NT


NT - 28.05.1984, Síða 32

NT - 28.05.1984, Síða 32
„Vissi ekki af þessu fyrr en ég lasbladid" ■ „Ég vissi ekkcrt af þessu fyrr en ég rakst á þetta í blaðinu“, sagði Ásgeir Sigur- vinsson knattspyrnumaður hjá Þýskaiandsmeisturum Stuttgart, í einkasamtali við NT á laugardag en hann var valinn knattspyrnumaður árs- ins í V-Þýskalandi. Kosningin fer fram á vegum stórblaðsins Welt am Sontag og eru það leikmenn liðanna í „Bundes- lígunni,“ alls 198 leikmenn, sem taka þátt í kosningunni. „Þetta kemur mér mikið á óvart, sérstaklega vegna þess að útlendingur hefur aldrei áður orðið fyrir valinu“, sagði Ásgeir. Ásgeir Sigurvinsson var langefstur í kjörinu, hlaut alls 78 atkvæði. Ekki ófrægari maður en Karl-Heinz Rumm- enigge varð í öðru sæti á eftir Ásgeiri með 32 atkvæði. Á þessum mikla mun sést hvað Ásgeir er mikils metinn, sem stjórnandi sóknarleiks Stuttgart, sem unnu sinn fyrsta meistaratitilsíðan 1952, á laug- ardag. „Við strákarnir í liðinu fór- um eftir leikinn gegn Hamborg, niður á Ráðhús- torgið hér í Stuttgart, þar sem við vorum heiðraðir af borg- arstjóranum. Torgið var troð- fullt af fólki og einnig allar nærliggjandi götur. Eg get ómögulega giskað á hvað margt fólk var þarna saman- komið, en hvert sem maður leit var fólk samanþjappað." „Það var mikið um fagnað- arlæti hér í borginni á laugar- daginn og borgarstjórnin ákvað að allar krár og knæpur skyldu vera opnar til kl. 3 í Sexmörk á Akureyri -sjábls.28. Leikirnir ígær - bls 27 íþróttir á bls. 27-32 ■ Sovétmaðurínn Sergei Bubka setti um helgina heims- met í stangarstökki. Bubka stökk 5,85 metra. Hann mun ekki keppa á Ólympíuleikun- um fremur en aðrir Sovét- menn. SHnamynd: POLFOTO. tilefni af meistaratitlinum, en vanalega loka. þessar krár kl. 1. „Ég vil fyrst og fremst þakka sigur okkar í deildinni, sterkri liðsheild og góðum þjálfara, en hann hefur verið að byggja þetta lið upp á undanförnum tveimur árum,“ sagði Ásgeir og gerði lítið úr sínum hlut í sigrinum. Lítillæti og hógværð eru einir af stærstu kostum Ásgeirs samhliða frábærum knattspyrnuhæfileikum hans. „Ég lék þannig stöðu að það kemur í minn hlut að stjórna sóknaraðgerðum liðsins og mér fellur það vel." „Mér líkar stórkostlega vel hér í Stuttgart og hér ætla ég að vera áfram. Tilboð frá Ítalíu freista mín ekki, hér verð ég og stend við minn samning við Stuttgart. Ekki er Ásgeir kominn í sumarfrí þrátt fyrir að keppn- istímabilinu í Þýskalandi sé lokið. Á fimmtudag halda Ás- geir og félagar í Stuttgart til. Bandaríkjanna í keppnisferð, en eftir það ferðalag er Ásgeir væntanlegur til íslands í sumarfrí.Nánar á bls. 30 og 31 ■ Líkurnar á því að argent- ínski knattspyrnusnillingur- inn Diego Mardona sé á förum frá Barcelona til Ítalíu hafa aukist til muna eftir að landi Maradona, Jose Luis Menotti, framkvæmdastjóri Barcelona sagði starfi sínu láusu. Maradona mun vera lítið ánægður með eftirmann Menottis, Englendinginn Terry Venables, sem var framkvæmdastjóri hjá Qu- eens Park Rangers, en hann hefur gert tveggja ára samn- ing við Barcelona. „Mér líkar ekki við enska knattspymu“, segði Mara- dona í blaðaviðtali á föstu- dag. Fulltrúar frá ítals.ka lið- inu Napoli voru á Spáni um helgina til viðræðna við for- ráðamenn Barcelona um kaup á Maradona.

x

NT

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: NT
https://timarit.is/publication/305

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.