NT - 15.06.1984, Page 1
Breiðafjörður:
Föstudagw 15, júní 1984 -144. tbl. 68. árg.
■ Eftir næturlangar umræður í hollenska þinginu
voru tillögur stjórnarinnar í eldflaugamálum sam-
þykktar. Uppsetningu eldflauganna hefur verið
frestað, nema Sovétmenn setji upp fleiri SS flaugar í
Evrópu þá verður uppsetningu flauganna flýtt.
Sjá bls.24
Tekinn á ólög-
legum veiðum
■ Farsæll SH 30 var
staðinn að ólöglegum
veiðum snemma í
gærmorgun. Pað var
varðskipið Týr sem
kom að Farsæli um 19
mílur norðvestur af
Öndverðarnesi klukk-
an 06.20 í gærmorgun
og setti menn um
borð. Við skoðun kom
í ljós að báturinn, sem
var á togveiðum, not-
aði ólöglega möskva-
stærð.
Möskvar í trolli
bátsins mældust 145
mrn í stað 155 mm sem
er löglegt. Báturinn
var færður til Stykkis-
hólms þar sem gerð
var dómssátt. Skip-
stjórinn greiddi 42.000
króna sekt sem rennur
í Landhelgissjóð
íslands.
Þetta er fyrsta brot
skipstjórans.
Aðalfundur Sambandsins:
Aðalfundur SÍS setur ofan í við stjórnina:
Breytingum á
toppi hafnað?
■ Aðalfundur Sambandsins
samþykkti seint í gærkvöldi
með naumum meirihluta að
fresta um eitt ár afgreiðslu á
tillögum stjórnar sem miðuðu
að skipulagsbreytingu á stjórn
SÍS. Nefnd sem fjalla átti um
málið komst ekki að niður-
stöðu og var þá tillaga sem
Þröstur Olafsson úr KRON og
tveir aðrir fulltrúar báru fram
í gær samþykkt með 58 at-
kvæðum gegn 46. Eins og skýrt
hefur verið fráJ'NT voru mjög
deildar meiningar á fundinum
um gagnsemi þessara áforma
stjórnarinnar.
Þá var þegar NT fór í prent-
un í gær hafin stjórnarkosning
og var Valur endurkjörinn
með meginþorra atkvæða.
Hávaðareglur á
Kennedyflugvelli:
Flugleiðir
sækja um
undanþágu
-alltóljóst um
flugvélakaup
■ Enn hafa Flugleiðir sótt
um undanþágu frá hávaðaregl-
um, sem í gildi eru á Kennedy-
flugvelli í New York, fyrir DC
8 þotur sínar. Núgildandi
undanþága frá reglunum gildir
til áramóta og fáist hún ekki
framlengd er ljóst að áttur
félagsins fá ekki að lenda á
vellinum nema skipt verði um
hreyfla á þeim.
Sigurður Helgason,
stjórnarformaður Flugleiða,
sagði í samtali við NT, að ein
60 flugfélög hefðu að undan-
förnu farið fram á framleng-
ingu á undanþágum frá þess-
um reglum. Hann kvaðst
vongóður um að þær fengjust,
að minnsta kosti tímabundið.
- En er ekki félagið á síð-
asta snúning að taka ákvörðun
um kaup á nýjum vélum í
Atlantshafsflugið?
„Nei. Ég held að við getum
verið rólegir í nokkra mánuði
að minnsta kosti. Hins vegar
er alltaf verið að skoða þessi
mál og hér eru oft á ferðinni
menn frá flugvélaverksmiðj-
um, t.d. Boeing, Douglas og
Airbus," sagði Sigurður. Hann
sagði að á þessari stundu væri
ómögulegt að segja nokkuð
um hvaða flugvélar væri fýsi-
legt að kaupa fyrir Flugleiðir.
NT-mynd Ari
„Hér skal sko byggt, - og ekkert múður.“
- hefur að
■ Eftir 7 tíma heitar umræður
í gær samþykkti aðalfundur
Sambandsins að harma þá
ákvörðun stjórnar SIS að gera
fyrirtækið aðila að ísfilm h.f.
Alyktunin var samþykkt með 56
atkvæðum gegn 5, en tæpur
helmingur þingfulltrúa sat hjá.
í tillögunni er ekki krafist beinn-
Maraþonfundir í útvegsmannafélögum:
Útgerðarmenn ekki á
einu máli um stoppið
■ Útgerðarmenn á Akranesi
ákváðu á fundi í gær að fylgja
fordæmi starfsbræðra sinna á
Austfjörðum og sameinast um
áð beina togurum sínum í höfn
verði útgerðinni ekki skapaður
rekstrargrundvöllur. Hafa þeir
dagsett stoppið 5. júlí, eða*
tæpum hálfum mánuði á cftir
Austfirðingunum.
Útvegsmenn í Reykjavík
ákváðu á fjölmennum fundi í
gær að fara ekki út í samræmd-
ar aðgerðir að svo stöddu.
„Það voru allir sammála um að
þrauka meðan hægt væri í
þeirri von að stjórnvöld gripu
í taumana," sagði Jakob Sig-
urðsson, formaður Útvegs-
mannafélags Reykjavíkur, í
samtali við NT í gærkvöldi.
Útvegsmenn á Norðurlandi
ætla ekki að sameinast um að
sigla skipum sínum í land og
Suðurnesjamenn ekki heldur
eftir því sem næst varð komist
í gærkvöldi, en fjölmennur
fundur í þeirra félagi stóð enn
síðast þegar fréttist og búist
var við að hann stæði fram á
nótt.
líkindum engin áhrif á aðildina
ar úrsagnar Sambandsins úr Is-
film en raddir voru uppi um það
hjá sumum ræðumönnum án
þess að fram kæmi formleg
tillaga þess efnis.
I ályktuninni segir meðal ann-
ars að fundurinn telji miður að
gengið sé til samstarfs um
fjölmiðlun við aðalmálgagn
höfuðandstæðinga samvinnu-
hreyfingarinnar í landinu og
álitið að fremur hefði átt að
starfa með samtökum launa-
fólks og bænda sem myndi ís-
lenska samvinnuhreyfingu. Þá er
fagnað ákvörðun KEA um
stofnun fjölmiðlafyrirtækis í
samvinnu við almannasamtök
og önnur kaupfélög.
Valur Arnþórsson stjórnar-
formaður SÍS kvaðst í samtali
við NT ekki líta á ályktunina
sem vantraust á stjórnina heldur
einungis andstöðu við þessa
ákvörðun hennar. Þá vildi hann
ekkert segja hvort þessi ályktun
hefði nokkur áhrif á áframhald-
andi aðild Sambandsins að SÍS
en benti á að engin krafa væri í
tillögunni um að henni yrði
hætt. Þá sagði Valur þetta
endurspegla andúð samvinnu-
manna á skrifum Morgunblaðsins
og DV gegn ýmsu því sem
samvinnuhugsjóninni er kærast.
Erlendur Einarsson forstjóri
kvaðst í samtali við blaðið ekki
reikna með að ályktunin hefði
nokkur áhrif á áframhaldandi
eignaraðild að ísfilm.
Beið
bana
íNew
York
■ ísiendingur á fertugs
aldri fannst látinn, að þv
er virtist af slysförum, ;
götu í New York snemm;
í gærmorgun. Var maður-
inn, sem vann á söluskrif
stofu Flugleiða í Rocke-
feller Center á leið til
vinnu sinnar þegar slysiS
átti sér stað.
Sveinn Sæntundsson.
blaðafulltrúi Flugieiða,
sagði t' samtali við NT i
gærkvöldi að fréttir af slys-
inu hefðu borist hingað til
lands um miðjan dag í
gær. Þá hefði ekkert legið
fyrir um hvernig lát
mannsins bar að, en talið
var að hann hefði fallið
fram af svölum og niður á
gangstétt.
Harmar aðild,Sam-
bandsins að Isfilm