NT - 15.06.1984, Page 24

NT - 15.06.1984, Page 24
52-----tLSjCS- iniij .«r lugsbuSíJÖ^ I ) Föstudagur 15. júnr 198&' !' 24 Holland Uppsetning stýriflauga samþykkt með skilyrðum Haag-Reutcr. ■ Hollenska þingið samþykkti í gær tillögur stjórnarinn- ar um uppsetningu stýriflauga. Mál þetta hefur veriö mjög umdeilt í Hollandi og hvorki verið samstaða innan stjórnarinnar né þingsins. Málin standa nú þannig, að Hollendingar hafa ákveðið að fresta ákvörðun um upp- setningu 48 stýriflauga þangað til í nóvember á næsta ári. En ef Sovétríkin fjölga SS-20 flaugum sínum fyrir þann tíma munu stýriflaugarnar verða settar upp í Hollandi. Með þessu hyggst holler.ska stjórnin þrýsta á Sovétríkin að auka ekki kjarnorkubúnað sem beint er gegn Vestur- Evrópu og jafnvel að flýta fyrir að afvopnunarviðræður geti hafist á ný. En lítil von virðist itil að hægt verði að draga Sov- ■étríkin til viðræðna á þessu ári. Ef samkomulag hefur náðst um fækkun kjarnorkuflauga í Evrópu fyrir nóvember 1985 munu Hollendingar cinnig fækka þeim stýriflaugum sem þeir munu taka við, og um hefur verið samið. Umræður um málið stóðu yfir í alla fyrrinótt í þinginu og breytingartillögur voru fluttar. Tæpast stóð stjórnin er atkvæði féllu þannig að 79 greiddu at- kvæði með henni og 71 á móti. Stjórn íhaldsmanna og frjáls- lyndra heldur því velli, en í atkvæðagreiðslunni komu full- trúar nokkurra smáflokka til hægri, henni til hjálpar. Bretland Flotinn fær full- komið köf unarskip London-Reuter. ■ Fullkomnasta köfunarskip, sem enn hefur verið smíðað, verður brátt tekið í notkun af breska flotanum. Skipið sem er 7.200 tonn verður afhent flotan- um í næsta rriánuði. Kostnaður- inn við smíðina nemur um 4.2 milliörðum króna. Meðal verk- efna þessarar undrasmíðar verð- ur að nema hljóð frá sovéskum Hugheilar þakkir færum viö öllum sem heiðr- uöu okkur, og sýndu okkur vinsemd meö heimsóknum, gjöfum og heillaskeytum á sex- tugsafmæli okkar hjóna 5. júní s.l. Lifið öll heil og sæl. Elsa og Magnús Kjartansson Hjallanesi Landsveit. t Eiginkona mín, móðir, tengdamóðir og amma Ólavía Sigurðardóttir Hlíðarenda Ölfusi verður jarðsungin frá Hjallakirkju iaugardaginn 16. júní kl. 14. Ólafur Þórðarson börn, tengdabörn og barnabörn Útför móður okkar Sigrúnar Jónsdóttur frá Tungufelli er andaðist 7. júní s.l. fer fram frá Selfosskirkju laugardaginn 16. júní kl. 13. Jarðsett verður á Tungufelli. Hlöðver Magnússon Sverrir Magnússon Maðurinn minn Guðbjörn Eiríksson frá Arakoti Skeiðum lést að Hrafnistu í Reykjavík fimmtudaginn 14. júní. Dagný Sigurbjörg Jónsdóttir. kafbátum og fylgjast með stað- setningu þeirra. Þetta er fyrsta skip þessarar tegundar sem tekið er í notkun á Norður-Atlantshafi. Hægt er að senda köfunarklefa niður úr skipinu sem komast á mikið dýpi og er það búið margs kyns tækjum sem ekki er gefið upp liver eru og eins er hönnun skipsins leyndarmál. ■ Á meðan á umræðum stóð í hollenska þinginu um uppsetningu stýriflauga efndu andstæðingar kjarnorkuvopna til mótmæla utan við þinghúsið í Haag. Símamynd polfoto Walesa íhugar að draga sig í hlé - ákvörðun f er eftir kjörsókn á sunnudag Skærur meðal Zulu- manna Msinga, Suður-Afríka-Rcuter. ■ Stríðandi ætt- bálkar Zulumanna skutu á lögreglu- sveit sem var að reyna að stilla til friðar í fyrradag. Kallað var á þyrlur til aðstoðar og að bardaganum lokn- um fannst lík eins stríðsmanns og talsvert af vopnum og skotfærum. Undanfarið hafa staðið yfir skærur meðal Zulumanna í hinu strjálbyggða hér- aði Natal. 60 manns hafa fallið og þúsundir flúið þorp sín síðan í síðasta mánuði vegna bardaganna. Þegar lögreglan skarst í leikinn í fyrra- dag stóð yfir bardagi milli tveggja flokka og voru upptök hans þau að annar flokkurinn hafði reynt að fá hinn í lið með sér til að herja á þann þriðja. Þegar það tókst ekki hófst bardagi. Varsjá-Reuter. ■ Um næstu helgi fara fram bæjar- og sveitar- stjórnakosningar í Pól- landi. Leiötogar Samstöðu, hinnar bönnuðu verkalýðs- hreyfingar hafa skorað á fólk að neyta ekki kosn- ingaréttar síns. Lech Walesa gaf út hógværlega orðaða yfirlýsingu í gær- morgun, þar sem hann sagðist sjálfur ekki ætla að kjósa og gæti það farið eftir hvernig kjörsókn verður hvort hann heldur áfram sem leiðtogi Samstöðu eða dregur sig í hlé. Litið er á yfirlýsingu Walesa sem þolraun fyrir samtökin en hann vill fá að sjá svart á hvítu hvort þau njóta sama stuðnings og áður. Aðrir samstöðumenn sem eru í felum hafa gefið út mun harð- orðari yfirlýsingar. Verkalýðs- nefndin í Varsjá skorar á verka- menn og alla Varsjárbúa að takmarka ekki mótmæli sín við að kjósa ekki í þessum auð- mýkjandi kosningum sem settar eru á svið, heldur að sýna að þær séu haldnar í skugga lög- reglukylfa og undir vernd óeirðalögreglu. Skorað er á fólk að sækja kirkju á sunnudags- morgni. í gær var tilkynnt að málaferli yfir fjórum af félögum Kor sam- takanna muni hefjast 13. júlí n.k. Sjö aðrir samstöðumenn bíða réttarhalda í fangelsum. Orð- rómur er um að stjórnvöld vilji semja við fangana og kirkjuna um möguleika á að láta mennina lausa og þá með hvaða skilyrð- um. Fann fullan poka af demöntum - og er ofsóttur og hrakinn i New York-Reuter. ■ 16 ára gamall munaðar- laus piltur í Florida var á rölti á járnbrautarteinum og kom auga á brúnan bréfpoka sem hann tók upp af rælni og opnaði. Pokinn var fullur af demöntum. Pilturinn fór með pokann og innihaldið til lögreglunnar. Þarvarhonum sagt að hann ætti auðæfln. Hann seldi nokkra steina á uppboði fyrir 250 þúsund dollara. Þetta hljóðar eins og væm- inn róman sem endar með því að hamingjan brosir við söguhetjunni. En Eric de Wilde hefur ekki lifað ham- ingjusömu lífi síðan „heppnin" helltist yfir hann, sem undirstrikuð voru af gildandi lögum í Florida um fundið fé og eignarhald á því. Síðan pilturinn fann demantana á járnbrautar- teinunum í marsmánuði 1983 hefur hann aftur og aftur verið laminn sundur og sam- an í skólanum, sem hann stundaði nám í, honum er hótað öllu illu af ókunnugum röddum í símanum og þrá- faldlega hefur verið brotist inn á heimtlihans. Tvisvar sinnum hefur verið reynt að aka á hann og hann hefur neyðst til að hætta námi vegna ofsókna í skólanum. Ástæðan er sú að fjölmiðl- arnir gefa honum engin grið. Þeir þrástaglast á heppni hans og auði, sem vekur öfund og græðgi annarra sem ekki geta unnt honum heppninnar. I fyrradag voru nokkrir demantar úr eigu de Wildes boðnir upp hjá Christie í New York fyrir 281.490 doll- ara. Hann sat þar þögull í stól sínum og deplaði ekki auga þótt fjölmiðlafólk reyndi að leggja fyrir hann spurningar. Lögfræðingur hans sagði fréttamönnum hvernig komið er fyrir de Wilde. Eftir að de Wilde skilaði demöntunum til lögreglunn- ar voru þeir í vörslu hennar í sex mánuði og auglýst var eftir að eigandi gæfi sig fram. Enginn viðurkenndi að hafa glatað auðæfunum og að hálfu ári liðnu voru demant- arnir því eign de Wildes samkvæmt lögum fylkisins. Lögfræðingur hans sagði að enginn vissi hvernig á þeim stóð og með hvaða hætti demantarnir lentu á járn- brautarteinunum í bréfpoka. Ekki er vitað hvort sá sem glataði þeim hefur komist yfir þá með óheiðarlegum hætti en enginn hefur kært sig um að gera eignarkröfu í fjársjóðinn. Hann er því eign piltsins sem fann pokann hvort sem aðrir geta unnt honum þess að njóta eignarinnar eða ekki.

x

NT

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: NT
https://timarit.is/publication/305

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.