NT - 15.06.1984, Blaðsíða 9

NT - 15.06.1984, Blaðsíða 9
Föstudagur 15. júní 1984 Gamalt og nýtt um hjólbarða ■ Síðan fyrir einni öld hafa orðið miklar framfarir í dekkjaframleiðslu. Flestir framleið- endur hafanúna einhverja alveg nýja og öðruvísi útgáfu af þessum ómissandi svörtu hringjum, sem halda bílunum okkar uppi í hönnun og prófun. En lítum aðeins á söguna. Frá uppfinningu hjólsins og nokkrum þúsundum ára eftir það fann enginn maður hjá sér köllun til þess að betrumbæta þessa ein- földu uppfinningu, það var fyrst seint á 19. öld að gúmmí var notað til þess að klæða vagnhjól með. Loks datt íra að nafni Dunlop í hug að setja loftfyllta gúmmíblöðru utan um gjarðirnar á reiðhjóli sonar síns. Til þess að halda slöngunni á sínum stað og verja hana vafði hann dúk utan um slöngu og gjörð, og voilá, fyrsta dekkið fór í prófun úti í garði. Þegar bílar fóru að ná lífs- hættulegum hraða (að mati margra lækna sem töldu meiri hraða en svona 50-60 km/klst. banvænan) komu kostir loftfylltu hjól-hlífanna best í ljós, og fljót- lega urðu allir fólksbílar búnir þeim. Gúmmíslöngurnar innan í voru nú komnar með loftventil svo að hægt væri að fylla þær aftur af lofti ef gat kæmi á þær sem var afar algengt. Til hlífðar þeim var ofinn belgur úr bómull. sem var steyptur inn í gúmmí við hita í sérstökum mótum, rétt eins og reiðhjóladekk og ..diagonal" („venjuleg") dekk eru nú á dögum. Næsta skref kom frá Frakk- landi. Michelin setti rétt eftir stríð á markað dekk sem var byggt allt öðruvísi en hefðbundin dekk. Efnið var stálvír í stað bómullar og vírinn lagður allt öðruvísi. Utanum einfaldan sveigj- anlegan vírbelg var lagt stíft ofið vírbelti sem baninn var steyptur á. Kostirnir voru margir. Stór- aukin rásfesta, vegna stöðugleika slitflatarins á stálbeltunum. miklu meira veggrip og nálægt þreföld ending, aðallegá'vegna minni hitamyndunar. Þetta sama dekk. Michelin X Radial er fram- leitt enn þann dag í dag nær óbreytt sem segir sína sögu. Þrátt fyriróumdeilanlega kosti radial-(þverbanda-)-byggðu dekkjanna voru bílaframleiðend- ur ótrúlega lengi að taka þessa framför í notkun. Fyrstir voru franskir bílar, síðan ítalskir sportbílar og smám saman færð- ist notkunin neðar og neðar í stiganum. I veginum fyrir al- mennari notkun stóð það sama og oft áður og síðar, verðið var hærra en á hinum hefðbundnu diagonal (skábanda) byggðú dekkjum. Annað atriði hefirver- ið uppáhaldsafsökun íslendinga fyrir að fúlsa við radialdekkjum, en það er að diagonaldekk eru yfirieitt (en alls ekki alltaf) afar íin-byggð, sem þýðir að þau eru mjúk (í allar áttir!) Flest radial- dekk eru mun stífbyggðari til þess að gefa rásfestu og grip, en dekk eins og áðurnefnt Michelin X og mörg amerísk radialdekk gefa diagonal-dekkjum ekkcrt eftir í mýkt. Diagonaldekk geta líka verið stíf og hörð eins og sannast á því að kappaksturdekk (til notkunar á malbikuðum brautum n.b.) hafa hingað til ■ ContiTyre System frá Cont- inental, mesta bylting í dekkja- framleiðslu sem sést hefur, ef tekst að semja við aðra fram- leiðendur um fjöldaframleiðslu. verið skábanda-byggð (diagon- al). Næsta skrefið í þróuninni kom úr kappakstri þar scm leiðin til meira veggrips og meiri hraða var orðin meiri breidd, og til þess að dekkin yrðu ekki ævintýralega há varð hugtakið „lágprófíl" til. Þótt breiddin aukist er hæðin látin vera sú sama og í stað þess að hæðin frá felgubrún að slitfleti sé u.þ.b. 82% af breiddinni eins og venjan hefir verið.er hæðin 70,60, eða jafnvel 50% af breidd- inni. Þetta gefur mun meiri stöðugleika og grip í beygjum miðað við jafnbreið en hærri dekk, því að hliðarnar eru lægri og gefa minna eftir. Hvað um framtíðina, verða allir bílar á einhverjum valtara- dekkjum? Nei, með breiddinni fylgja ýmsir gallar, stöðugleiki á beinum vegi minnkar og hætta á að fljóta upp á blautum vegum eykst. Til þess að mæta vatnsflot- inu eru nú gerðar tilraunir með að hafa tvö mjó dekk á hverju hjólnái, þ.e.a.s. 8 dekk alls á venjulegum bíl. Kostirnir sem komið hafa í Ijós við tilraunir eru: • Nær ónæmi fyrir „vatnsfloti”. Auðveldari stjórn miðað við gdp- • Minni hitamyndun og þar af leiðandi meiri ending. • Möguleiki á lægri loftþrýstingi og þar af leiðandi meiri mýkt. Hverjir eru þá gallarnir? Meiri stofnkostnaður þar sem 8 mjó dekk kosta meira en 4 stór og sérsmíðaðar felgur þarf til þess að koma þeim fyrir. Öðrum galla við loftfyllt dekk er verið að reyna að útrýma, en það er að loftið á það til að tapast úr þcim þannig að bílstjórinn neyðist til þess að ná í varadekkið úr skottinu og skipta þar sem hann er staddur. Sú þyngd og það pláss sem varadekkið, tjakk- urinn og felgulykillinn taka hef- ur lcngi verið þyrnir í augum bílaframleiðenda, sem hafa reynt plásssparandi pínu-dekk á ódýrri, mjórri felgu í stað fimmta hjólsins. Sú lausn erekki góð, og það sem dekkjaframleiðendur hamast nú við er að koma sér saman um bestu leiðina til þess að framleiða dekk sem aka má á sprungnu, eða sem er mun betra, springa ekki eða loka sjálf götum sem á þau koma. Róttækustu lausnina hafa sérfræðingar Continental verksmiðjanna sýnt þar er dekkið fest innan á felguna en ekki utan á eins og alltaf hefur verið frá dögum Dunlops. Engin þessarra róttæku nýjunga koma þó á markað í bráð og þangað til höldum við áfram að fá æ full- komnari venjuleg radialdekk og sjáum diagonaldekkin hverfa alveg. ■ Það er umdeilt hver fann upp loftfyllta hjólbarðann en sá sem yfirleitt er eignaður sá heiður er írinn Dunlop, sem við sjáum hér við hönnun og smíði fyrsta dekksins. ■ Þverskurður af radialdekki sem sýnir þverbandabygginguna með aukabeltum undir slitlaginu sem liggja þvert á hin. ■ Eru tvö mjó betri en eitt breitt? Já, en kostnaður er ætlaður of mikill til þess að framleiðsla heijist. EV-SALURINN í FIATHÚSINU SKIPTIVERSLUN ÞÚ KEMUR Á ÞEIM Bílaúrvalið ersíbreytflegt frá degitfldags. «AIVILA OG EKUR I VIO LÁIMUM ÞÉR MILLIGJÖFINA. BURTU Á NÝRRI BÍL, OFT JAFNVEL ENGIN ÚTBORGUN Hin sívinsælu og landsþekktu EY-kjör- eru kjör sem byggjast á trausti Við tökum gamla bílinn uppí - allskonar skipti möguleg Við lánum í 3 - 6 - 9 - 12 mánuði Opið virka daga kl. 9-18.30. Opið á laugardögum frá kl. 10-16 1929 no* - ALLT Á SAMA STAÐ - SIFELLD ÞJÓNUSTA - YFIR HÁLFA ÖLD. notodir bílar í eigu umbodssins f I tað EGILL. STA VILHJALMSSON 1984 Smiðjuvegi 4c — Kópavogi — Sími 79944—79775 BT Tv'-l'

x

NT

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: NT
https://timarit.is/publication/305

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.