NT - 15.06.1984, Blaðsíða 2

NT - 15.06.1984, Blaðsíða 2
 Skóli á vegum bandarísku strandgæslunnar: Þriggja vikna námskeið um leit og björgun á sjó - á vegum bandarísku strandgæslunnar og Landhelgisgæslunnar ■ „Þetta var mjög gagnlegt námskeiö og að mörgu leyti nýstárlegt fyrir íslendinga,“ sagði Sigurður Árnason skip- herra í spjalli við blaðamann NT í gær, en þá var slitið þriggja vikna námskeiði í leit og björg- un á sjó á vegum skóla sem bandaríska strandgæslan rekur, „The National Search and Resq- ue School. „Þátttakendur voru um 30, frá Landhelgisgæslunni Flugmálastjórn, Pósti og síma, Slysavarnarfélaginu og fleiri að- ilum. Námskeiðið var einkum haldið fyrir þá aðila sem stjórna og skipuleggja leitir og björgun- arstörf á sjó. Gunnar Bergsteinsson for- stjóri Landhelgisgæslunnar sagði að þessi skóli mætti heita al- þjóðlegur og héldi námskeið fyrir þjóðir um víða veröld. Fyrir tveim árum bauðst Landhelgisgæslunni að senda menn /á svona námskeið úti í Bandaríkjunum, en við vildum að kannaðir yrðu möguleikar á að halda námskeiðið hér þannig að fleiri gætu sótt það bæði frá okkur og öðrum aðil- um, sem fást við leitar og björg- Dalalíf hálfnað: Tökur myndarinnar hafa gengið vel ■ „Þetta hefur gengið mjög vei. Við erum rúmlega hálfnaðir og klárum um mánaðamótin,“ sagði Jón Hermannsson kvikmynda- framleiðandi hjá Nýju lífi þegar NT forvitnaðist um gerð Dalalífs, nýjustu mynd- ar félagsins. Dalalíf ereins konarfram- hald af Nýju lífi og segir frá kumpánunum tveimur og ærslum þeirra. í þetta sinn gerast þeir afleysingabændur á stóru býli, og eins og nærri má geta hafa þeir sínar skoðanir á því hvernig reka á bú. Kvikmyndatökur hófust 23. maí og fara þær fram á bænum Neðra-Hálsi í Kjós. Aðalhlutverkin eru í hönd- um þeirra Karls Ágústs Úlfs- sonar, Eggerts Þorleifssonar og Hrafnhildar Valbjörns- dóttur. Og ekki má gleyma húsdýrunum. Frumsýning verður einhvern tíma fyrir áramót. Tapar hann laununum? ■ Stefán Kalmannsson ný- kjörinn formaður Stúdenta- ráðs hefur verið mikið í fréttum eftir að vantraust á hann og stjórn hans var sam- þykkt í ráðinu eftir aðeins misserissetu. Pað mál hefur þó enn ekki verið til lykta leitt, enda andstæðingar hans uppvísir að svindli við kosn- ingar um vantrauststillöguna. Það sem helst hefur verið borið á formanninn af and- stæðingum hans er dugleysi í starfij sérstaklega hvað snertir kjarabaráttu. Náms- lán hafa nýlega verið skert sem farið hefur mjög fyrir brjóstið á vinstri mönnum. Því fer þó fjarri að Stefán hafi veirð aðgerðalaus í stóli sínum þó hann sé ekki einn þeirra manna sem gasprar um verk sín. Eitt hans fyrsta verk eftir valdatöku var að hækka lúsarlaun formanns- stöðunnar sem enginn for- veri hans hafði þorað að gera. Þannig nema laun Stef- áns núna 24 þúsundum en voru áður ekki nema skitnar 16 þúsundir. Slík íaun hæfa nú aðeins vélritunardömu formannsins en fyrr var þeirri forneskju fylgt að starfsmað- ur og formaður lifðu við sömu kjör. Þau voru svo aftur miðuð við lágmarks- framfærslu Lánasjóðs námsmanna. Hver var svo að segja að formaðurinn beiti sér ekki í kjarabaráttunni... Af kynningar- starfi Listahátíðar US'IAHÁTÍÐ í REYKJAVlK O L-17 JÚNÍ1984 THE REYKMVlK FFSTIV'ai póstsins í gær segir formaður stjórnar Listahátíðar að kynningarstarf á vegum hennar hafi farið í vaskinn. Blaðamenn segja hins vegar sín á milli að eins gott hafi verið að kynningarstarfið hafi ekki verið meira, þeir blaðamannafundir sem haldnir voru hafi orðið til harla lítils ef ekki bara til tafa fyrir þá í starfi. Fyrsti blaðamannafundur stjórnar Listahátíðar var haldinn á Naustinu daginn fyrir Uppstigningardag, sem er frídagur blaðamanna og prentara eins og annarra landsmanna og koma því ekki út blöð daginn eftir. En þennan samadag voru haldn- ir alls 8 blaðamannafundir annars staðar til að kynna myndlistarsýningar á vegum hátíðarinnar. Utilokað var að sækja alla þessa fundi og gera þeim skil og kynning blaða á fyrstu viku hátíðar- innar varð því miklu minni en vilji stóð til. Næsti blaðamannafundur var haldinn í höllinni til að kynna dansleik Listahátíðar og hafói allt sem bar kom fram komió fram á tyrrnefnd- urn íundi í Naustinu. Þriðji blaðamannafundur- inn fór fram í veitingahúsinu Gaukur á Stöng og var tilefni hans að kynna klúbb Lista- hátíðar sem þar átti að taka til starfa. Þar kom fram að listamenn sem komnir væru um langan veg til að sýna listir sínar fyrir landann gætu komið þangað og slappað af eftir áreynsluna (drekka bjórlíki), og þar gæfist al- menningi kostur á að hitta þá og kynnast þeim persónu- lega. Húsnæðið á lofti Gauks á Stöng var raunar í smíðum þegar fundurinn var haldinn, en fullbúið rúmar það um 40 manns í sæti. Þrengist hug- takið almenningur! Tveim dögum síðar var enn boðað til blaðamanna- fundar á Gauk á Stöng. Þegar blaðamenn mættu á staðinn var þó ekki hægt að hefjast handa og ræða við þá lista- menn sem til stóð að kynna þótt þeir væru komnir á staðinn. Biðu blaðamenn þolinmóðir, en þar kom að þá brast þolinmæðin og spurðu hverju biðin sætti. Kom þá í ljós að beðið var eftir að iðnaðarmerin rækju smiðshögg á húsnæðið þar sem klúbbur Listahátíðar átti að opna um kvöldið. Entust ekki allir til að bíða eftir að smíðinni lyki, en óneitanlega veltu blaðamenn því fyrir sér hvað væri meiningin að kynna og hvern væri verið að auglýsa. Ef þú átt ekki salt á grautinn... ■ Núeftirlanganogstrang- an grjónagrautsvetur þvkii Dropamönnum ekki ólíklcg að alþýða þessa iands s. unarstörf. Það tókst og þrír kennarar voru sendir hingað okkur að kostnaðarlausu til að halda þetta námskeið sem nú er að Ijúka. Bæði Gunnar og Sigurður lögðu áherslu á að markmiðið væri að fá alla aðila sem sinna leitar og björgunarstörfum á sjó til að starfa saman og sam- ræma vinnubrögð sín. „Til að þetta komi að gagni þurfa allir þessir aðilar að tala sama tungu- mál. Það þarf að aðlaga þetta námskeið að íslenskum aðstæð- um og við höfum hug á að vinna að því í framhaldinu? Námskeiðið byggðist á fyrir- lestrum og yfirferð yfir kennslu- bækur, þar sem fyrir voru tekin atriði eins og notkun upplýsinga og öflun þeirra til að auðvelda leit og björgun, þar sem atriði eins og straumur á hverjum stað veður og aðrar aðstæður eru vegna og metnar. Námskeiðið var afar strangt að sögn þeirra sem tóku þátt í því og stóð á hverjum degi frá kl. 17.45 og allt framundir miðnætti. orðin langleið á þcssum ágæta rétti. Með vorinu er líka sjálfsagt að láta eitthvað léttara og ódýrara í magann svo sem blessaðan hafra- grautinn. Uppskrift að þeim þjóðarrétt birtist fyrri sícemmstu í athvarfsblaðinu sem nokkrir unglingar hér i bæ gáfu út. Henni er hér með komið á framfæri (það er stolið): „Sjóðið vatn og haframjöl í potti (ekki pönnu). Látið sjóða í u.þ.b. 10 mín. Takið ausu og ausið upp úr pottin- um, (ekki pönnunni) og legg- ið mjög varlega á disk. Blandið smá mjólk, (ekki vatni) og sykri, ef þið hafið lyst á því. Etið. Passið ykkur að brenna ykkur ekki í munninum. Ó fyrirgefið, ég gleymdi saltinu. Ef þið hafið gleymt því líka setjið það þá núna. (Ef þið eigið ekki salt í grautinn, þá slcppið því). „Með hafragrautnum er vel til fallið að lesa eins og eitt frumsamið ljóð, það bæt- ir meltinguna segja uppeldis- sérfræðingarnir í athvarf- inu." Já og það gleymdist víst í formála að þessum ritstuldi að hér er sérstakur grautur Unglingaathvarfsins á ferð- inni. en það voru krakkar bar seni gáfu fvrrnefnt blað í En það er vonandi reiðu... og Bon appeti Föstudagur 15. júní 1984 2 ■ Kári Guðjónsson starfsmaður Flugmálastjórnar tekur við viðurkenningu fyrir bestan námsárangur. NT inyndir Árni Bjarna Sveitabæir á villigötum villur í bæjarskrá Símaskrárinnar ■ 24 bæjum í Ljósavatns- hreppi í Þingeyjarsýslu sem ný- lega fengu sjálfvirkan síma var . vitlaust ráðstafað þegar að því að kom að færa þá milli sím- stöðva í bæjarnafnaskrá nýju símaskrárinnar. Fram að breyt- ingu höfðu bæirnir tilheyrt sím- stöðinni að Fosshól en eru nú undir símstöðinni að Breiðu- mýri. Þannigeruþeirlíkaskráð- ir í sjálfri símanúmeraskránni. En í bæjarnafnaskrá sömu bókar lentu þeir allir fyrir vitlausa tölvukeyrslu undir símstöðinni að Reykjahlíð. Þá er NT kunn- ugt um villur í bæjarnafnaskrán ingu bæja á Vestfjörðum. Hafsteinn Þorvaldsson rit- stjóri símaskrárinnar sagði að hér væri á ferðinni mjög leiðin- leg villa sem þó væri lítið hægt að gera í fyrr en með næstu símaskrá. Þá hafa minni villur slæðst inn í bæjarnafnaskrána og aðra hluta símaskrárinnar en Hafsteinn kvað þetta alvarleg- ustu mistökin sem honum hefði verið tilkynnt um til þessa. Þá er eins og auglýst hefur verið ferðaskrá símaskrárinnar á öftustu síðu vitlaus og er mönnum bent á gömlu skrána í því tilviki. Þá hafa einhverjir bæir í Auð- kúluhreppi villst i bæjarnafna- skrá undir Bíldudal með póst- númeri en eru með réttu settir undir símstöðina á Þingeyri. Meðal þeirra er Hrafnseyri við Arnarfjörð. Ennfremur hefur heimildamaður NT bent á að einhverja bæi vanti í skrána og benti í því sambandi á Ljósa- land í Biskupstungum. Þeir eru gamlir og gera enn sitt gagn ■ Er ekki tilvalið að ferðast í einum svona frá kirkju og heim eftir brúðkaupið? Það er ný- stofnuð bílaleiga, Bílalán. sem hefur þessa gömlu uppgerðu bíla til leigu. Þeir eru þó.ekki ætlaðir til þess að fara á þeim hringveginn með fjölskyiduna. heldur er ætlunin að leigja þá til auglysinga og kvikmyndágerð- ar. brúðkaupa og annarra hatíð- legra viðburða. Og þeir eru aðeins leigðir með bílstjora. Auk þess eru líkur á að menn geti fengið leigða Rolls Rovce bíla upp á sömu bvti ’ ef þeir vilja hafa mikið við. Til venjulegra nota geta menn féne- ið nýja Fiat-Zastawa hjá Bílalán og keyrt þá sjálfir. NT-mvnd Róberí

x

NT

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: NT
https://timarit.is/publication/305

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.