NT - 15.06.1984, Síða 5
b f inút .8 T laesbiíísnH
®=i
Föstudagur 15. júní 1984
Heimsmet í
júgurbólgu!
- kýrin ófær til gangs
■ „Ég er nú búinn að búa í
hálfa öld og hefi aldrei séð
svona síð júgur á nokkurri
skepnu fyrr“, sagði Guðmundur
Eyjólfsson bóndi að Húsatóft-
um á Skeiðum um kú sína Kolu
sem hann sendi í sláturhúsið í
vikunni. Kýrin var þá orðin
ófær til gangs vegna júgranna
auk þess sem fleiri kvillar herj-
uðu á hana. Kola mjólkaði 17 til
18 merkur í mál sem er sæmileg
meðalnyt. Ástæða þessa ofvaxt-
ar í júgrum kýrinnar sagði Guð-
mundur vera júgurbólgu sem
orsakað hefði að sinar og taugar
gáfu sig og júgrin duttu niður.
Kola bar fyrir rúmum mánuði
síðan og þá strax hljóp bólgan í
júgrin en ágerðist síðan meir
þegar frá leið. Kýrin var á sjötta
vetri en auk þessa hrjáði hana
liðpoki á framfæti og undir það
síðasta mein í öðrum afturfæti
sem gerði útslagið með að
ákveðið var að farga henni. Við
mjaltir þurfti Guðmundur rð
færa afturfætur kýrinnar upp á
stall og vélmjólka síðan einn
spena í einu. Var þetta vanda-
samt og seinlegt verk sem eng-
inn gat sinnt nema bóndinn og
því skepnan afar bindandi fyrir
hann. Þá skeði það tvívegis að
kýrin steig sjálf á júgrin þannig
að svöðusár hlaust af.
Að sögn Guðmundar er kvilli
þessi ættgengur. Kúna sagði
hann hafa verið undan nautinu
Má frá Mástungu en það hefði
verið þekkt af því að kýr undan
því missa júgrin niður. Jafnsíð
júgur og á Kolu eru þó sjaldgæf
ef ekki einsdæmi.
■ Þetta er hún Kola á Húsatóftuin á Skeiðum. Eftir að Guðmundur bóndi hafði bisað við að koma
henni á stall við hverjar mjaltir og mjólka síðan cinn spena í einu, hátt á annan mánuð gafst hann upp.
Því lá leið kusu fyrr í þessari viku í Sláturfélag Suðurlands og þaðan vonandi sem fyrsta flokks gæðavara
á borð neytenda. NT mynd Grctar Guðinundsson
Hátíðarhöldin 17. júní
■ Skátar hafa undanfarna áratugi ekki
látið sitt eftir liggja við undirbúning 17.
júní hátíðarhaldanna.
Á Akranesi verða skátar með fánaat-
höfn á Akratorgi og einnig munu þeir sjá
um skátatívolf. í Borgarnesi sjá skátar
um skrúðgöngu frá kirkjunni og niður í
Skallagrímsgarð og á Akureyri leiðir
fánaborg skáta göngu frá Ráðhústorgi
inná íþróttavöll. Á Dalvík verða skátar
sömuieiðis á ferðinni og standa heiðurs -
vörð á meðan hátíðardagskrá fer fram.
Einnig sjá þeir um skátatívolí og ungl-
ingaball. í Garðabæ sjá skátar um fánaat-
höfn við Safnaðarheimilið og standa
heiðursvörð á meðan hátíðardagskrá fer
fram. í Hveragerði verða nýliðar vígðir
inní skátafélagið að lokinni messu og
sjdtar munu fara fyrir skrúðgöngum. Á
Ólafsfirði taka skátar þátt í hátíðar og
skemmtidagskrá bæjarins og sjá um þarfir
yngri bæjarbúa. 1 Neskaupstað verður
hátíðardagskrá við sundlaugina og verða
skátar með tívolí og skemmtidagskrá í
skrúðearðinum. Á Þórshöfn sýna skátar
tjaldbúðarvinnu en á ísafírði verða 17.
júní’ hátíðarhöldin alfarið í höndum
skáta. í Keflavík standa skátar heiðurs-
vörð við guðsþjónustu í kirkjunni og
leiða skrúðgöngu úr kirkju í skrúðgarð.
Þá munu skátar ekki heldur liggja á liði
sínu í Reykjavík og munu m.a. standa
heiðursvörð við leiði Jóns Sigurðssonar
áður en fánaborg skáta gengur frá kirkju-
garðinum og niður á Austurvöll. Tjald-
búða- og útistarf verður sýnt í Hljóm-
skálagarðinum og einnig munu skátar
leiða skrúðgöngu frá Hlemmtorgi og
niður á Arnarhól. Hefst gangan kl. 15.20.
■ Hátíðahöldin í Garðabæ 17. júní
hefjast kl. 10.00 við Arnarvog með
siglingakeppni. Síðan berst leikurinn að
Ásgarði þar sem hátíðardagskrá verður
flutt og verður boðið uppá fjölbreytt
skemmtiefni. Kaffisala fer fram í Garða-
skóla og þar verða sýndar kvikmyndir en
fyrirhugað er að hátíðarhöldunum Ijúki
um 19.30.
■ 17. júní hátíðarhöldin í Mosfellssveit
hefjast með hátíðarmessu kl. 9.00 í
Lágafellskirkju. Hátíðardagskrá ferfram
við íþróttamannvirkið við Varmá og
boðið verður uppá útsýnisflug á vegum
flugklúbbsins sem er með aðstöðu á
Tungubökkum. Skrúðgöngur verða fyrir
börn og dagskránni lýkur með dansleik í
félagsheimilinu Hlégarði.
■ í Reykjavík verður Kristilegt stúd-
entafélag með kaffisölu í húsi félagsins að
Freyjugötu 27, 3. hæð sunnudaginn 17.
júní og hefst hún kl. 15.30 með stuttri
hugvekju. Um kvöldið verður samkoma
í húsi KFUM og K að Amtmannsstíg 2b.
■ írski leikarinn Niall Toibin, sem hér
er staddur á vegum Listahátíðar í Reykja-
vík, treður upp í Gamla bíói laugardaginn
16. júní kl. 17.00 með leik sinn „The
Bells of Hell“.
■ íslenski dansflokkurinn verður með
sýningu á Kjarvalsstöðum laugardaginn
16. júní kl. 15.00. Flokkurinn sýnir
Dans, verk sem er samið við samnefnt
tónverk Snorra Birgissonar. Verkið er
um 8 mín. og verður flutt inni á sýningu
Louisu Matthíasdóttur á Kjarvals-
stöðum.
■ Umsjónafélag einhverfra barna held-
ur flóamarkað að Hallveigarstöðum laug-
ardaginn 16. júní kl. 13.30-18.00 og
verður margt girnilegra muna á boðstól-
um. Ágóðinn rennur til starfsemi félags-
ins, sem m.a. vinnur að því að koma á
stofn fleiri meðferðarheimilum fyrir ein-
hverf börn.
Guðsþjónustur í Reykjavíkurprófastsdæmi
þjóðhátíðardaginn 1984
Árbæjarprestakall
Þjóðhátíðarguðsþjónusta í safnaðar-
heimili Árbæjarsóknar kl. 11.00 árd.
Áskirkja
Guðsþjónusta kl. 11.00.
Bústaðakirkja
Lýðveldissamkoma í Bústaðakirkju 17.
júní kl. 10.00 f.h.
Dómkirkjan
Þjóðhátíðarmessa kl. 11.15 prestur Sr.
Sólveig Lára Guðmundsdóttir.
Landakotsspítali
Guðsþjónusta kl. 10.00.
Elliheimilið Grund
Guðsþjónusta kl. 2.00.
Fella- og Hólaprestakall
Guðsþjónusta í Menningarmiðstöðinni
við Gerðuberg kl. 11.00.
Fríkirkjan í Reykjavík
Þjóðhátíðarguðsþjónusta kl. 11.00. Leik-
ið verður á selló og orgel í 20 mínútur á
undan messu. Kaffisala Kvenfélágsins
hefst fyrir utan kirkjuna að athöfn lokinni
Grensáskirkja
Guðsþjónusta kl. 11.00.
Hallgrímskirkja
Messa kl. 11.00. Sr. Ragnar Fjalar Lárus-
son.
Landspítalinn
Guðsþjónusta kl. 10.00.
Háteigskirkja
Messa kl. 11.00. Sr. Arngrímur Jónsson.
Kópavogskirkja
Guðsþjónusta í Kópavogskirkju k). 11.00
árd. Bæjarfulltrúar lesa ritningarorð.
Langholtskirkja
Guðsþjónusta kl. 11.00.
Laugarneskirkja
Hátíðarguðsþjónusta kl. 11.00. Ræðu-
efni: Lýður Krists og lýðveldið.
Neskirkja
Messa kl. 11.00. Sr. Frank M. Halldórs-
son.
Seljasókn
Guðsþjónusta verður ekki í Öldusels-
skólanum á þjóðhátíðardaginn.
Bændur
Norður- og Austurlandi
Námskeið í plægingum
r
á vegum Búnaðarfélags Islands og Globus hf.
KVERNELAND
Leiðbeinendur: Óttar Geirsson, jarðræktarráðunautur Búnaðar-
félags íslands og Forbord frá Kvernelands-verksmiðjunum
norsku.
Námskeiðin verða haldin á eftirtöldum stöðum:
Hótel Blönduósi .........................18. júní
Varmahlíðarskóla ........................19. júní
Fél.h. Freyjulundi, Arnarneshr...........20. júní
Fél.h. ídölum S. Þing....................21. júní
Valaskjálf, Egilsstöðum..................22. júní
Námskeiðin hefjast alla dagana kl. 14.00 á fyrirlestri og
myndasýningu, en á eftir verður verkleg kennsla.
Öllum sem áhuga hafa er heimil þátttaka.
Búnaðarfélag íslands
Gfobusi
LÁGMÚLI 5, SIM.I 81555