NT - 15.06.1984, Qupperneq 4
CI c Föstudagur 15.júní 1984- , 4
\ ií Fréttir ’
Ilil
■ Eiríkur Rósberg formaður S.Í.L. færdi Atla Magnússyni
þennan vængbreiða örn að gjöf í lokahófinu fyrir umsjón með
bókinni „Skært lúðrar hljóma,“ en hún kemur út innan skamms og
fjallar um sögu íslensku lúðrasveitanna. Bókin er 430 síður.
„Lúðrasveit íslands“ ieikur undir stjórn Hans Ploder, stjórnanda „Lúðrasveitar Hafnarfjarðar".
(Ljósm. Þórdís)
Þrjú hundruð manns í „Lúðra
sveit íslands“ á Akureyri
Von er á sögu lúðrasveitanna á Islandi innan tíðar
■ Segja má að ljúfir ómar hafi
fyllt lofið í Akureyrarbæ helgina
9.-10. júní s.l., en þar voru þá
samankomnar tíu lúðrasveitir
á liinu ellefta landsmóti S.I.L.,
- sem stendur fyrir Samband
íslenskra lúðrasveita. Mótin
hafa nú verið haldin á tíu
stöðum á landinu, þar sem þetta
var í annað sinn sem Akureyr-
ingar halda mótið. Það var árið
1957, en fyrsta landsmótið var
haldið í Reykjavík 1955.
Þessar tíu lúðrasveitir voru
auk gestgjafanna Lúðrasveitar
Akureyrar: Lúðrasveit Hafnar-
fjarðar, Lúðrasveit Húsavíkur,
Lúðrasveit Selfoss, Lúðrasveit-
in Svanur, Lúðrasveit Vest-
mannaeyja og Lúðrasveit
Verkalýðsins, og loks þrjár ung-
lingalúðrasveitir. Þær voru
lúðrasveit frá Hafralæk í Þing-
eyjarsýslu, lúðrasveit Barna-
skólans -á Neskaupstað og loks
lúðrasveit Tónlistarskólans á
Akureyri. Voru þetta um þrjú
hundruð manns.
Lúðrasveitirnar léku á sunnu-
dag í íþróttahöllinni á Akur-
eyri, fyrst hver í sínu lagi og þá
allar sameiginlega, en það er
gamall vani á landsmótunum og
nefnast sveitirnar þá „Lúðra-
sveit íslands.“ Er það tilkomu-
mikið á að hlýða þegar sveitirn-
ar þannig leika allar saman,
enda er það um 250 manna
lúðrasveit. Meðal þess sem
„Lúðrasveit íslands“ lék að
þessu sinni var „Fanfaremars“
eftir Karl O. Runólfsson, en
Karl tileinkaði S.Í.L. þennan
glæsilega mars á fyrra mótinu á
Akureyri árið 1957 og fór því
vel á að endurflytja hann nú.
En fleira sætti tíðindum á
ellefta landsmótinu á Akureyri.
í tilefni af 30 ára afmæli S.Í.L.,
er nú um það bil að koma út
saga íslenskra lúðrasveita og er
von á þessu veglega riti í þessum
mánuði. Bókin er 430 síður að
stærð og hefur verið í undirbún-
ingi s.l. fjögur ár. Það er Atli
Magnússon sem stjórnað hefur
söfnuninni.
Formaður S.Í.L. er nú Eirík-
ur Rósberg, félagi í Lúðrasveit
Akureyrar og hefur hann gegnt
störfum frá árinu 1979. Á aðal-
fundi sambandsins nú gekk úr
stjórninni Ævar Karl Ólafsson,
sem setið hefur í stjórn frá 1972
og var hann nú heiðraður fyrir
ve( unnin störf.
í lokahófinu, sem haldið var
á sunnudagskvöldið í Sjálfstæðis-
húsinu á Akureyri barst boð frá
Lúðrasveitinni Svani og
Lúðrasveit Verkalýðsins um að
halda næsta landsmót S.Í.L. í
Reykjavík og má ætla að það
verði árið 1987.
Aðalfundur
Blaðamannafélags íslands
■ Aðalfundur Blaðamannafélags (slands verður haldinn á morgun,
lauqardag í Síðumúla 23 og hefst klukkan 14.
- Stjórnin
Gúmmíbátar
1, 2ja, 3ja og 4ra manna.
Árar - Hand- og rafdœlur - Sundlaugar -
Vindsœngur - Uppblásnir stólar - Sund-
hringir - Sundboltar o.fl.
Póstsendum
Vísa og Kreditkortaþjónusta
■ Úr 45 í 35 þúsund, - verðlækkun vegna tæknifram-
fara. Á myndinni eru þeir Michael Hanson fulltrúi
framleiðenda í Vestur-Þýskalandi og sölumenn Glo-
bus þeir Þorgeir Eliasson yfirmaður og Magnús
Ingþórsson sölumaður. NT-mynd Róbert
Verkalýðsfélag Vestmannaeyja:
Stjórninni
heimilað að segja
upp samningum
■ Aðalfundur Verkalýðsfélags Vestmanna-
eyja hefur samþykkt heimild til stjórnar og
trúnaðarmannaráðs til að segja upp kjara-
samningum með nægilegum fyrirvara þannig
að þeir verði lausir þann 1. september n.k.
Spurður hvort búast megi við stríði á
vinnumarkaðinum í haust sagði Jón Kjartans-
son, form. félagsins: „Þegar atvinnurekendur
eru sjálfir farnir að hafa á orði að það kaup
sem þeir borga starfsmönnum sínum sé til
skammar þá held ég að Verkalýðshreyfingin
verði að fara að mjaka sér af stað svo
glæpurinn veðri ekki tekinn frá henni, þ.e. að
atvinnurekendur hækki bara launin sjálfir án
aðstoðar verkalýðsforystunnar."
Aðalfundur V.V. samþykkti jafnframt
harðar vítur á þá stefnu heilbrigðisyfirvalda að
hækka greiðslur fyrir lyf og þjónustu við sjúka.
Taldi fundurinn það lágmarkskröfu í velferð-
arþjóðfélagi að það yrðu ekki forréttindi
hinna ríku að veikjast.
20% afsláttur
á sláttuþyrlum
■ Um þessar mundir bfður
Globus upp á Fella sláttuvélar á
20% lægra verði heldur en fyrri
sendingar af sömu vélum hafa
verið á. Er þá ekki tekin inn
vöruverðslækkun sem varð
vegna afnáms söluskatts á bú-
vélum á liðnum vetri. Michael
Hanson fulltrúi Fella verksmiðj-
anna sagði í samtali við NT að
lækkunin væri komin til af
tækniframförum í framleiðslu
og því varanleg. Aðspurður um
hliðstæðar lækkanir á öðrum
vélum frá fyrirtækinu kvaðst
hann ekkert geta um það sagt
að svo stöddu.
Sem dæmi um verðlækkanirn-
ar þá kostar venjuleg Fella sláttu-
vél án grasknoðara nú 35.500 en
kostaði áður 45.000. Með fest-
ingum fyrir knoðarann er hún
tvö þúsund krónum dýrari en
fyrir knoðarann sjálfan greið-
ast 17.500. Hjá Michael kom
fram að Fella vélarnar eru þær
einu á markaðinum sem bjóða
vélar með lausum grasknoðara,
en hann er hægt að tengja og
aftengja á augnabliki.
■ Vefararnir sem standa að sýningunni Vefmyndir á Selfossi
Vefmyndir á Selfossi
■ Sýningin Vefmyndir sem er
sýning átta vefara á Suðurlandi
opnar í Byggða og Listasafni
Árnessýslu á Selfossi laugardag-
inn 16. þessa mánaðar. Þar
verða sýndar 50 vefmyndir og
eru myndir þeirra allar byggðar
á hugmyndum vefaranna. Þetta
er þriðja sýning hópsins sem
hefur undanfarin ár unnið undir
handleiðslu Hildar Hákonar-
dóttur.
Sýningin verður opin frá tvö
síðdegis fram á kvöld til klukk-
an 10 alla næstu viku og lýkur á
sunnudagskvöld tuttugasta og
fjórða.