NT


NT - 28.05.1984, Síða 28

NT - 28.05.1984, Síða 28
IU' Mánudagur 28. maí 1984 28 Óvænt tap Frá Andrési Olafssjni frcltamanni NT á Akranesi. ■ Akurnesingar og Keflvík- ingar kepptu í 1. deildarkeppn- inni á Akrancsi á laugardaginn og lauk leiknum með frekar óvæntum sigri Keilvíkinga sem skoruðu tvö mörk gegn einu inarki Skagamanna. Þar með töpuðu Islandsmeistararnir sín- um fyrsta ieik í 1. deild í ár og er greinilegt að allt getur gerst í deildinni í sumar. Það voru Keflvíkingar sem voru mun sterkari í fyrri hálf- leik og var það sérstaklega sóknarlína þeirra sem reyndist Skagamönnum erfið. Einar Ás- björn Ólafsson skoraði fyrsta mark leiksins beint úr auka- spyrnu frá vítateigshorni og var mál manna að Bjarni í ÍA I HNOT- SKURM ■ Framlínumenn Ketlvík- inga sköpuðu mikinn usla í vörn Skagamanna og áttu göðan leik. Skagamenn slak- ir í fyrri hálfleik en hresstust er Jón Leó kom inná. Leikur- inn í heild þokkalegur. Mörk ÍBK: Einar Ásbjörn ur auka- spyrnu og eitt sjálfsmark. Mark ÍA: Smári Guðjónsson í lok leiksins. Áhorfendur fjölmargir en óánægðir. EINKUNNAGJOFNT: ÍA Bjarni Sigurðsson .... 3 Guðjón Þórðarson ..... 5 Jón Áskelsson ........ 3 Sigurður Halldórsson ... 4 Heimir Guðjónsson .... 4 Sveinbjörn Hákonarson . 4 Július Ingólfsson.... 4 Sigþór Ómarsson...... 5 Guðbjörn Tryggvason .. 4 Árni Sveinsson........ 4 Sigurður Lárusson.... 4 A 57. mín. kemur Jón Leó Ríkharðsson inn fyrir Heimi og á 69. mín. Smári Guðjóns- son inn fyrir Sigþór. ÍBK Þorsteinn Bjarnason ... 4 Guðjón Guðjónsson .... 3 Óskar Færseth ........ 3 Valþór Sigþórsson.... 4 Gísli Eyjólfsson ..... 4 Sigurður Björgvinsson . 4 Einar Ásbjörn Ólafsson . 4 Magnús Garðarsson .... 4 Ragnar Margeirsson .... 2 Helgi Bentsson........ 2 Sigurjón Sveinsson .... 2 Kristinn Jóhannsson Inn fyrir Magnús á 55. mín. markinu hefði átt að vera betur á verði og verja skot Einars. Keflvíkingar héldu uppteknum hætti og sköpuðu oft hættu við Skagamarkið. Á 38. mín. tekur Einar hornspyrnu og uppúr henni bjarga Skagamenn á línu en stuttu áður þá höfðu Kefl- víkingar bjargað á línu frá Sigurði Halldórssyni. Á 39. mín. kom svo hálfgert rothögg á Skagamenn þegar sakleysis- legur bolti rúllaði í átt að Skagamarkinu, Bjarni kallaði „hef’ann" en Júlíus Ingólfsson stjakaði við knettinum sem fór framhjá Bjarna og í bláhornið, sjálfsmark. Þar með voru Kefl- víkingar komnir í 2-0 og var sú forysta nokkuð sanngjörn er flautað var til leikhlés. í seinni hálflcik eru það Skagamenn sem eru öllu frísk- ari og virtist sem Keflvíkingar drægju meir í vörn og reyndu að halda fengnum hlut. Á 12. mín. skipta Skagamenn Jóni Leó Ríkharðssyni inn á fyrir Heimi Guðjónsson og við það skerptist sóknarleikur þeirra mjög. Á 17. mín björguðu Keflvíkingar á línu eftir liorn- spyrnu Arna Sveinssonar en ho,rnspyrnur Árna sköpuðu nær alltaf mikinn usla í vítateig ÍBK. En það var einmitt uppúr hornspyrnu sem Skagamenn skoruðu, eftir að þvaga hafði myndast, barst boltinn til Smára Guðjónssonar sem skaut í markið af stuttu færi, 2-1 fyrir ÍBK. Stuttu áður hafði Jón Leó skallað að marki en Keflvíkingar björguðu á línu. Það voru aðeins um 6 mín eftir þegar Smári skoraði og tökst Keflvíkingum að halda sínum hlut og leggja sjálfa ísiands- meistarana. í Keflavíkurliðinu bar mest á sóknarmönnunum Ragnari, Helga og Sigurjóni en hjá Skagamönnum stóð enginn uppúr nema helst Jón Áskels- son sem stóð sig vel Einkunnagjöf NT: Valur Stefán Arnarson 4 Guðmundur Kjartansson . 3 Þorgrímur Þráinsson .... 3 Guðni Bergsson 2 Grímur Sæmundsen 3 Ingvar Guðmundsson ... 2 Bergþór Magnússon .... 2 Guðmundur Þorbjörnss .. 3 ValurValsson 3 Jón Grétar Jónsson 5 Hilmar Sighvatsson 3 KR Stefán Jóhannsson 2 Jakob Pétursson 5 Stefán Pétursson 5 Ottó Guðmundsson 5 Gunnar Gíslason 5 Ágúst Már Jónsson 5 Sæbjörn Guðmundsson . 5 Hannes Jóhannsson .... 5 Björn Rafnsson 5 Óskar Ingimundarson ... 5 Sverrir Herbertsson 5 Willum Þór Þórsson kom inn fyrir Sverri á 65. mín. og Erling Aðalsteinsson fyrir Björn á 80. min. ■ Ágúst Már KR-ingur og Guðmundur Valsari eigast við og má vart á mil|li sjá hvor hefur betur. Leikurinn endaði líka með því að hvorugur hafði betur, 0-0. NT mynd Árni Sæberg. Valsmenn skildu marka skóna efftir heima ■ Það var grátlegt fyrir Vals- menn að horfa á KR-inga labba útaf Laugardalsvelli með eitt stig í vasanum og þurfa sjálfir að sætta sig við eitt, en þannig er knattspyrnan, það lið sem ekki nýtir færi sín til að skora mörk vinnur ekki leiki. Það var fyrst og fremst galli Valsliðsins í leiknum að þeim tókst ekki að skora þrátt fyrir ótal góð mark- tækifæri og reyndar hafa þeir ekki skorað mark í deildinni til þessa. Eins og menn hafa sjálf- sagt getið sér til um þá endaði leikurinn, sem leikinn var á laugardag, með markalausu jafntefli, 0-0. Yfirburðir Valsmanna í leiknum voru miklir og héldu þeir uppi nær stöðugri pressu á KR markið og áttu mörg góð tækifæri til að skora en ef þeir hittu markið þá var þar fyrir besti maður KR-inga Stefán Jóhannsson sem varði oft á tíðum meistaralega. Sérstak- lega varði Stefán vel á 14. mín. þegar Jón Grétar Jónsson átti þrumuskot á markið af stuttu færi, Stefán náði að skutla sér á knöttinn og slá hann út í teig, þar kom aðvífandi Hilmar Sig- hvatsson og dúndraði, að því er virtist á opið markið, en Stefán var snöggur til og náði að verja meistaralega. Á 41. mín. bjarga svo KR-ingar naumlega í horn eftir fyrirgjöf Jóns Grétars og úr hornspyrnunni átti Hilm- argott skoten Stefán bjargaði. I síðari hálfleik héldu menn að KR-ingar myndu hrista af sér slenið en sú varð ekki raunin. Að visu komst Gunnar Gíslason einn í gegn á 50. mín. en missti boltann of langt frá sér og færið rann út í sandinn. Þar með eru upptalin færi KR- inga í seinni hálfleik. Valsmenn áttu þó fjölda færa en gleymdu að nýta þau. Á 74. mín skallaði Bergþór Magnússon í slá eftir góða fyrirgjöf Jóns Grétars og stuttu áður hafði Jón sjálfur skallað framhjá í stórgóðu færi eftir að Valur Valsson hafði sólað varnarmenn KR uppúr skónum og gefið fyrir. Sóknar- þungi Valsmanna var mikill en inn vildi boltinn ekki. Síðasta færi leiksins kom svo á 90. mín. er Jón Grétar komst í gegn en Stefán sá við honum sem og öðrum leikmönnum Vals. Hjá KR-ingum var Stefán langbestur en aðrir hreinlega slakir. í annars mjög jafngóðu Valsliðinu bar mest á ungu mönnunum Bergþóri, Ingvari Guðmundssyni og Guðna Bergssyni en Grímur Sæm.. Hilmar og Valur voru einnig góðir. Annars er erfitt að gera upp á milli Valsaranna því liðsheildin var mjög góð þrátt fyrir að ekki tækis að skora. Veðurguðirnir voru í besta skapi svo og dómarinn, Helgi Kristjánsson sem dæmdi af> stakri prýði. I HNOT' SKURN Allgóöur leikur, þrátt fyrir að mörkin vantaði. Valsmenn voru mlklu betrl og áttu fullt af góðum færum en skildu markaskóna eftir heima eða vantaði Inga Björn. KR-ingar voru slakir og heppnir. Veður var með ágætum en völlurinn bæði blautur og lítill. Dóm- gæsla góð og áhorfendur um. 500. Bauð upp á allt sem góður leikur þarf Frá Gyifa Kristjánssyni fréttamanni NT á Akureyri: ■ „Þetta var stórskemmti- legur leikur sem bauð upp á allt sem góður knattspyrnuleikur þarf að gera, mörk, hraða og mörg spennandi augnablik“, sagði Njáll Eiðsson fyrirliði KA eftir leik KA og Víkings á Akureyri unt helgina. Leikur- inn var leikinn á grasvelli KA og er fyrsti leikurinn í 1. dcild sem þar fer fram. „Við vorum klaufar í fyrri hálfleiknum, bæði fengum við þá á okkur ódýr mörk og nýttum ekki þau færi sem við fengum, ég t.d. með tvö dauðafæri. En það að ná að rífa sig upp með tvö mörk á bakinu og jafna leikinn sýnir þó vissan karakter hjá liðinu og við ætlum okkur að sigra Val um næstu helgi, það dugir ekki að fá alltaf eitt stig úr leikjum sínum?“ sagði Njáll Eiösson. Nókkur vindur var er leikur- inn fór fram og stóð hann horn í horn. Víkingar höfðu því vindinn dálítið með sér í fyrri hálfleik, en það voru þó KA- menn sem áttu fyrsta tækifærið er Ögmundur Kristinsson varði í horn frá Steingrími Birgissyni á 8. mínútu. Fyrsta markið kom hinsvegar á 18. mínútu, fyrirgjöf fyrir KA-markið barst til Ámunda Sigmundssonar og hann renndi boltanum í netið af öryggi. Tíu mínútum síðar skoraði Víkingur aftur. Eftir þvögu og mikinn darraðardans í vítateig KA barst boltinn til Heimis Karlssonar og þrumu- skot hans fórefst í markhornið. staðan 2-0 og þannig var hún í hálfleik. KA-menn hófu síðari hálf- leik með mikilli pressu, og Ögmundur mátti taka á honum stóra sínum til að forða marki. Hann sá við öllu sem á markið kom, þar til á 58. mínútu er hann réði ekki við sendingu Kristins Guðmundssonar sam- herja síns þrátt fyrir góð tilþrif. Sókn KA hertist enn. Stein- grímur komst einn inn fyrir en skaut í stöngina, en fjórum mínútum síðar jafnaði KA. Eftir hornspyrnu og skalla Gústafs Baldvinssonar barst boltinn til Bjarna Jóhannsson- ar, og hann skoraði af stuttu færi. Víkingar tóku aftur for- ystuna á 76. mínútu, er Ómar Torfason skoraði gott mark af fremur stuttu færi. En lokaorð- ið átti Hinrik Þórhallsson er hann jafnaði 3-3 á 85. mínútu með skalla eftir fyrirgjöf Njáls Eiðssonar. Af framansögðu má sjá að ýmislegt gekk á. Leikurinn var hraður og skemmtilegur, og merkilegt hvað leikmenn lið- anna náðu að hemja boltann og leika honum. Urslitin geta sennilega talist sanngjörn, en KA-menn voru þó klaufar í fyrri hálfleik, og það kostaði þá sennilega tvö stig. Bestu menn liðanna voru þeir Steingrímur Birgisson og Ormarr Örlygsson hjá KA, en hjá Víkingi þeir Heimir Karjsson, Ögmundur í markinu og Ámundi Sigmundsson. HN0T- SKURN ■ Ákaflega skemmtilegur leikur og merkilega vel leik- inn miðað við aðstæður. Nokkur vindur var, en gras- völlur KA í góðu ástandi. Mörk leiksins gerðu Ámundi Sigmundsson, Heimir Karls- son og Ómar Torfason fyrir Víking, en fyrir KA skoruðu Bjarni Jóhannsson, Hinrik Þórhallsson og eitt var sjálfsmark. Áhorfendur um 600. Einkunna- gjöf NT: KA: Þorvaldur Jónsson . Ormarr Örlygsson . Friðfinnur Hermanns. Gústaf Baldvinsson Bjarni Jóhannsson . Þorvaldur Örlygsson Steingrimur Birgisson Hinrik Þórhallsson .. Njáll Eiðsson...... Hafþór Kolbeinsson . Erlingur Kristjánsson VIKINGUR: Ögmundur Kristinsson . 3 Unnsteinn Kárason .... 5 Ragnar Gíslason...... 4 Kristinn Guðmundsson . 4 Magnús Jónsson ....... 3 Andri Marteinsson .... 3 Kristinn Helgason.... 4 ÓmarTorfason......... 4 Ámundi Sigmundsson .. 3 Heimir Karlsson...... 2 Sigurður Aðalsteinsson . 4

x

NT

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: NT
https://timarit.is/publication/305

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.