og Rafveitan geti breytt gjaldskrám sínum að vild. Gjaldskrá Rafveitunnar sem notuðu hitablásara og væri því mikilvægt fyrir neytendur að fá þetta leiðrétt. Gísli var rafveitustjóri í Hafn- arfirði frá 1961 til 1969. ■ Frá skólaslitunum. Skólameistarí ávarpar nýstúdenta. Að ofan gefur að líta málverkið af fyrstu. skólameistarahjónunum. Hótel Loftleiðir: Tékknesk kynning ■ Tékkneskir dagar verða á Loftleiðahótelinu frá 24.-30. maí. Dagskráin er haldin til að kynna Tékkóslóvakíu á íslandi, einkum á sviði verslunar og ferðalaga. Hún fer að mestu fram á Hótel Loftleiðum. Þar verða kynntir tékkneskir sér- réttir, þjóðlagatríó leikur í matsalnum og einnig verður sýning á þeim vörum sem tékk- nesk útflutningsfyrirtæki hafa á boðstólnum. Á sviði menningar verður sýnt handverk og list- munir. Börnum verður boðið upp á tékkneskt sjónvarpsefni, einkum byggt á þjóðsögum, og efnt verður til samkeppni barna. í ágúst munu Tékkar einnig taka þátt í kaupstefnunni Heim- ilið og fjölskyldan í Laugardals- höll. Skólameistarahjónin á léreft ■ Sáutján stúdentar útskrifuð- ust frá Menntaskólanum á ísa- firði í vor. Þetta ér í tíunda skipti sem skólinn útskrifar stúd- enta. Tíu ára stúdentar færðu skólanum málverk af fyrstu skólameistarahjónunum, þeim Bryndísi Schram og Jóni Baldvin Hannibalssyni. Myndina málaði Pétur Guðmundsson. Að þessu sinni útskrifuðust 17 stúdentar frá Menntaskólanum á ísafirði. NT-mynd Árni Sæberg, ■ William Diekmann Nauð- lend- ing ■ Lítil fjögurra sæta Piper- flugvél á leið frá Akureyri til Egilsstaða nauðlenti á túni við bæinn Mælivelli á Jökuldal í gær. Gangtruflanir komu fram í vélinni og ákvað flugmaðurinn að nauðlenda. Engin slys urðu á fólki, en fjórir voru í vélinni. Flugvélin er ekkert skemmd og getur líklega flogið upp af tún- inu aftur þegar gert hefur verið við mótorinn. Sex prestaköll auglýst ■ Sex prestaköll hefur Biskup íslands nú auglýst laus til umsóknar. Dalvík, Djúpavog. Hrísey, Rauf- arhöfn, Sauðlauksdal og Súgandafjörð. Guðfræði- menntun áskilin. Um- sóknum skal skilað á bisk- upsstofu. Umsóknarfrest- ur til 24. júní. NATO-nám á Islandi ■ „íslendingar standa framar- lega á sviði almannavarna á friðartímum,“ sagði William Diekmann, þýskur almanna- varnafulltrúi. Diekmann var á námsstefnu almannavarna NATO hér á landi í síðustu viku. Á námsstefnunni voru er- lendum fulltrúum kynntar helstu ráðstafanir og áætlanir Almannavarna íslands. Þá fluttu á námsstefnunni ýmsir íslenskir vísindamenn erindi um náttúruhamfarir. Páll Einarsson flutti erindi um jarðskjálfta, Markús Á. Einarsson um ofsaveður og sjávarflóð og Páll Imsland um eldgos. Þá fluttu einnig erindi Hafliði Helgi Jónsson og Sigur- jón Rist. Þátttakendur á námsstefn- unni voru frá Noregi, Dan- mörku, Spáni, Grikklandi, Bandaríkjunum, Kanada, Bretlandi, Belgíu, íslandi og Þýskalandi auk fulltrúa frá höfuðstöðvum NATO. Diekmann sagði að lítið væri um almannavarnaáætlanir í Þýskalandi vegna hættu á friðar- tímum. Hins vegar sagði hann að það hefði vakið athygli sína og annarra ráðstefnugesta hversu gott samstarf sé milli hinna mörgu aðila sem vinni að almannavörnum hér á landi. Þá sagði hann að ráðstefriu- gestir frá öðrum löndum, svo sem Spániog Grikklandi hefðu lært mikið af skipulagi á al- mannavörnum hér á landi.

x

NT

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: NT
https://timarit.is/publication/305

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.