NT - 28.05.1984, Blaðsíða 27
iriui i nn
Samúel Örn Erlingsson (áb), BjörnLeósson, ÞórmundurBergsson
Páll kvað _
Þórsara í kútinn
■ Páll Ólafsson skoraði þrennu gegn Þór í gærkvöld. Á þessari mynd hefur Óskari Gunnarssyni
Þórsara tekist að stöðva Pál áður en hann kæmist í gegnum vörn Þórsara. NT-mynd Árni Sæbcrg.
■ „Ég er að sjálfsögðu mjög
ánægður með mörkin mín þrjú
í þessum leik, en stigin þrjú sem
við tryggðum okkur eru mun
mikilvægari“ sagði Páll Ólafs-
son Þróttari, í samtali við NT,
eftir að hann skoraði öll þrjú
mörk Þróttar í leiknum gegn
Þór á Laugardalsvelli í
gærkvöld, í 1. deildinni í knatt-
spyrnu.
„Við bjuggumst við þeim
sterkum og fyrsta háfltímann af
leiknum vorum við sofandi. Eftir
að við skoruðum fyrsta markið
þá brotnuðu þeir alveg niður.
Við nýttum okkur það og tókum
ieikinn í okkar hendur. Það er
ánægjulegt að við skulum vera
farnir að skora mörk, því það
hefur verið það sern okkur hefur
vantað að undanförnu", sagði
Páll.
MarkBraga
gerði muninn
■ Fram sigraði Breiðablik
1-0 á Kópavogsvelli í gær, í
fremur slökum leik. Leikur
þessi var fyrsti heimaleikur
Kópavogsmanna. í þessu ís-
landsmóti. Mörkin í þessum
.leik hefðu getað verið fleiri, en
það eina sem virkilega vel var
staðið að í leiknum var sigur-
mark Braga Björnssonar.
Blikarnir fóru vel af stað, og
fengu sitt fyrsta færi á 8.
mínútu, þegar Guðmundur
Baldursson prjónaði sig inn
fyrir, en alnafni hans í marki
Fram varði. Tíu mínútum síðar
brenndi Heiðar Heiðarsson
Bliki illa af í teignum. síðan
fengu Blikarnir draumafæri
sem hefði getað tryggt þeim að
minnsta kosti eitt stig. Blikarn-
Einkunnagjöf NT:
BREIÐBLIK
Friðrik Friðriksson
Benedikt Guðmundsson
Qmar Rafnsson
Olafur Sjörnsson
Loftur Oiafsson
Vignir Baldursson
Þorsteinn Geirsson
Jóhann Grétarsson
Heiðar Heiðarsson
Guðmundur Baldursson
Sigunón Kristjánsson
Jón Einarsson
Ingólfur Ingólfsson
FRAM:
Guðmundur Baldursson
Þorsteinn Þorsteinsson
Trausti Haraldsson
Omar Jóhannsson
Sverrir Einarsson
Kristinn Jónsson
Bragi Björnsson
Guðmundur Steinsson
Þorsteinn Vilhjálmsson
Einar Biörnsson
§teinn Guðjónsson
Orn Valdimarsson
ir komust inn í sendingu á
miðjunni, og allt í einu var
Sigurjón Kristjánsson alfrír
innan varnar fram með
boltann. Sigurjón lék upp að
markinu, átti alla möguleika,
en valdi þann sísta, gaf illa á
Jóhann Grétarsson sem fór
upp með honum, Jóhann náði
ekki boltanum og boltinn rann
útaf. Mínútu síðar gerðu
Framarar útum leikinn, Bragi
Björnsson fékk draumasend-
ingu frá Kristni Jónssyni í
vítateigshorninu og skoraði
með góðu skoti í fjærhornið,
skoti sem Friðrik Friðriksson
markvörður Breiðabliks réði
ekki við, en Friðrik átti annars
góðan dag í marki Breiðabliks,
greip vel inn í með úthlaupum.
I síðari hálfleik dapraðist
leikurinn enn. Blikarnir sóttu
heldur meira en hættulítið.
Mesta hættan var á 63. mín.
þegar Ingólfur Ingólfsson,
skallaði í utanverða stöngina
eftir langt innkast. Sjö mín-
útum síðar skoraði Ingólfur
glæsimark með skalla eftir
fyrirgjöf Guðmundar Baldurs-
sonar, en var rangstæður og
markið dæmt af. Jón Einarsson
átti einnig þrumuskot af löngu
færi rétt framhjá á 81. mínútu,
en þar með voru færi Blikanna
upptalin.
I lokin munaði litlu að for-
ysta Fram ykist, fyrst þegar
Ólafur Björnsson gaf óná-
kvæma háa sendingu á Friðrik,
en boltinn fór rétt framhjá, og
síðan er Guðmundur Steinsson
komst einn innfyrir, en skaut
framhjá, einn gegn Friðriki.
Í heild var sigur Fram
sanngjarn. Þrátt fyrir að Blik-
arnir hafi sótt meira, vantaði
allan brodd í sókn þeirra.
Framarar geta verið ánægð-
ir, nýting á færum hjá þeim var
mjög góð. Leikurinn var í
slöku meðallagi, ekki nógu
opinn, og mikið um mistök
með boltann og þröngt spil
sem menn réðu ekki við. Bestu
menn Fram voru Ómar Torfa-
son, Sverrir og Guðmundur,
en Breiðabliks Friðrik, Loftur
og Jóhann.
Dómari Eysteinn Guð-
mundsson og hélt vel utan um.
I
HNOT-
SKURN
■ Slakur leikur, þar sem allt
of mikió var um tæknileg
mistök með knöttinn og
þröngt spil sem menn réðu
ekki við. Dálítill vindur var,
en ekki slíkur að hann þyrfti
að skemma leikinn. Munur-
inn lá í því að Fram nýtti eitt
færi, Brejðablik ekkert, færi
voru fá. Ahorfendur 1037.
„Nú setjum við stefnuna á
efri hluta deildarinnar, við erum
orðnir leiðir á því að vera alltaf
í botnbaráttunni. Ég verð með
eitthvað fram í júlí, en þá verð
ég líklega að snúa mér alveg að
handboltanum vegna Ólympíu-
leikanna", sagði Páll Ólafsson,
en eins og kunnugt er þá er
hann í íslenska landsliðinu í
handknattleik.
Fyrstu 25 mínúturnar af
leiknum voru algjör einstefna á
mark Þróttar. Strax á fyrstu
mínútu leiksins björguðu Þrótt-
arar í línu eftir gott skot Kristj-
áns Kristjánssonar og á 5. mín-
útu komst Halldór Áskelsson
einn í gegnum vörn Þróttar, en
laust skot hans rúllaði í stöng.
Hefði Halldór fylgt skotinu eftir
hefði hann skorað, en hann var
full fljótur á sér að fagna marki.
Á 25. mín. skoruðu Þróttarar
úr sínu fyrsta færi í leiknum.
Páll Ólafsson var upphafsmað-
urinn að markinu og hann rak
einnig endahnútinn á það með
föstu skoti af stuttu færi. Sex
mínútum síðarskoruðu Þróttar-
ar aftur, en þeir komu meira og
meira inní leikinn eftir fyrsta
markið. Það var Páll sem lék
inní vítateig Þórs, boltinn berst
til Hauks Magnússonar sem
skaut í varnarmann á markalínu
og loks endaði boltinn fyrir
fótum Páls sem var ekki í
vartdræðum með að afgreiða
hann í netið.
Þróttarar voru mun meira
með boltann það sem eftir var
hálfleiksins, en góðri sókn Þórs-
ara á 35. mín. lauk með því að
Þróttarar björguðu á marklínu.
í síðari hálfleik réðu Þróttar-
ar lögum og lofum á vellinum og
var samleikur þeirra oft með
ágætum. Þriðja markið kom á
65. mín. Páll Guðlaugsson átti
lélegt útspark frá marki Þórs,
nafni hans Ólafsson í Þrótti
náði boltanum og gott skot hans
hafnaði í bláhorninu fjær, óverj-
andi fyrir markvörðinn.
Góður dómari þessa leiks var
Guðmundur Haraldsson.
HNOT-
SKURN
■ Góður leikur þar sem
Þórsarar fóru á kostum fyrstu
25 min. en Þróttarar fóru þá i
gang og léku stórgóða knatt-
spyrnu. Góður samleikur
þeirra og hættulegar send-
ingar innfyrir vörn Þórs
gerðu leikinn stórskemmti-
legan. Öllum á óvart léku
Þróttarar ekki í sínum vana-
legu hvítu og rauðu, röndóttu
búningum, heldur í blárri
treyju með hvítum ermum og
bláum buxum. Páll Ólafsson
skoraði öll mörk Þróttar á 25.
31. og 65. mín. Áminningar:
Daði Harðarson Þrótti og Sig-
urður Pálsson Þór. Ahorf-
endur 417.
Einkunnagjöf NT:
ÞÓR
Páll Guðlaugsson ... .. 6
Sigurbjörn Viðarsson .. 5
Jónas Róbertsson .. .. 4
Magnús Helgason ... .. 5
Óskar Gunnarsson .. . . 4
Árni Stefánsson . . 4
HalldórÁskelsson ... . . 3
Guðjón Guðmundsson . 3
Júlíus Tryggvason ... . . 4
Öli Þór Magnússon ... .. 4
Kristján Kristjánsson . . . 3
Skiptingar: Július
Tryggvason, fór út af á 62
mín. og Sigurður Pálsson
kom í hans stað. Einar
Áskelsson kom inná fyrir
Halldór Askelsson á 70. mín.
en Halldór varð fyrir meiðsl-
um.
ÞRÖTTUR
Guðmundur Erlingsson . 2
Arnar Friðriksson .... .. 3
Kristján Jónsson .... .. 2
Jóhann Hreiðarson ... . . 4
Björn Björnsson .. 4
Pétur Arnþórsson .... . . 2
Haukur Magnússon .. . . 4
Páll Ólafsson . . 1
Asgeir Elíasson . . 4
Daði Harðarson .. 3
Júlíus Júlíusson . . 3
Skiptingar: Ársæll Krist-
jánsson fékk skurð á höfuð á
17. mín. og Björn Björnsson
kom í hans stað. Vilhelm
Frederiksen kom inná fyrir
Hauk Magnússon á 80. mín.
■ Bragi Björnsson á fullri ferð, í baráttu við Loft Ólafsson
Breiðabliksmann. Bragi skoraði eina mark leiksins og tryggði
þar með Frömurum 3 Stig. NT-mynd Árni Sæberg.
NT-lið umferðarinnar: Stefán Jóhannsson KR (1) Guðni Bergsson
Ormarr Orlygsson KA (1) Val (1) Guðmundur Kjartansson Val (1) Kristján Jónsson Þrótti (1)
Pétur Arnþórsson Steingrímur Birgisson Bergþór Magnússon
Þrótti (1) KA (2) Val (1)
Ragnar Margeirsson Páll Ólafsson Heimir Karlsson
Keflavík (2) Þrótti (1) Víkingi (1)