NT - 15.06.1984, Page 13
i
Modern Jazz Quartett
kemur saman aðnýju
og nú í Laugardalshöllinni á vegum Listahátíðar. Ef tii vill
síðasta tækifærið að sjá og heyra snillingana saman
■ Mörg af helstu stór-
mennum jassins hafa gist
ísland, Louis Armstrong og
Ella Fitzgerald komu fyrir um
tveim áratugum, Benny Good-
man kom á Listhátíð 1976,
Stan Getz kom á síðustu Lista-
hátíð og eru þá fáir taldir. Og
nú eru allir ástríðufullir jass-
unnendur komnir með fiðring
í kroppinn, og kannske reynd-
ar tónlistarunnendur í víðasta
skilningi, The Modern Jazz
Quartett heldur nefnilega tón-
leika á vegum Listhátíðar ann-
að kvöld í Laugardalshöllinni.
Líklega hafa fæstir búist við
því að það ætti fyrir þeim að
liggja að hlýða á leik þessara
frábæru tónlistarmanna hér á
íslandi eða yfirleitt nokkurs
staðar. The Modern Jazz
Quartett hætti nefnilega reglu-
legu tónleikahaldi fyrir um það
bil áratug, en hafa hist einu
sinni á ári eða tveim og tekið
saman sveiflu. Nú í ár er það
ísland sem verður þess heiðurs
aðnjótandi að taka á móti
þeim félögum og er búist við
því að tó.nleikarnir hér verði
þeir einu sem kvartettinn held-
ur á þessu ári. Raunar heyrast
þeir spádómar að hér verði um
að ræða síðustu tónleikana í
lífi þessa fræga kvartetts.
Pað eru rúmlega 30 ár síðan
The Modern Jazz Quartett var
stofnaður og síðan 1955 hefur
hann verið skipaður sömu
mönnum og nú gista ísland á
Listahátíð. Þeir eru Percy
Heath, bassaleikari, Milt Jack-
son vibrafónleikari, Connie
Kay trommuleikari og John
Lewis píanóleikari.
Pessir fjórmenningar voru
allir orðnir heimsfrægir er þeir
slógu saman í kompaní og
stofnuðu kvartett sinn. Pað er
heldur ekki að orðlengja það,
að jassheimurinn féll þegar að
fótum þeirra. Peir leika kamm-
erjass af frábæru listfengi og
þykir leikur þeirra sérlega fág-
aður og vandaður.
Percy Heath bassaleikari er
frá Philadelphia, alinn upp á
músíkölsku heimili og hóf
fiðlunám, en sneri sér síðan að
bassanum. 1950 tók hann sæti
í hljómsveit Dizzy Gillispie,
en áður hafði hann leikið með
Howard McGee, J.J. Johnson
og Art Blakey, svo einhverjir
séu nefndir.
Milt Jackson víbrafónleikari
fæddist í Detroit og þegar
hann komst á skólaaldur hafði
hann þegar náð valdi á 5 hljóð-
færum, sem hann lék á jöfnum
höndum. Framan af lagði hann
aðaláherslu á trommurnar, en
eftir að tónlistarkennari hans
kynnti víbrafóninn fyrir hon-
um var framtíðin ráðin. Hann
féll þegar fyrir hinu nýja hljóð-
færi. Hann hóf að leika með
Dizzie Gillispie 1945 og á
árunum þar á eftir lék hann
m.a. með Ray Brown, Al
Haig, Thelonious Monk,
Woody Herman. Hann var
einn af stofnendum The Mo-
dern Jazz Quartett og hefur
þess utan gert hljóðritanir með
flestum af stærstu nöfnum jass-
ins á sinni tíð. Þá hefur hann
haldið fjölda konserta, ýmist
einn eða með öðrum víða í
Evrópu og í Japan.
Þeir sem muna eftir hljóm-
leikum Benny Goodmans á
Listahátíð 1976 minnast e.t.v.
trommuleikarans Conny Cay,
sem nú kemur í annað sinn á
Listahátíð og leikur í Höllinni,
að þessu sinni með The Mo-
dern JazzQuartett. ConnyCay
ólst upp í Bronx, og kvaldist í
píanótímum í æsku og það var
ekki fyrr en hann byrjaði að
fikta við trommurnar sem tón-
listarástríða hans fékk útrás.
Auk Goodmans hefur hann
unnið með Lester Young,
Charlie Parker, Coleman
Hawkins og Stan Getz.
Hann gekk til liðs við Mo-
dern Jazz Quartett 1955 síðast-
ur þeirra fjórmenninga sem
nú skipa kvartettinn.
John Lewis byrjaði að læra
á píanó 6 ára gamall og 15 ára
gamall byrjaði hann að leika í
klúbbum ogdanshúsum. Hann
nam við Manhattan School of
Music, og lék síðan með Miles
Davis, lllinois Jaquet og Dizzy
Gillispie áður en hann stofnaði
The Modern Jazz Quartett.
Jafnframt því að leika jass
hefur hann leikið með Sinfó-
níuhljómsveitum og hljóðritað
klassíska tónlist.
Tónleikar þeirra fjórmenn-
inga hefjast í Höllinni kl. 21.00
á laugardagskvöld. Það skal
enn ítrekað að þetta kann að
verða síðasta tækifærið til að
upplifa þessa snillinga leika
fjóra saman í kvartetti sínum.
Miðar eru enn fáanlegir hjá
Listahátíð og verða einnig
seldir við innganginn meðan
plássið leyfir.