NT - 15.06.1984, Blaðsíða 3
Föstudagur 15. júní 1984 4 *3
Hvað ræður
vali á víni
fyrir ÁTVR
- ekkitilviðræðuummálið
segir forstjóri ÁTVR
■ Forstjóra Áfengis og tóbaksverslunar ríkisins
hefur verið send áskorun, sem undirrituð er af
nokkrum tugum manna, um að taka tiltekin
spönsk léttvín til sölumeðferðar í áfengisútsöl-
um. Telja þeir sem áskorunina senda að hér sé
um að ræða gæðavín á tiltölulega lágu innkaups-
verði.
„Ég hef ekkert litið á þessar
undirskriftir. Við seljum fjölda
tegunda í útsölum okkar og það
eru líka heilmargar tegundir
sem ekki eru seldar og ég sé
enga ástæðu til að taka þessi
spönsku vín endilega fram yfir
þær,“ sagði Jón Kjartansson,
forstjóri, þegar hann var inntur
eftir viðbrögðum við áskorun-
inni.
Umboðsmaður umræddrar
víntegundar sagðist í samtali
við NT fyrst og fremst hafa
safnað þessum undirskriftum og
sent áskorunina til að vekja
athygli á þeirri tregðu sem ríkti
hjá ÁTVR að taka nýjar teg-
undir til sölumeðferðar. „Þau
vín sem hér um ræðir koma frá
einhverju besta vínræktarsvæði
heimsins og hafa hlotið mikla
alþjóðlega viðurkenningu. Þau
eru seld í flestum löndum Vest-
ur-Evrópu og í Bandarfkjunum.
Mér finnst þess vegna óskiljan-
legt að þau fáist ekki seld hér í
áfengisútsölunum, en þau hafa
um nokkurt skeið verið seld á
einstaka matsölustöðum og not-
ið mikilla vinsælda," sagði um-
boðsmaðurinn.
Þegar Jón Kjartansson var
spurður hvað réði vali á vínteg-
undum sem seldar væru í út-
sölum ÁTVR sagðist hann ekki
sjá ástæðu til að ræða það og
„síst við blaðamenn“.
Reykjavík:
Miðbærinn brennur
■ Fjölmargir ráku upp stór
augu er ntikinn reyk bar yfir
miðbæ Reykjavíkur í gær um
fimmleytið. Slökkviliðið þaut á
staðinn, sem reyndist vera við
Tjarnabæ en þar logaði glatt í
ýmsu dóti í portinu við húsið.
í ljós kom að ýmislegt drasl
frá leikflokknum Svart og Syk-
urlaust var að brenna. Er talið
að kviknað hafi í út frá logsuð-
utækjum sem leikflokkurinn var
að nota.
■ Lóðin eftirsótta. Til vinstri á myndinni má sjá húsið sem staðið gæti í vegi fyrir áformum um Tónlistarhöll. Til hægri útihús. IVfyndin
er tekin frá Suðurlandsbraut.
■ Af þeim stöðum sem
koma til greina undir Tón-
listarhöll er nú einkum ver-
ið að athuga lóðina sem
afmarkast af Suðurlands-
braut og Reykjavegi, en í
fulltrúaráði áhugamanna
um byggingu Tónlistarhall-
ar hlaut sú lóð flest atkvæði
í atkvæðagreiðslu. Boltinn
er nú hjá borginni, en vissir
annmarkar eru á því að
Tónlistarhöllin geti risið
þarna í brekkum Laugar-
dalsins og þeir helstir að
búskapur er ennþá stund-
aður, búið er á útjaðri lóð-
arinnar og þyrftu þau hús
að hverfa. Þau eru hinsveg-
ar á erfðafestulandi og það
gæti orðið dýrt fyrir borgina
að leysa þá erfðafestu.
Kostirnir eru hinsvegar helst
þeir að mikið er af bílastæðum
í nágrenni íþróttavallanna og
að Tónlistarskólinn í Reykjavík
á þarna aðliggjandi lóð sem
hann hyggst nota síðar. Stutt
yrði því í höllina fyrir kennara
og nemendur þess skóla og
fljótgert að senda tónlistarmenn
í endurhæfingu.
Aðrir staðir sem koma einnig
til greina eru við höfnina í flútti
við Seðlabankahúsið. Við Borg-
artúnið neðst þar sem nú er
bílasala. í Leynimýrinni suður
af Öskjuhlíðinni ofan við
Heyrnleysingjaskólann ogeinn-
ig er talað um svæðið austan við
Sigtúnssvæðið, inn undir Bad-
mintonhöllinni.
Ámann Örn Ármannsson
einn af þeim sem sæti á í
undirbúningsnefnd undir Tón-
listarhöll sagðist vonast eftir
jákvæðu svari með Sigtúnslóð-
ina þegar í þessum mánuði.
Samnorrænt útboð yrði um
teikningu á höllinni og það gæti
ekki hafist fyrr en ákvörðun um
Tóð lægi fyrir. Ef allt gengi að'
bestu óskum yrði hægt að hefja
framkvæmdir næsta sumar og
von sín væri sú að hægt væri að
ljúka byggingunni á 5 árum.
Það ylti þó á ýmsu.
Þorvaldur S. Þorvaldsson
forstöðumaður Borgarskipu-
lagsins sagði að verið væri að
deiliskipuleggja þann reit sem
umrædd lóð væri hluti af og
unnið að því í borgarkerfinu að
athuga hvort hægt yrði að
rýma á þessu svæði nógu stóra
lóð fyrir Tónlistarhöll. Hann
taldi að niðurstöður gætu legið
fyrir í þessum mánuði.
Samkvæmt heimildum NT er
málið dálítið snúið því þeir
sem eiga þarna erfðafestuland
eru ekki tilbúnir til að sleppa
því fyrir eitthvað smálegt. Þeir
hafa numið lög og kunna því góð
skil á réttindum sínum.
Fór með sláttuvél í viðgerð:
Fannst verð-
lagning keyra
um þverbak
- enda meira gert en beðið var um
■ Það hendir oft að menn
verði gapandi hissa yfir
rcikningum sem þeir fá fyrir
ýmsa keypta þjónustu. Fyrir
nokkru barst Verðlagsstofn-
un í hendur reikningur vegna
viðgerðar á garðsláttuvél,
sem viðtakandi var ekki alls
kostar sáttur við.
Upphaf málsins var að
sögn eiganda vélarinnar að
hann fór með vélina í viðgerð
til Seyðis, sláttuvélaþjónustu
í Kópavogi, til þess að fá
skipt um hníf í vélinni. Þegar
vélin var sótt hafði ýmislegt
fleira verið gert án þess að
óskað hefði verið eftir því.
Auk hnífs hafði verið skipt
um kerti, bensíntank, krana
og fleira. Reikningurinn
hljóðaði upp á 4756.50
krónur. Verðlagsstofnun
kannaði verð á varahlutum í
sláttuvélar hjá nokkrum
varahlutasölum og á bensín-
stöðvum og kom í ljós að
verð varahlutanna var nálægt
1500 krónum. Einnig fékk
stofnunin nokkra aðila til að
meta vinnuna og niðurstaðan
var sú að hæfilegt hefði verið
að reikna 2,5 stunda vinnu í
verkið. Að auki kom í ljós,
að reikningurinn var vitlaust
lagður saman og var þess
vegna 30 krónum of hár.
I fréttatilkynningu frá
Verðlagsstofnun kemur
fram, að þessi þjónusta er
ekki bundin ákvæðum um
hámarksverð.
Kreppu-
sóttar-
samningar á
Vestfjörðum
■ „Þessir samningar byggjast
á þeirri kreppusótt sem nú er í
útgerðinni. Við vorum ekki að
sækja neitt í lestar þeirra við þær
aðstæður sem cru núna,“ sagði
Pétur Sigurðsson formaður Al-
þýðusambands Vestfjarða, en
sáttafundi í deilu sjómanna og
útvegsmanna lauk laust fyrir kl.
19 í gær með samkomulagi.
„Það má segja að ýmsir lausir
endar hafi verið hnýttir, leið-
rétting fengist á smærri liðum.
Þetta hefur verið tími lagfæringa
og endurbóta,“ sagði Pétur.
„Svo er að sjá hvaða móttökur
þetta fær úti í félögunum (sjó-
mannafélögin eru 11) en þangað
kemst samningurinn varla fyrr
en á þriðjudag, miðvikudag.“
Mývatn:
Bíllinn valt
■ Bílvelta varð í Mývatnssveit
í fyrradag. Það var lítill Daihatsu
bíll sem valt. Ungur maður sem
ók bílnum meiddist ekki mikið.
Talið er að bíllinn hafi verið á
of mikilli ferð í beygju, sem
einnig liggur yfir smáhæð.
Rís Tónlistarhöll
í Sigtúnsmýrinni
- Tónlistarmenn kjósa það helst