NT - 22.06.1984, Blaðsíða 18
Föstudagur 22. júní 1984 18
L au^prdxgjnn iújárú ly34
Imncmwið 55ánx M-J?. stadent<xr
sa/wah aJ Be&OAé>tSSan\ í boSi
tbreeta IzÍAtxds
frá Vi$dÍ6Ajr FinnbogAdóttur:
og siMr í (jAr^AhoJh'.
Viá fögnatn þuí a5 ik dú hlílash
■ Gengið til veislu með tilhlökkun í hjarta.
„Gaudeamus igitur“
sungiö fullum hálsi á Bessastöðum
■ Hausinn á gestabókinni, sem lá frammi.
■ Þorvaldur Þorvaldsson, kennari á Akranesi, kona hans Ólína Jónsdóttir, Guðmundur Pálmason
jarðeðlisfræðingur og kona hans Ólöf Jónsdóttir ganga inn um gestrisnar dyr Bessastaða í glaum
og gleði endurfundanna. (NT-imndir Ari)
■ Þór Vilhjálmsson hæstaréttardómari og kona hans Ragnhildur Helgadóttir menntamálaráðherra
koma létt í lund til samfunda við gömlu skólasystkinin.
■ Guðrún Jakobsdóttir lagði land undir fót til að taka þátt í hátíðahöldunum með gömlu
skólasystkinunum, en hún er búsett í Danmörku. Systir hennar Svava var einnig í þessum
stúdentahópi. í baksýn má kenna Manfreð Vilhjálmsson arkitekt, konu hans Erlu Sigurjónsdóttur,
Guðmund píanóleikara Jónsson og konu hans Ingibjörgu Þorbergs.
■ Hér má þekkja meðal gesta Davíð Scheving Thorsteinsson, konu hans Stefaníu Borg og Leif
Hannesson verkfræðing.
■ „Nostalgía“ermikiðtísku-
orð þessa dagana, en það orð
hefur verið skýrt sem eftirsjá
eftir því liðna og það á vel við
um menntaskólaárin, árin,
sem lifa sem Ijúfur draumur í
brjósti flestra alla tíð. Þá var
öll framtíðin framundan,
áhyggjulaus og björt, rétt eins
og skólaárin, að undanskildum
bannsettum prófunum að vísu!
Þessi ár eru einstök í endur-
minningunni og verða aldrei
endurtekin.
Áratugum saman var við-
haldið þeim sið í Menntaskól-
anum í Reykjavík að skólan-
um var slitið við hátíðlega
athöfn 16. júní og úr skólanum
streymdu hátíðarklæddir stúd-
entar með hvítu kollana sína.
Þeir „áttu“ síðan bæinn í
nokkra daga, og ekki hvað síst
settu þeir eindregið svip sinn á
hátíðarhöldin 17. júní. Nú er
nokkuð um liðið síðan skóla-
slitum skólans var flýtt, og
nýrri skólar í borginni, sem
einnig útskrifa stúdenta, velja
sérhversinndagtil útskriftar-
innar. Afleiðingin er sú, að á
víð og dreif um borgina má sjá
fámenna hópa með hvíta kolla
á ýmsum dögum í lok maí, en
nýstúdentar almennt helga sér
ekki lengur eins ákveðið 17.
júní og áður var. Mörgum
finnst eftirsjá að þessu.
En stúdentar vilja gjarna
viðhalda sem best þeim vina-
og kunningjatengslum, sem
sköpuðust á menntaskólaárun-
um, og flestir árgangar halda
þeim sið að gera sér dagamun
svo um munar þau árin sem
árgangurinn á afmæli, scm
stendur á hálfum eða heilum
tug.Árgangurinni sem útskrif-
aðist 16. júní 1949 frá Mennta-
skólanum í Reykjavík, gerði
ekki undantekningu frá þessari
reglu nú í vor á 35 ára af.mæl-
inu. Liður í hátíðahöldunum
var gestaboð forseta íslands að
Bessastöðum laugardaginn 16.
júní sl., en Vigdís Finnboga-
dóttir var einmitt ein þeirra
sem gekk brosandi út úr skól-
anum með hvítan koll fyrir 35
árum og hafði, eins og skóla-
systkinin, lítinn grun um hvað
framtíðin bæri í skauti sér.
35 ár er nokkuð stór hluti
mannsævinnar og hefur margt
á dagana drifið á þeim tíma
hjá allflestum. Þó er það svo,
að þegar gömul skólasystkin
hittast, vilja hverfa í skuggann
þessi ár, sem liðin eru síðan
skólinn var kvaddur, og hugur-
inn er látinn reika lengra aftur.
Fólk verður ungt í annað sinn.
Á meðfylgjandi myndum
má sjá „miðaldra, virðulega
borgara“, sem finnst þeir enn
vera tvítugir, þegar þeir
hittast!