NT - 28.05.1984, Page 17

NT - 28.05.1984, Page 17
eirrar evrópsku. m ían í Bretlandi kemur stíll hennar vel fram á stóru plötunni Diamond Life, sem nýlokið er að taka upp, en á eftir að koma út. Robert Elms heitir núverandi sambýlismaður henn- ar og er sá í vinnu hjá Spandau ballet að skrifa sögu hljómsveitarinnar. Þau búa í íbúð fyrir ofan slökkvi- stöð. Sade er 24 ára. Mánudagur 28. maí 1984 1 7 Dvergur- inn í Dallas ■ Pegar við horfum á Charlene Tilton sem Lucy í Dallas erum við sífellt að reka okkur á hversu miklu minni hún er en allir hinir leikararnir. Stundum hefur hún verið kölluð „dvergurinn í Dallas", en hún stendur fyrir sínu stúlkan sú, þó ekki sé hún há í lofti. Hún hefur sína bjargföstu trú og iðkar trúsína jafnt á helgum sem virkum degi. Samstarfsmenn hennar segja að það sé varla það smáhlé á upptökum í sjónvarpsþáttunum, að hún sé ekki strax komin í búningsherbergi sitt (eða hjólhýsi) til að lesa í biblíunni og biðjast fyrir. Nú býr Charlene ein með litlu dóttur sinni, því hjónaband hennar fór út um þúfur, en hún stendur sig vel í starfinu, og ekki hefur neitt heyrst um það að stjórnendur Dallas-þáttanna vilji losna við hana, -en það hefur heyrst um aðrar stjörnur í Dallas öðru hverju. Einkum hefur þá Victoria Principal verið nefnd. ■ Er hákarl í vatninu... eða kannski hinn illi JR? Það lítur út fyrir að Charlene (Lucy) sé um og ó að stinga sér í laugina. COROLIA COUPE Sportbíll meðeinstaka aksturseiginleika ogútlitsem vekur aðdáun Úrvals stýris-ogfjaðrabúnaður, 5. gíra skipting, læst mismunadrif og lítil loftmótstaða(0.35cd) gera Corolla Coupe sérlega lipran og þægilegan í akstri. Vélin er að mörgu leyti sérstök. jg Hún er létt, tveggja knastása, 16 ventla með rafeindastýrðri bensín- innspýtingu og kveikju. Corolla Coupe GT 2 dyra 418.000.- Corolla Coupe GT 3 dyra 430.000.- Corolla Coupe er óvenjulegur bíll á einstöku verði. TOYOTA Nýbýlavegi8 200 Kópavogi S. 91-44144

x

NT

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: NT
https://timarit.is/publication/305

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.